Dagblað

Ataaseq assigiiaat ilaat

Dagblað - 17.06.1925, Qupperneq 1

Dagblað - 17.06.1925, Qupperneq 1
FÓLK, sem fer héðan í sumar- frí, leggur vanalega leið sína til Þingvalla og dvelur þar meðan leyfið endist. Það er að vísu svo, að Þingvöllur er fræg- ur og fagur staður, en tæplega mun hann þó vera neitt »hress- ingarhæli« fyrir fólk yfirleitt. Og þeir, sem yfirgefa Reykjavík til þess að losna við ys og þys bæjarlífsins og njóta hvíldar í skauti náttúrunnar, finna tæp- lega þá hvíld á Þingvöllum. Þeir verða að fara eitthvað annað. Á síðari árum hafa ýmsir Ungir menn varið sumarfríi sínu til þess að ferðast, ganga á Qöll og kanna ókunna stigu. Það er ágætt, en hentar þó ekki öllum. Aðrir fara til veiða og þeir hafa líka gagn og gaman af sumar- fríi sínu. Yfirleitt er það svo, að mönnum leiðist ef þeir hafa ekkert fyrir stafni. Og þess vegna fer svo um marga sumargesti á Þingvöllum, að þeim leiðist, þrátt fyrir fegurð staðarins og öli þægindi, og koma jafnvel þreyttari heim en þeir fóru. Mesta tilbreytingin, fyrir þá, sem leita sér hvíldar frá frið- leysi borgarinnar, er að fara út í guðs græna náttúru og hafast þar við fjarri öllum skarkala lífsins — gerast útilegumenn. Og fátt er skemtilegra heldur en það, að leggjast þannig út, sofa í tjaldi og njóta hreina loftsins. En þar fer eins og annars stað- — menn verða að hafa eitt- þvað fyrir stafni til þess að þeim Seti liðið vel. Hvað væri þá eðlilegra en að reyna að slá ^úargar flugur í einu höggi, skemta sér, hvílast, njóta sólar °g sumars og vinna eitthvað til Ssgns um leið? Eg hefi oft verið að hugsa um Evernig ár því geti staðið, að Eeykvíkingar fara ekki í grasa- ^eiði f sumarfríi sínu. Það geta ^eði karlar og konur gert. Fyrr- úm voru það einhverjir mestu öátíðardagar sveitafólksins þegar farið var á grasafjall. Það var jafnvel skemtilegra en að fara í göngur. Og var þó ekki eins mikil tilbreyting í því fyrir sveitafólk eins og vera mundi fyrir Reykvíkinga. Mér er sagt, að nóg grös sé á Mosfellsheiði víða, og austur í Hengli. Þar mundi sérstaklega ánægjulegt fyrir fólk að dvelja í sumarleyfi sínu, þaðan er dá- samlega fagurt útsýni, og þar er mikilúðugt landslag og marg- breytilegt, þar eru heitir hverir og þar eru margir góðir tjald- staðir, sem bíða eftir því að ein- hverjir vilji koma þangað. Krossgátur þykja nú um allan heim ein- hver skemtilegasta og bezta dægradvöl sem til er, en eru óþektar hjer að þessu. í dag flytur Dagblaðið fyrstu kross- gátuna og er' hún afarauðráðin. Er það með vilja gert til þess, að menn skilji betur leikinn. í hverjum hvitum reit er einn stafur og mynda þeir orð, hvort sem lesið er þvert eða niður. Svörtu reitirnir takmarka orðin. Þessi orð eiga menn nú ,að finna, með tilstyrk þeirrar leið- beiningar, er gátunni fylgir. Þau orð, sem í leiðbeiningunni standa, benda á hver sé þýðing þeirra orða, sem á að finna. — Þegar menn hafa fundið eitt- hvert orð, rita þeir það á reit- ana og halda svo áfram uns hver reitur er útfyltur. Þeir, sem senda rétta ráðn- ingu, að þessari gátu til Dag- blaðsins, fá blaðið ókeypis til júlíioka og þurfa leiðrétt- ingar að vera komnar fyrir sunnudag og ritaðar í töflu þá, sem í blaðinu er. Síðar koma erfiðari gátur og verða þá verð- laun veitt, þeim er ráðið geta. Menn munu sanna, að það borgar sig að fást við að leysa þessar gátur. Erlendis er fólk svo sólgið í þetta, að furðu sæt- ir. T. d. varð að loka British Museuih fyrir þeim, sem komu þangað í þeim erindagerðum að fá orðabækur að láni til aðstoð- ar við krossgátnaráðningar, og nýjar orðabækur hafa verið gefnar út unnvörpum, bæði í Bandaríkjunum og Englandi, sem handbækur fyrir fólk, er vill ráða krossgátur, og seljast engar bækur eins vel um þess- ar mundir. Það er blátt áfram rifist um þær. Úrsögiiin. Hr. ritstjóri Guðm. Kr. Guð- mundsson. Eftirfarandi leiðréttingu leyfi eg mér hér með að biðja þig að birta í næsta tbl. Dagblaðsins. Laugardaginn 13. þ. m. stóð svohljóðandi klausa í Dagblaðinu: »Sigurbjörn Þorkelsson kaup- maður sagði Dagblaðinu upp í gær, vegna þess, að það flutti hlutlausa frásögn um aðalfund Sambands ísl. samvinnufélaga. Ilt er að gera svo öllum líki!« Jafnvel þó svo kunni að vera, að ekki sé ástæða til að leið- rétta það, sem í Dagblaðinu stendur, þá vil eg ekki láta þessu, sem um mig er sagt, ómótmælt að öllu. Tilefni til þessara ummæla blaðsins eru þau, að 12. þ. m. talaði eg við annan ritstjórann, hr. Guðm. Kr. Guðmundsson, í síma, og tilkynti honum þá, að eg vildi ekki kaupa Dagblaðið, vegna þess, að eg væri ekki ánægður með stefnu blaðsins í mörgum málum. Sagði eg þá, að eg gæti alt að einu keypt Tímann, sem væri myndar blað, og betur ritaður. Á sambandið mintist eg ekki, og þvi siður frétt þá, sem Dagblaðið flutti af aðalfundi þess, enda hafði eg

x

Dagblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblað
https://timarit.is/publication/605

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.