Dagblað - 28.04.1925, Síða 2
2
DAGBLAÐ
Skaptfellings kr. 15000, til Rang-
ársandsbáts kr. 1200, til Gríms-
eyjarferða kr. 1200, til Rauða-
sandsbáts kr. 400, til Lagarfijóts-
báts kr. 500, til Hvalfjarðarbáts
kr. 700, til Hornafjarðarbáts kr.
4000, til Rangárvalla- og Skafta-
fellssýslna, til að styrkja beina
viðkomu millilandaskipa kr.
3000. Alls kr. 83000.
Síðan þessi ákvörðun var
tekin, hafa fjárlögin verið til
meðferðar í Nd., og hafa þar
bæzt við kr. 4000, aðallega með
tilliti til Hornafjarðarbáts, eftir
því sem formaður fjárveitinga-
nefndar Nd. hefir tjáð nefndinni.
Nefndin telur vafasamt, hvort
rétt sé að Hornafjarðarbátur fái
einn aJIa þessa hækkun, en vill
hinsvegar ekki leggjast á móti
þessari 4000 kr. viðbót við
heildarupphæðina, en álítur rétt,
að af henni sé þá styrktir þeir
bátar, sem mest hafa styrks
þörf, t. d. Skaftfellingur, Horna-
fjarðarbátur og ef til vill Breiða-
fjarðarbátur.
Nefndin telur rétt að láta þess
getið, að hún telur það ekki
framkvæmanlegt, að bátur sá,
sem póstinn flytur milli Reykja-
víkur og Borgarness og annast
á ferðir allar um Faxaflóa, hafi
lfka á hendi. ferðir á Breiðafirði.
Aílaskýrsla.
Fiskafii á ölln landinu 15/í 1925.
Vestmannaeyjar . . . 17200 skpd.
Stokkseyri og Eyrarb. . 2480 —
f’orlákshöfn..............531 —
Grindavík............... 1954 —
Sandgerði................1515 —'
Garður................... 300 —
Keflavik................ 4500 —
Vatnsleysustr. og Vogar . 244 —
Hafnarfj.: botnvörpungar 16232 —
— : önnur skip . 1200 —
Rvik: botnvörpungar . 35601 —
— : önnur skip . . . 1025 —
Akranes................. 1382 —
Sandur og Ólafsvík . . 700 —
Sunnlendingafj. samt. . 84864 skpd.
Vestfirðingafjórðungur . 901 —
Vestfirskir bátar á Suð-
urlandi ...... 5100 —
Austfirðingafjórðungur . 1410 —
92275 skpd'
Samkvæmt skýrslu Fiskifélags ís-
lands 25. apríl í fyrra, var afiinn þá
á öllu landinu 88465 skpd.'
Úrslit kosninganna
í Þýzkalandi.
Hindenburg, hershöfðinginn
gamli, hefir samkvæmt skeytum
sem hingað bárust í gær verið
kosinn forseti Þýzkalands, með
900,000 atkv. meirihluta. Fékk
hann röskva 14V2 miljón atkv.
Næstur honum varð Marx.
Borgin.
Sjávarföll. Síðdegisháflæður eru í
kvöld kl. 8,58. Ardegisháflæður kl.
9,20 í fyrramálið.
Nætnrlæknir er í nótt Jón Hj. Sig-
urðsson, Laugaveg 40. Sími 179.
Næturvörðnr er í Laugavegs-
Apóteki.
Botnvörpnngarnir. Inn hafa komið
undanfarna daga. Ása með 85 tn.,
Snorri goði með 77 tn., Egill Skalla-
grimsson með 117 tn., Jón forseti
með 48 tn. Otur og Hilmir komu
báðir inn með bilaðar vindur eftir
mjög stutta útivist. Var Hilmir með
26 tn. ög fór frá nógum afla.
Menja kom í gær með 56 tn.,
Gulltoppur með 74 tn. og Austri
til Viðeyjar með 36 tn. Kom inn
vegna vindubilunar.
Uppboð er haldið i dag í Bárunni
á innanstokksmunum og bókum til-
heyrandi dánarbúi Dr. Helga Jóns-
sonar. Verða par seldar margar fá-
gætar fræðibækur.
Norsk blöð herma að konungur
vor muni hafa ákveðið að fara
skemtiför til íslands í sumar og
stunda hér laxveiðar og verði þetta
ekki opinber heimsókn.
Peningar:
Sterl. pd.............. 26,90
Danskar kr............. 103,66
Norskar kr.............. 91,43
Sænskar kr............. 150,77
Dollar kr................ 5,60
Víðavangshlanp drengja fór fram
á sunnudaginn og varð Porsteinn
Jósefsson (úr K. R,) fyrstur aö
marki. Næstur varð Ingi S. Árdal
(Á) og þriðji Ásm. Ásmundsson (K.
R.). Knattspyrnufélag Reykjavíkur
hafði flesta vinninga, 27 stig, og
vann bikarinn, sem um var kept í
3. sinn og til fullrar eignar.
Gullfoss er i Vestmannaeyjum í
dag og er væntanlegur hingað í
fyrramálið.
IÞagSlað.
I Arni Óla.
Ritstjórn: | q Kr Guðmundsson.
Afgreiðslal Lækjartorg 2.
skrifstofa J Sími 744.
Ritstjórn til viðtals kl. 1—3 síðd.
Prentsmiðjan Gutenberg hf.
Auglýsingaverð: Kr. 1.50 pr. cm.
Blaðverð: 10 aura eint.
Áskriftargjald kr. 1,50 á mánuði.
Herpiiiótaveiöi.
í Dagbl. frá 26. apríl er prent-
að nefndarálit sjávarútvegsnefnd-
ar Nd. um frv. til laga um af-
nám laga nr. 30, 20. júfií 1923,
um breyting á lögum nr. 56,
10. nóv. 1913.
í nefndaráliti þessu gætir
nokkurs misskilnings, sem ég
vildi mega biðja Dagblaðið um
að leiðrétta, og hefir framsögu-
maður málsins, Sigurjón Jóns-
son, lofað að leiðrétta það við
framsögu þess í Nd.
í nefndarálitinu stendur: »Það
eitt þótti forseta Fiskifélagsins
að þessu frumvarpi, að það
gengi ekki nógu langt, og beindi
hann ákveðnum tilmælum til
nefndarinnar um að fá heimild-
arlögin frá 1913 einnig úr gildi
numin«.
Hér kennir talsverðs misskiln-
ings. Áður en frumvarp það,
sem um ræðir, kom fram í Nd.,
skrifaði Fiskifél. íslands stjórn-
arráðinu um að samþykkja ekki
frekari höft fyrir atvinnu manna
með herpinótaveiði á Skagafirði
en þær, sem gerðar eru með
samþykt nr. 53, 2. júlí 1923,
og að endurskoða lögin um
fiskiveiðasamþyktir í heild sinni,
og er það samkvæmt samþykt
frá síðasta Fiskiþingi.
Þessari sömu skoðun hélt ég
fram á fundi, sem ég var mætt-
ur á með sjávarútvegsnefnd Nd.
og geta allir séð að það er
nokkuð annað en að nema all-
ar heimildir fyrir fiskiveiðasam-
þyktir úr gildi.
Að vísu skal ég játa það, að
flestar þær fiskiveiðasamþyktir,
sem ég þekki til, hafa gefist illa,
enda fiestar fallið af sjálfu sér
eftir fá ár, en ég held því jafn-
framt fram, að svo geti hagað
til á ýmsum stöðum, að fiski-
veiðasamþyktir séu ekki aðeins