Dagblað

Eksemplar

Dagblað - 07.10.1925, Side 1

Dagblað - 07.10.1925, Side 1
Miðvikudag 7. október 1925. I. árgangur. 206 t EF gengið er út frá því sem sjálfsögðu, að járnbraut verði lögð frá Reykjavík austur í sveitir, er nauðsynlegt að taka tillit til, hvar aðalstöðin skuli vera, þegar ákvörðun er tekin um framtiðarskipulag bæjarins. Samvinnunefnd skipulagsnefnda iandsins og bæjarins heíir haft það atriði til athugunar núna undanfarið og virðist hafa kom- ist að ákveðinni niðurstöðu um hvar væntanleg járnbrautarstöð skuli vera. — Hafa þrír staðir einkum komið til álita: við Skúlagötu austan Ingólfsstrætis, sunnan við tjörnina neðan Sól- eyjargötu og í svonefndri Norð- urmýri austan við Hringbraut, og hefir nú samvinnunefndin á- kveðið að ætla járnbrautarstöð- inni stað þar í Norðurmýrinni. Þessi ákvörðun samvinnunefnd- ar hefir komið til álits bæjar- stjórnarinnar og virðist hún ekk- ert hafa haft við hana að athuga, þótt mörgum öðrum virðist margt mæla á móti, að þessi staður sé valinn. — Þegar endastöð flutningabraut- ar er ákveðinn staður, verður fyrst og fremst að gæta þess, að hann liggi vel við allri um- ferð og öll aðstaða sé sem hag- kvæmust. Hér verður einnig að taka tillit til hafnarinnar, að þangað sé sem styzt leið og greiðust, og munar það einkum rniklu um flutning allrar þunga- vöru. Með tilliti til þess er Norð- urmýrin mjög óheppilegur stað- ur og mjög illa valinn fyrir járn- brautarstöð, og hlýtur það að verða öllum ljóst við nánari at- hugun. Það má telja vafalaust, að hægt sé að velja járnbraut- urstöðinni annan belri stað en ínni i Norðurmýri, þar sem öll aðstöðuskilyrði eru betri og án þess að komi nokkuð að baga við seskilegt skipulag bæjarins. Flestum mun nú vera orðið 'jóst, að höfnin, eins og hún er nú, verður ekki fuílnægjandi til frambúðar. Er hún jafnvel strax orðin of lítil, og hafa þrengslin við hafnarbakkana oft orðið til mikilla óþæginda siðan útgerð- in færðist i aukana og siglingar hingað ukust að miklum mun, eins og verið hefir siðustu árin. Það er þvi fyrirsjáanlegt að höfn- ina verður að stækka að mikl- um mun áður en langt um líð- ur, eða gera aðra nýja höfn og og kemur þá til álita hvort velja skuli »ytri höfnina« til stækk- unarinnar, eða gera nýja höfn suður í Skerjafirði, og telur sá er þetta ritar, það miklu hag- kvæmari úrlausn málsins að gerð verði höfn þar suður frá. Nauðsynin á stærri og betri höfn mun flestum vera auðsæ og margt mælir með því, að ný -höfn komi í Skerjafirði og a. m. k. útgerðin flytjist þang- að suður eftir. Það er að öllu leyti hagkvæmara að bærinn vaxi fremur suður á við, en að hann teygist hér inn um holt og hæðir, en þá er höfn í Skerja- firði fyrsta skilyrðið til að svo geti orðið. — Þessi atriði þarf að taka til greina þegar vænt- anlegri járnbrautarstöð er valinn staður og þarf hann að að vera sem næst öðru hvoru hafnar- svæðinu. Nálægt hvorum staðn- um sem er, má velja heppileg- an stað fyrir járnbrautarstöð raeðan byggingar þrengja ekki meira að en nú er. En með tilliti til þess, að æskilegra væri að væntanleg Skerjafjarðarhöfn yrði notuð sem mest fyrir vöruflutningana, væri járnbrautarstöðin betur koinin þar suður frá, en hér við Norð- urhöfnina. — Þetta er svo mik- ilsvert atriði fyrir framtíðarhag- kvæmni bæjarins, að full ástæða er til að taka það til nákvæmr- ar athugunar og mætti þá vænta að fengist gæli betri úrlausn þessa ináls, en að velja væntan- legri járnbrautarstöð legurúm i Norðúrinýri. — Húsnæðismálið. Vegna fjölda tilmæla birtir Dagblaðið nú frumvarp það til nýrrar reglugerðar, sem Stefán Jóh. Stefánsson lögfræðingur hefir borið fram og lagt var fyrir sfðasta bæjarstjórnarfund, en komst þar ekki til umræðu. Eins og öllum er kunnugt, eru nú mikil húsnæðisvandræði í bænum, og geta menn nú at- hugað, í hverju þetta nýja frum- varp tekur gömlu húsaleiguiög- unum fram, og hversu líklegt það er til að geta að nokkru bælt úr húsnæðisvandræðunum. Frr. til reglugerðar um htU- næðl í Reykjavík. 1. gr. Bæjarstjórnin skipar 5 manna húsnæðisnefnd, er kosin skal með hlutfallskosningu á fyrsta fundi bæjarstjórnar, eftir að reglugerð þessi öðlast gildi. Einn nefndarmanna skal vera lögfræðingur og stjórna fundum nefndarinnar og framkvæmdum. Á sama hátt skal skipa vara- menn í nefndina. Nefndin kýs sér sjálf ritara, — Kostnaður við nefndina greiðist úr bæjarsjóði, þar á meðal þóknun til nefnd- armanna, er bæjarstjórn ákveð- ur. — Nefndarfundir eru því að- eins ályktunarfærir, að allir nefndarmenn séu á fundi og taki þátt í fundarstörfum, í forföllum aðalmanns, tekur varam. sæti hans í nefndinni. — Nefndin heldur gerðabók og færir þar úrskurði sína og ályktanir, og ástæður fyrir þeim. 2. gr. íbúð telst í reglugerð þéssari hvert það húsnæði, sem fólk býr í, hvort sem um eitt eða fleiri herbergi er að ræða, og má ekki taka slíkt hústiæði til annara afnota, né rifa það, eða gera óhæft til ibúðar, án leyfis húsnæðisnefndar, og getur hún ‘ búiídið leyfiö því skilyrði, að umráðamaður hússins sjái um jafnntikla aukningu á hús-

x

Dagblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblað
https://timarit.is/publication/605

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.