Dagblað

Tölublað

Dagblað - 20.03.1925, Blaðsíða 1

Dagblað - 20.03.1925, Blaðsíða 1
Föstudag 20. marz 1925. I. árgangur. 41 tölublað. ESS ber að geta, sem gert er. Dagblaðið hyggur, að það sé fremri boðberi til manna, beldur en tímarit, og að orð þess nái fleiri eyrum en orð þeirra manna, er þar vekja máls á einhverju. Og vegna þess, að i Búuaðarritinu síðasta er grein, sem jafnvel tekur fram »Markens ílröde«, er margir kannast við hér, ekki kannske að skáldskap, heldur að hugsjón og hvöt, — leyfir blaðið sér að birta hana. Og um leið vill það óska þess, að margir væri synir og dætur íslands slíkir, sem greinin getur um. „Kötlustaðlr. Beir, sem hafa verið í Vatns- ■dal seinni hluta liðinnar aldar, hljóta að muna eftir niðurníðslu þessa býlis. Engum öðrum en fátæklingum datt í hug, að reyna að bjargast þar, eða þeim sem áttu ekki annars úrkosta. Bæj- arhúsin voru öll eins og þar sem verst gerðist. T. d. var baðstofan grafln í jörð að mestu, 7 ál. á lengd og 38/* al. á breidd. Þar vantaði bæði birtu og loft. önnur hús voru að sama skapi. Stóð svo frain um aldamótin «ða til 1901. Þá fluttust þangað hjónin Jón Baldvinsson og Ingi- björg Kristmundsdóttir kona hans. Jón er fæddur 28. júní 1866 á Síðu í Refasveit. Ólst hann upp þar út frá fram yfir ferm- ingu, en fór þá að Hvammi og var þar í 4 ár; var svo á ýms- um stöðum í vinnumensku, og þar á meðal á Söndum hjá fyrirmyndar bóndanum Jóni Skúlasyni. 1893 kvæntist hann áðurnefndri konu. Hún er af góðum ættum á Vatnsnesi. 1899 fluttust þau að Hvammi og voru þar í 2 ár — hún með 3 börn í húsmensku. Þeim fór sem flestum öðrum, að þau langaði til að stofna heimili af ^igin ramleik. I*að var þó ekki ^rennilegt, því bústofninn var aðeins 6 ær, 7 gemlingar, 2 hross og lítilfjörleg búsáhöld; skuldlaust var það þó ekki. — Kötlustaði fengu þau til ábúðar, með því skilyrði, að byggja þar upp: baðstofu, búr og eldhús. Strax um vorið varð Jón að kaupa kú í skuld o. fl. Þegar litið er á þessar ástæð- ur, er auðfundið, að mikið áræði þurfti til þess að skapa sér heim- ili á þessu niðurnídda koti. Bæði voru hjónin að vísu á góðum aldri og vel vinnandi, en höfðu á lítið annað að treysta en mátt sinn og megin; þau lágu heldur ekki á liði sínu. Jón byrjaði strax á bæjarbygg- ingunni. Eftir 1 ár fékk hann 10 kr. linun á landskuld árlega, en það var fremur viðurkenn- ing heldur en það munaði nokkru upp í allan byggingarkostnað- inn. í 8 ár bjuggu þessi hjón á Kötlustöðum. Konan lagði, með- al annars, á sig að taka fóstur- börn — auk sinna eigin barna . — til þess að hafa styrk af meðgjöfinni; staðurinn þótti svo góður fyrir börn, að sókt var eftir honum, og svo er enn. Við húsagerðina kom það sér vel, að bóndinn var smiður af náttúru og hagsýnn við alla vinnu; vann hann að húsabót- um af svo miklu kappi, að áð- ur en 8 árin voru liðin, hafði hann ekki einungis bygt þau hús, sem áskilið var, heldur miklu meira. Baðstofan er 6x8 ál., björt og loftgóð, með áföstu eldavélarhúsi og inngangi, búr, eldhús og geymsluhús; fjós yfir 4 nautgripi, með hlöðu við; góð fjárhús yfir 60 fjár, hesthús yfir 7 hross — og smiðja. Ennfrem- ur gróf hann þar brunn. Það virðist ekki liklegt, að einyrkinn, sem afkastaði þessu — auk hinna sjálfsögðu heim- ilisstarfa — hafi haft tíma til að vinna að jarðabótum jafn- framt, og þó reyndist það svo. Hann sléttaði í túni 850 fer- faðma, plægði og herfaði til túnauka, hátt upp í dagsláttu, girti túnið og nokkuð meira með gripagirðing. Töðufallið hafði vaxið a. m. k. um hluta.« Hér þarf engra athugasemda við En til áréttingar — ef henn- ar þyrfti — vill blaðið bæta við þessum niðurlagsorðum: »Gott er þá, er slík æfintýr gerast með þjóð vorri!« ■ Þing-tíðindi. r Urslit þingmála. Samþykt stjórnarfrnmvðrp. 1. Um nauðasamninga. (Spari- sjóður Árnessýslu). 2. Um innl. skiftimynt. 3. Breyting á póstlögum. 5. Lán úr Bjargráðasjóði. Feld stjórnarfrnmvörp. 1. Um skemtanaskatt og þjóð- leikhús. 2. Um sóknargjöld. Feld þingmannafrnmvörp. 1. Um að banna næturvinnn við skip í Rvík og Hafnarfirði. 2. Um einkasölu á saltfiski. 3. Um friðun rjúpna. 4. —5. Breyt. á vegalögum (Suð- urlandsvegur og Norðurlands- vegur. Hinar vegalagabreyt- ingarnar 5 teknar aftur). Samþykt þingmannafrnmvörp. 1. Um eignarnám á landspildu á Grund í Ytri-Reistarárlandi í Eyjafirði. Yísað til Btjórnarinnar. 1. Till. til þál; um að rannsaka orðabókarstarfsemi Jóhannes- ar L. L. Jóhannssonar og Þórbergs Þórðarsonar.

x

Dagblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblað
https://timarit.is/publication/605

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.