Dagblað - 11.06.1925, Side 2
2
DAGBLAÐ
Street í Edinborg. Þar mega
menn ganga eftir vild og margir
sitja þar og liggja á grasinu.
En uppi meðfram götunni sjálfri
eru blómum skrýddir gróðrar-
reitir og grasfletir. Út á þá stig-
ur enginn maður. Reynslan er,
í stuttu máli alstaðar sú, að
það sem hið opinbera sýnir
umhyggju og umhirðu, þarf
varla að verja til lengdar, menn
láta það í friði. í byrjun þarf
ef til vill gæzlu á meðan menn
eru að læra hvað á að vera
friðheilagt, og reglurnar renna
öllum í merg og bein, svo að
hver fyrirverður sig fyrir öðr-
um að brjóta þær. Enda er
heldur engin ástæða til þess að
skemma gróðurreiti nema ef
vera skyldi helst þar, sem smá-
munasemin og meinbægnin vill
banna mönnum að geta nokk-
ursstaðar stigið á grasigróinn
blett.
Hér í bænum vantar ekki
græna bletti og tún víðsvegar,
en alstaðar er verið að rækta
kúgresi og stranglega bannað að
stíga þar fæti! Auðvitað verð-
ur það ekki af einstaklingum
heimtað, að þeir leyfi umferð
um tún sín. — En er ekki
hreint hlægilegt að bærinn skuli
ekki sjálfur eiga ráð á nokkr-
um blettum, sem megi vera al-
menningi frjálsir? Stjórnarráðið
leigir Pétri og Páli til skiftis
Arnarhól fyrir nokkrar krónur
á ári til að hirða af því fáeina
töðubagga. Og vegná þessara
töðubagga verður hagur almenn-
ings að lúta. — Auðvitað mundi
landsstjórnin alveg eins leigja
bænum túnið eins og öðrum
ef bæjarstjórnin færi fram á
það.
Það þarf að girða Arnarhól
smekklega, þessi spýtnagirðing
er til skammar svona rétt í miðj-
um bænum. Nokkra gangstígi
þarf að gera, og túnið á ekki
að vera lengur lokað land.
Margir borgarar.
Gullfoss á að fara héðan á morg-
un til útlanda. Meðal farpega: Jón
Magnússon forsætisráðherra, Gunn-
laugur Claessen læknir, síra Jóhann
Porkelsson og dóttir hans, Klemens
Jónsson alþm. og frú, ungfrú Sig-
ríður Zoéga, frú Álfheiður Briem,
Pórarinn OJgeirsson skipstj. o. fl.
19. j úní.
Sízt eru konur þær, sem
kosnar hafa verið af ýmsum
félögum hér í bæ til að standa
fyrir hátíðahaldi þann 19. júní,
öfundsverðar af þeirri stöðu.
En fleira verður að gera en
gott þykir, og sá dagur er svo
mikils virði fyrir íslendinga, að
enginn starfshæfur maður má
láta undir höfuð leggjast að
beita starfskröftum sinum eins
og hver og einn getur í té látið,
til þess að dagurinn geti orðið
sem ánægjulegastur fyrir unga
sem gamla, og um leið arðber-
andi fyrir landsspítalamálið.
Til þess að það geti orðið,
verða konurnar, sem fyrir deg-
inum standa, að njóta velvildar
frá þeim, sem eitthvað geta af
mörkum látið, því eins og kunn-
ugt er, er alt efni í kökur og
annað, sem til veitinganna þarfn-
ast, gefið af gjafmildum gefend-
um, því að öðrum kosti myndi
arður dagsins verða æði litill.
Ég hefi heyrt, að landsstjórn-
in hafi ákveðið að lána Arnar-
hólstúnið til skemtunarhaldsins,
og að á því eigi að tjalda, og
þar eigi allar veitingar og
skemtanir fram að fara, inni í
tjöldum og undir bláum og ber-
um himni.
Staður þessi er einn af dýr-
legustu blettum, sem völ er á í
þessum bæ, bæði hvað útsýni
snertir og eins hitt, að honum
er svo vel í sveit komið, ef ég
mætti svo að kveða, að þangað
má segja að allir, sem vetlingi
valda, geti komið.
Sagt er, að nefndarkonurnar
leggi á stað í dag, til að
safna gjöfum, og má fyllilega
treysta því, að gjafmildi kaup-
manna og annara verði nú engu
síður en oft áður Reykvíking-
um til sóma og málefninu til
blessunar.
Kona úr sveit.
Peningar:
Sterl. pd................ 26,25
Danskar kr.............. 101,59
Norskar kr.............. 90,97
Sænskar kr.............. 144,66
Dollar kr............... 5,413/*
HÞagBlað.
Arni Óla.
Ritstjórn: Gi Kr, Guðmundsson.
Afgreiösla Lækjartorg 2.
skrifstofa Sími 744.
Ritstjórn til viðtals kl. 1—3 síöd.
Prentsmiðjan Gutenberg hf.
Auglýsingaverö: Kr. 1.50 pr. cm.
Blaðverð: 10 aura eint.
Áskriftargjald kr. 1,50 á mánuöi.
DQP Rakarastofa Einars J.
Jónssonar er á Laugaveg 20 B
Inngangur frá Klapparstig.
1. fl. BIFRJGIÐ tíl leigu.
Sími 341.
Borgin.
Sjávarföll. Síðdegisháflæður kl.
9,12. Árdegisháflæður kl. 9,40 í fyrra-
málið.
Nætnrlæknir i nótt er Guðmundur
Guðíinnsson, Hverfisgötu 35. Simi
644.
Næturvörðnr í Laugavegs Apóteki.
8. vika snmars hefst í dag.
Tíðarfnr. Hiti í morgun 7—12 stig
og suðlæg og vestlæg átt um alt
land. í Pórshöfn 10 st., Jan Mayen
3 st., Kaupmannahöfn 20 st., Utsire
12 stig og eins í Leirvík, en lfl st.
í Tynemouth. 10 st. hiti var í Ang-
magsalik í gær. Loftvog víðast stöð-
ug eða stígandi hér. Búist við sömu
átt, eða enn suðlægari og úrkomu
á Suðurlandi.
75 ára afmæli eiga þeir á morgun
bræðumir sira Brynjólfur á Ólafs-
völlum og síra Pétur á Kálfafells-
stað.
Jarðarför Stefáns Stefánssonar frá
Fagraskógi, fer fram í dag.
Kyndaraskortur. Pegar i vetur tók
að bera á því, að örðugra var en
áður, að ná í vana kyndara á botn-
vörpuskipin og hefir þetta ágerst
svo, að oft hefir legið við sjálft aö
skip tefðust í höfn vegna þessa.
Ástæðan mun vera sú, að kyndar-
ar, sem hafa einna versta vinnu á
skipi, bera ekki jafnt frá borði og
aðrir sjómenn og vanir kyndarar
taka því heldur þann kost, að ráð-
ast fyrir lægsta hássetakaup, eða
minna i landi.
Pór björgunarskipið,/ fór héðan í
gær til strandgæzlu.