Dagblað

Tölublað

Dagblað - 07.05.1925, Blaðsíða 2

Dagblað - 07.05.1925, Blaðsíða 2
2 DAGBLAÐ lýsti ítarlega þeim ósýnilegu lækningum, sem kona sú hefði orðið aðnjótandi sem hér ætti hlut að máli. Hefði hún fallið í stjarfaástand (trance) og fundið að um hana hafi verið farið höndum og hún læknuð. Las ræðumaður upp vottorð fjögra manna um ástand konunnar meðan á lækningunni stóð, eitt frá henni sjálfri annað frá manni hennar og tvö frá öðrum viðstöddum. far kom einnig fram, að önn- ur kona, Guðrún að nafni, hafði hlotið bráða lækningu með und- ursamlegum hætti. Hafði hún verið veik 1 fæti og gengið við hækjur, en nú gengur hún staf- laus um og kennir sér hvergi meins. Lækning þessi hafði átt sér stað fyrir milligöngu þessar- ar sömu ósýnilegu veru, sem kallaði sig Friðrik, og hafði hann tekið því fram, að ekki mætti jafnframt leita jarðneskr- ar læknisaðstoðar. Kristján Linnet sýslumaður sagði frá sinni reynslu í þessum efnum, og því sem hann hefði fræðst um slíkar lækningar. Að lokum talaði Páll Kolka læknir og kom fram með þá fyrirspurn, hvort þeir, er á slik- ar lækningar tryðu, vildu taka á sig þá ábyrgð, að leita ekki læknis er um alvarlegan sjúk- dóm væri að ræða. Fór fundurinn hið bezta fram og var troðfult hús, en ekki er þess getið, hvort allir viðstaddir hafi farið sannfærðir um sann- leiksgildi þessara merkilegu lækninga. Ping’tíðindi. Einkasala á áfengi. Meiri hl. fjárhagsnefndar Nd. kemur með eftirfarandi álit um frnmv,: Nefndin hefir athugað mál þettg vandlega og rætt það á mörgum fundum, og hefir meiri hluti nefndarinnar komist að þeirri niðurstöðu, að ekki sé rétt að gera það að lögum. Það virðast vera allar horfur á því, að tóbakseinkasala ríkis- ins verði lögð niður frá næstu áramótum. Eru því enn meiri líkur til þess nú, að samkomu- lag náist um að sameina vín- einkasöluna og landsverslun en í fyrra, er það var felt í efri deild. Sér meiri hlutinn því ekki tii neins að brydda upp á því nú. Á öllum vínanda, sem til landsins er fluttur, er nú þegar mjög hár tollur, að gengisvið- auka meðtöldum, kr. 6,25 á lítra; virðist meiri hlutanum, með tilliti til þess, að mjög mikið af þessum vínanda er notað til lyfjatilbúnings og ann- ara nauðsynja, ekki á það bæt- andi. Nefndin hefir aflað sér upplýsinga um það, hver áhrif sú verðhækkun á vínanda, sem af frv. leiddi, ef það yrði að lögum, mundi bafa á verðlag lyfja þeirra, sem vínandi ef notaður í, og komist að raun um það, að verð slíkra lyfja mundi þá hækka um alt að 40o/o. Hins vegar hefir nefndin ekki getað fundið ráð til þess að greina í þessu efni á milli vínanda til lyfjatilbúnings og til annarar notkunar. En þó að vafalaust sé um allmikla mis- notkun fyfjaáfengis að ræða, telur meiri hluti nefndarinnar ekki fært að stofna til svo stór- feldrar verðhækkunar á nauð- synlegum lyfjum, þó að með því mætti takast að hamla að einhverju leyti þessari misnotk- un, og jafnframt afla rfkissjóði nokkurra tekna. Til þess að hamla misnotkun lyfjaáfengis mundi líka vafalaust vænlegra til góðs árangurs að setja strang- ari reglur um áfengislyfsöluna. Pví til stuðnings má benda á það, að á þann hátt hefir Norð- mönnum tekist að draga stór- kostlega úr áfengissölu lyfja- búðanna. Sveinn Ólafsson kemur með annað álit. Edinborg er nú risin úr rústum og er nærri fullgerð að utan. Húsið er 32 metrar á lengd og 11 á breidd, og 3 hæðir yfir kjallara. Á neöstu hæðinni verða eingöngu búðir, en skrifstofur á efri hæðunum. Verður húsið eitt af peim myndarlegustu í bænum. ^DagBíaé. I Arni Óla. Ritstjórn: | g. Kr. Guðmundsson. Afgreiðsla t Lækjartorg 2. skrifstofa J Sími 744. Ritstjórn til viðtals kl. 1—3 síðd. Prentsmiðjan Gutenberg hf. Auglýsingaverð: Kr. 1.50 pr. cm. Blaðverð: 10 aura eint. Áskriftargjald kr. 1,50 á mánuði. cTSona gullgrqfarans. Sjónleikur í 6 þáttum. — Aðalhlutverk leikur: Pauline Frederick, sem ílestum mun minnis- stæð úr myndinni Frú X, er sýnd var hér fyrir nokkru. Leikur hennar er svo snildarlegur, að fáar leikkonur komast lengra í leiklist. Sýning kl. 9. Barnaglerangn hafa tapast. E. Cortes, Bragagötu 23. Borgin. Sjávarföll. Síðdegisháflæður eru kl. 4,40 í dag. Ardegisháflæður eru kl. 5 í fyrra málið. Nætnrlæknir i nótt er Gunn- laugur Einarsson Stýrimannastig 7. Simi 1693. Nætnrvörðnr er í Reykjavíkur- Apóteki. Mercur fer héðan í kvöld áleiðis til Bergen um Vestmannaeyjar. Ólall Sveinssyni frá Sandi, hefir verið veitt vitavarðarstaðan á Reykjanesi í stað Vigfúsar Sigurðs- sonar Grænlandsfara, sem sagt hafði þeirri stöðu lausri. Botnvörpnngarnir. Af veiðum komu í morgun Apríl með 90 tn., Ása með 117 tn. og íslendingurinn, Á Strandakirkjn er stöðugt verið að heita og virðist það bera góðan árangur eftir upphæðum peim að dæma, sem taldar eru í Vísi svo að segja daglega. — En mundi ekki vera eins gott að heita á eitthvað

x

Dagblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblað
https://timarit.is/publication/605

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.