Dagblað - 20.02.1925, Page 2
2
DAGBLAÐ
HYeitiyerð Iækkar.
Alt í uppnámi í kauphöilum
New York og Chicago.
t*að hefir verið flutt hingað í
fréttum, að hveitiverð færi hækk-
andi erlendis. Þetta er aigerlega
rangt. Hveitiverð hefir lækkað
stórkostlega og með skjótri svip-
an. Hinn 6. þ. m. féll verð á
bushel í kauphöllinni í Chieago
úr 194 cents niður í 186. Þótti
það svo stórkostleg lækkun, að
alt komst í uppnám í kauphöll-
unum og margir hinna smærri
kaupmanna urðu öreigar á svip-
stundu. í New Yoik var lækk-
unin enn meiri.
Ástæðan til þessa er sú, að
»hveitikonungurinn« í Banda-
ríkjunum, Julius Fleischmann,
varð bráðkvaddur daginn áður,
;en skiftarétturinn ákvað undir
eins, að allur hinn mikli hveiti-
forði, sem hann átti og geymdi
til þess að halda hveitiverði háu,
skyldi tafarlaust settur á markað.
Um leið og fregnin barst til
Norðurálfu, lækkaði hveiti í
kauphöllinni í London, en
franska stjórnin lagði þegar fyrir
þingið frv. til laga er veita
henni heimild til þess að verja
100 miljónum franka til hveiti-
kaupa.
Spánska veikin
geysar í Englandi.
Upp úr nýárinu fór spánska
veikin að magnast i Englandi
og dóu 561 úr henni á einnm
mánuði. Þó er hún talin væg,
en með nokkuð öðru móti held-
ur en áður og standa læknar
ráðþrota gagnvart henni. Eru
það aðallega eftirköst hennar,
sem drepa menn. Legst hún þá
í lungun. Það þykir einkenni-
legt við hana, að sjúklingar fá
eymsli í hörund og hársrætur
og kveður svo ramt að þessu,
að menn þola ekki að greiða
sér. Fólk legst hrönnum saman
og eru sjúkrahús sumstaðar svo
full, að það hefir orðið að taka
anddyri þeirra fyrir sjúkrastofur.
í einum bæ lá 8. hver maður í
veikinni um síðustu mánaðamót.
Borgin.
SjáTarfölI. Síðdegisflæður kl. 3,45.
Árdegisháflæður kl. 4,10 í nótt.
Ligsby, enskur botnvörpungur
kom hingað í gær til þéss að fá sér
kol og aðgerð á gufuröri. Hafði lítr
inn afla.
Björkhang, norska skipið, sem
skemdist við hafnarbakkann og hafði
síöan nær rekið upp í klettana fyr-
ir framan Kveldúlf, er nú komið
upp i fjöru til eftirlits og viögerðar.
Slökkvilið Keykjavfknr efnir til
danzleiks í Hotel ísland síðasta dag
pessa mánaöar, (annan laugardag).
Botnia fór héðan i gærkvöldi.
Auk farpega sem áður er getið,
tóku pessir sér far með skipinu:
Ungfrú Kristjana Blöndahl, Tarp
Pedersen, ritari sendiherra Dana,
frú Meyer, frú Kristin Jónsson.
Græðir heitir útgerðarfélagið, sem
á Hafstein, hinn nýja botnvörpung,
er kom í gær. Annað botnvörpuskip
hafa Isflrðingar keypt og er paö
væntanlegt á hverri stundu. Félagið,
sem að pví stendur heitir Togara-
félag ísfirðinga.
Látin er hér í bæ frú Alfífa Tóm-
dóttir, móðir Tómasar Jónssonar
kaupmanns. Hún verður greftruð
i dag.
Leitinni að botnvörpungunum er
nú lokið og fóru leitarskipin aö
tinast hingað i gær. Var léitað á 18
púsund sjómílna svæði, og urðu
skipin hvergi neins vör. Sum þeirra
fóru beint suður á banka til fiskjar
að lokinni leit. — Á »Leifi hepna«
voru 32 menn, en á »F. M. Robert-
son« 35, par af 29 íslendingar.
8eus, norskt flutningaskip, lagði
á stað frá Englandi 26. jan. með
kolafarm hingað, en síðan heflr
ekkert tii pess spurzt.
Krap er allmikiö niður á hafnar-
bakkanum og pung færð fyrir bif-
reiðar og vagna. í gær voru nokkrir
menn aö moka krapinu burtu með
skóflum. Gætu þeir eflaust haft at-
vinnu við það fram á vor, ef sams-
konar tið héldist og nú er. Hvers
vegna er ekki heldur notaður snjó-
plógur til verksins, ef pað á að
vinnast á annað borð?
Af veiðnm komu í nótt Menja með
rúm 90 föt lifrar og Mai með 100 föt.
‘JO. fébr. ÍDaíjðlað. 17. tölubl.
. I Arni Óla.
Ritstjórn: j g. Kr. Guðmundsson.
Afgreiðsla l Lækjartorg 2.
skrifstofa j Sími 744.
Ritstjórn til viðtals kl. 1—3 síðd.
Prentsmiðjan Gutenberg hf.
Auglýsingaverð: Kr. 1.50 pr. cm.
Blaðverð: 10 aura eint.
Austræni páfastóliinn.
Deiluefni Grikkja og Tyrkja.
Tyrkir og Grikkir höfðu kom-
ið sér saman um það að hafa
»þegnaskifti«, þannig, að Tyrkir
í Grikklandi og Grikkir í Tyrk-
landi skyldi sendir heim. Meðal
þeirra, sem þá var vísað úr
landi í Tyrklandi, var hinn
grísk-kaþólski páfi Constantine
VI, sem nú sat á hinum aust-
ræna páfastóli i Miklagarði.
Vakti þetta hina megnustu
gremju í Grikklandi. Mótmæltu
þeir því harðlega, að páfinn
væri ger landrækur og kváðust
skoða þá ákvörðun Tyrkja sem
fjandskaparbragð við sig. Síðan
sneru þeir sér til sendiherra
Frakka, Englendinga og Ítalíu
og báðu þá að skerast í leik-
inn. Sendu sendiherrarnir stjórn
Tyrkja i Angora boð og báðu
hana að láta páfann hafa land-
vist i Miklagarði. En Tyrkir
svöruði því, að þeir teldi slíkt
slettirekuskap, því að þetta væri
tyrkneskt innanrikismál, er öðr-
um kæmi ekki við. Síðan var
páfinn sendur úr landi og því
næst 3 grískir erkibiskupar. Urðu
Grikkir nú æfir, og heimtaði
lýðurinn að Tyrkjum væri sagt
strið á hendur. Voru æsingar
svo miklar, að skríllipn i Aþenu-
borg safnaðist saman og ætlaði
að taka sendiherra Tyrkja af
lífi án dóms og laga, en herlið
stjórnarinnar gat þó komið í
veg fyrir það.
Pafinn fór til Saloniki og
dvelur þar. Hefir hann sent
hinni heilögu grísk-kaþóisku
kirkju umkvartanir um með-
ferðina á sér.