Dagblað - 21.08.1925, Qupperneq 2
2
DAGBLAÐ
Frá bæjarstjórnarfundL
Bæjarstjórnarfnndnr var hald-
inn í gærkvöld og voru 7 mál
á dagskrá. Fundurinn var frem-
ur fámennur, vantað 5 bæjar-
fulltr. á fundinn, en áheyrendur
urðu venju fremur margir.
Brnnahótarvirðingar nokk-
ura húsa voru samþyktar, um-
ræðulaust eins og venjulega.
Byggingarleyfl fyrir 7 hús
voru samþykt, af þeim er eitt
í nýbýlalandi bæjarins inn í
Sogamýri. Einnig voru nokkrar
breytingar á eldri húsum leyfðar.
Húsaflntningar. Fasteigna-
nefnd hafði lagt til að i haust
yrðu fluttir burtu skúrarnir sem
standa ofan vert við Bergþóru-
götu austan Vitastígs, og hafði
ráðið til, að þeir yrðu fluttir
suður á Grimsstaðaholt sunnan-
vert við fyrirhugaða Þrastargötu.
Flestir skúranna standa nú á
þeirri lóð sem nýji barnaskól-
inn á að verða, og verður e. t.
v. byrjað á undirbúningi bygg-
ingar hans í vetur, en áður
þurfa skúrarnir að vera farnir.
Voru þessir flutningar samþyktir
með þeirri breytingu, að þeir
yrðu ekki fluttir burtu fyr en í
vor, ef ekki væri fyrirsjáanlegt
að það kæmi að baga.
Skúrarnir hafa verið settir i
leyfisleysi þar sem þeir eru, en
samt vildi bæjarstjórnin hjálpa
til við flutning þeirra, og það
sem bærinn legði fram yrði
greitt af því fé, sem heimilt er að
nota til að ráða fram úr hús-
næðisvandræðum í bænum.
Málfræði. Út af umsókn frá
Inga Halldórssyni baka, um lög-
gildingu á mjólkurbúð á Vest-
urgötu 14, komust bæjarfulltrú-
arnir i hár saman út af því
hvort réttara væri að segja »lagt
fram erindi frá bakara Inga
Halldórssyni« eða 1. f. erindi frá
Inga Halldórssyni bakara. Vék
Ól. Fr. umræðunum inn á þessa
braut, með því að vita málið á
skjölum bæjarstjórnarinnar og
tók þetta sem dæmi. G. Cl. þótti
illa setja á Ólafl að fara að vita
þetta, því sjálfur skrifaði hann
ekki neitt sérlega rétt mál, og
fleiri lögðu þar orð í belg. Sner-
ust umræðurnar loks upp i ætt-
fræði og einkamál, og komust
ræðumenn að þeirri visindalegu
niðurstöðu að nokkuð margir
bæjarfulltrúanna væru danskrar
ættar eða dansk-tengdir.
Fví er svo greinilega sagt frá
þessu, að um þetta urðu mest-
ar umræður og virtust sumir
eiga ilt með að hætta þeim.
Aukadýrtíðaruppbót handa
starfsmönnum bæjarins var til
2. umr. og var samþykt um-
ræðulaust eins og hún var af-
greidd á siðasta bæjarstjórnar-
fundi.
Fundargerð fátkranefndar var
einnig samþ. umræðulaust.
Yíasalan í bænnm var siðasta
mál á dagskrá og var Þórður
Bjarnason málshefjandi. Eftir
nokkrar umræður var samþykt
með öllum atkvæðum gegn 1
svo hljóðandi tillaga frá Þ. Bj.:
»Bæjarstjórn Reykjavikur ákveð-
ur að kjósa 5 manna nefnd til
að athuga á hvern hátt er hægt
að draga' úr áfengisbölinu í
bænum«. í nefndina vork kosnir
Kn. Zimsen borgarstjóri, Pétur
Halldórsson, Sig. Jónsson, Ól.
Fr. og Þ. Sv.
Verður nánar sagt frá um-
ræðunum á morgun. *
Borgin.
Sjárnrföll. Síðdegisháflæður kl.
6,33 í dag. Árdegisháflæður kl. 6,50
í fyrramálið.
Nætnrlæknir í nótt er Ólafur
Gunnarsson, Laugaveg 16. Simi 272.
Nætnrvörðnr í Laugavegs Apóteki.
Tíðarfar. Lygnt var alstaöar í
morgun nema i Vestmannaeyjum
var snarpur vindur. Heitast var í
Stykkishólmi 11 stig, Reykjavík,
Grindavik, Hornaflrði, Akureyri og
ísaflröi 10 st. og jafn heitt í Fær-
eyjum. í Kaupraannahöfn 17 stig.
Angmagsalik 7 st. og á Jan Mayen
7 st. Loftvægislægð er suðvestan við
írland. Spáð er svipuðu veðri.
♦
Baldnr kom i nótt af veiðum meö
103 tn. lifrar.
ÍÞagGlað.
Bæjnrmálablað. Fréttablnð.
Ritstjóri: G. Kr. Guðmundsson,
Lækjartorg 2. Simar 744 og 445.
Viðtalstími kl. 5—7 siðd.
Afgreiðsla: Lækjartorg2. Simi 744.
Opin alla virka daga kl. 9—7.
Blaðverð 10 au. eint. Askriftar-
gjald kr. 1,50 á raánuöi.
Prentsmiðjan Gutenberg, h.f.
¥0fT Rakarastofá Einars J.
Jónssonar er á Laugaveg 20 B
Inngangur frá Klapparslfg.
Illjómleikar fjú Dóru Sigurðsson i
Nýja Bió i gærkvöld voru vel sóttir.
Söngur hennar var aðdáanlegur og
létu áheyrendur ánægju sina óspart
í ljósi.
Maðnr féll í gær út af flutninga-
bifreið um leið og hún beygði fyrir
hornið á Herkastalanum. Varð hann
undir bifreiðinni og fótbrotnaði, og
var strax fluttur á sjúkrahús.
Skipaferðir. Esja á að fara héðan
í fyrramálið i hringferð suður og
austur um land.
Gullfoss á að fara annað kvöld
til útlanda um Vestmannaeyjar.
Nova er væntanleg hingað á morg-
un norðan um land.
Willemoes kom í gær frá Eng-
landi með kol og steinolíu. Mjölnir
kom einnig hingað i gær.
í berjamó upp að Lögbergi fóru
um 60 börn í morgun, undir umsjá
ungfrú Puriðar Sigurðardóttur. Eru
petta börn sem verið hafa i sumar
á barnaleikvellinum í Vesturbænum,
og nokkur fleiri.
Gamalmennaskemtnn er ráðgert að
halda á sunnudaginn á túninu við
Grund. Verður hún með liku sniði
og undanfarin ár, og er pess vænst,
að bæjarbúar leggi lið sitt fram svo
hún geti orðið myndarleg og gamla
fólkinu sera ánægjulegust.
Listasafn Einars Jónsson er nú
daglega opið kl. 1—3, og er þar
ýmislegt að sjá frumlegt og sér-
kennilegt. Er pað cina safnið sem
nú er opið hér fyrir almenning,
annað en Alpýðubókasafnið.
Húsnsmiðir liafa nýskeð verið
sampyktir af byggingarnefnd peir
Sigmundur Halldórsson, Amtmanns-
stig 4, og Jón Th. Guðmannsson,
Bergstaðastræti 59.
Byggingin f Hnfnnrstrætl. Helga
Magnússyni & Co. heflr nú verið
leylt að bæta einni hæö ofan &
byggingu peirra við Hafnarstræti.
Ætlar byggingamefnd og bæjarstjórn