Dagblað

Ataaseq assigiiaat ilaat

Dagblað - 07.10.1925, Qupperneq 2

Dagblað - 07.10.1925, Qupperneq 2
2 DAGBLAÐ næði til ibúðar annarsstaðar i bænum. Ákvæði reglugerðar þess- arar ná. ekki tii ibúða i opin- beruin gfStihúsum. ^B.^r. Hhupþað húsnæði, sem ^-ætlað ejJp íbúðar, og eigandi ifriiráðHmaður ekki notar sjálfur fyrir sig og fjölskyldu sina, skal leigt öðrum. — Eigi má segja leigutaka ibúðar upp búsnæði bans, ef hann óskar að halda því. Samningar, er fara í bága við þetta ákvæði, eru ó- gildir. Þó beldur leigusali óskert- um rétti sinum til að slita leigu- málanum vegna vanskila á húsa- leigu eða annara verulegra van- efnda af bálfu leigutaka. Verði ágreiningur milli leigutaka og leigusala um þetta, sker bús- næðisnefnd úr. Úrskurði hús- næðisnefndar má skjóta til dóm- stólanna, en þó skal hlíta hon- um unz fallinn er dómur. 4. gr. Skylt er leigutaka að rýma úr íbúð sinni, ef leigusali getur útvegað honum ibúð ann- arsstaðar i bænum, er honum sé viðunandi, og sker húsnæð- isnetnd ,úr þvi, hvort leigutaki skuii skyldur að bafa fbúða- skifti eða eigi. 5. gr. Greini leigusala og leigu- taka á um upphæð húsaleig- unnar, eða virðist húsnæðisnefnd leigan vera of há fyrir einhverja ibúð, skal húsnæðisnefnd ákveða hámarksleigu. Þetta ákvæði nær einnig til framleigu. Úrskurðuðu hámarki húsaleigu verður ekki breylt fyr en í fyrsta lagi frá næsta almenna flutningsdegi að telja. Úrskurði búsnæðisnefndar um hámark húsaleigu verður ekki áfrýjað til dómstólanna, eða annara æðri stjórnarvaida. 6. gr. Ef samið hefir verið/um hærri leigu en ákveðið hefir verið samkv. 5. gr., skal sá samningur ógildur að þvi er leiguupphæðina snertir, frá þeirn degi er hámarksleigan öðlaðist gildi. Hafi leiga verið greidd fyrirfram, skal draga muninn á samningsleigunni og hámarks- leigunni frá þeirri leigu, er fram- vegis verður greidd. Hafi meiri leiga verið greidd fyrirfram en nemur mismun samningsleigu og hámarksleigu fyrir timabilið, skal það afturkræft. Sérstök þókn- un fyrir að komast inn i ibúð, telst fyrirfram greidd húsaleiga. 7. gr. Við ákvörðun hámarks húsaleigu, skal svo sem föng eru á taka tillit til alls þess, sem áhrif getur haft á eðlilega húsa- leigu, kostnað við húsagerð i bænum, þegar matið fer' fram, viðhald og ástand hússins, gas-, vatns- og rafmagnstækja, frá- renslis, staðar i bænum, skatta af húseignum, bankavaxta o. s. frv., svo og húsbúnaðar, ef leigt er með húsgögnum. Skal i leig- unni vera innifalin öll greiðsla fyrir húsnæðið og hlunnindi, sem þvi fylgja, þannig að engin aukaborgun komi til greina. — Húsnæðisnefnd skal heimill að- gangur að hverri ibúð til að skoða hana, og leigusali og leigu- taki skulu skyldir að láta henni í té allar upplýsingar. sem þeim er unt og máli skifta við á- kvörðun hámarks húsaleigu. 8. gr. Húsnæðisnefnd hefir beimild til að takmarka eða banna að húsnæði, sem lélegt jþykir eða óhæft, sé leig^ til íbúðar. — Bæjarstjórn Reykja- vikur skal beimilt að taka til sinna umráða auðar ibúðir, og ráðstafa þeim til afnota handa húsnæðislausu fólki, enda komi fult endurgjald fyrir. Áður en þetta er gert, skal húsnæðis- nefnd rannsaka málið, og síðan úrskurða hvort ibúð skuli tekin, og ákveða leiguupphæð, tima- lengd og annað, er þörf þykir að taka ákvörðun um, og máls- aðilum kemur ekki saman um. Úrskurður húsnæðisnefndar er fullnaðarúrskurður. Með sömu skilyrðum ska! bæjarstjórninni heimilt að taka til sinna um- ráða annað ónotað húsnæði og útbúa það til ibúðar. 9. gr. Hver sá, er áskilur sér, krefst, eða tekur við hærri leigu, en ákveðið hefir verið samkv. þessari reglugerð, hvort heldur er beinlinis eða óbeinlínis, og hver sá, er á annan hátt brýtur ákvæði reglugerðar þessarar, skal sæta sektum frá 2U0—2000 krónum, ef ekki liggur meiri retsing við samkvæmt lögum. Sektir allar renni í bæjarsjóð Reykjavikur, og skal með mál út af brotunum farið sem opin- ber lögreglumál. 10. gr. Reglugerð þessi öðlast gildi 1. nóv. 1925. %)ag6lað. Bæjarmálablað. Fréttablnð. Ritstjóri: G, Kr. Guðmundsson, Lækjarlorg 2. Simar 744 og 445. Viðtalstimi ki. 5—7 siðd. Afgreiðsla: Lækjartorg2. Simi 744. Opin aila virka daga kl. 9—7. Blaðverð 10 au. eint. Askriftar- gjald kr. 1,50 á mánuði. Prentsmiðjan Gutenberg, h.f. JBorgin. Sjávftrföll. Síðdegisháflæður kL. 8,50 i kvöld.* Árdcgisháflæður kl. 8,15 í fyrraroálið. Næturlækuir Magnús Pétursson Grundarstig 10. Sími 1185. Nætnrvörðnr í Rvikur Apóteki. Tíðarfnr. Rigning var i morgun alstaðar sunnan og vestan lands. 1 Reykjavík, Grindavík, Vestmanna- eyjum, Akureyri og Stykkishóimi var 6 st. hiti, i Hornaflrði, Seyðis- fírði og tsaflrði 3 st., á Raufarhöfn 2 st. og á Hóisfjölium 0. — f Fær- eyjum var 7 st. hiti, á Jan Mayen 1 st. frost og i Angaroagsaiik 2 st. hiti í gær. — Loftvægishæð 774 tyr- ir suðvestan land. Búist er við suð- vestlægri átt með úrkomu viða á Suður og Suðvesturlandi. Friðrik Björnsson læknir hefir opnað lækningastofu í Thorvald- sensstræti 4, og ætlar aöaliega aö gefa sig að háls-, nef- og eyrna- lækningum. Hefir hann dvalið lang- dvölum eriendis og lagt stund á þessa grein læknavisindanna, og er hann sagður mjög vel fær i starfi sinu. Botnvörpung'arulr. í gær komu af veiðum: Ása með 162 tn., Menja með 94 tn., Njörður með 104 tn. og Gulltoppur með 134 tn. lifrar. Hafa þeir stundað veiðar á Hala- miði og er þar nú uppgripaafli, og að miklu leyti vænn þorskur. Sklpaferðir. Esja fór kl. 10 i gær- kvöld vestur og norður um iand. Svanur fór til Breiöafjarðar i gær- kvöld og m. b. Sverrir tii hafnanna hérna megin á Snæfellsnesi. Þórbergnr Þórðarson hefir verið sviftur kenslustörfum við Iönsk. og Verzl.sk. en þar hefir hann kent undantarin ár og verið vel látinn. Sagt er aö »Bréf tit Láru» muni vera orsök þessa, en Dagblaðinu þykir sú saga ótrúleg og telur lik- legt, aö eitthvaö annað liggi hér áí bak við. —

x

Dagblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblað
https://timarit.is/publication/605

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.