Dagblað - 18.11.1925, Síða 1
Miðvikudag 'Áj /• árgangiir,
18. nóvember jrJ J Mm #242.
1925. MfMI/VfMy tölublað.
EGAR minst er á húsasmíði
og byggingar þær, sem upp
hafa risið undanfarin ár er
tíðast talað um hinn beina kostn-
að í sambandi við dýrleika þess-
ara nauðsynlegu fyrirtækia.
Menn benda á verð efnis og
vinnu og segja:
Efni hefir lækkað og vinna
er ekki dýrari en verið hefir.
Hús lækka í verði og húsaleiga
hlýtur að falla.
Ef einblínt er aðeins á þessar
hliðar finst mönnum að lækk-
unin sé sjálfsögð, en ef tillit er
tekið til alls, sem hér kemur til
greina, þá verður því miður lítil
von um lækkun, a. m. k. ekki
svo nemi nokkru verulegu.
t*að er sem sé önnur hlið
þessa máls, sem of sjaldan er
ger að umtalsefni manna á með-
al og í blöðum landsins. Hún er
hulin orsök þess, að byggingar
síðari ára hafa verið svo óhæfi-
lega dýrar, hulin afþví alrnenn-
ingur gerir sér hana ekki ljósa
eins fyllilega og vera ber þegar
byggingarmálin eru til umræðu.
Ég á við vandræðalán þau,
er hvíla á flestum eignum til
sjós og sveita og þá ekki sizt
bér í Reykjavík.
Lánskjör þau. sem margir
hafa orðið að sætta sig við, er
ráðist hafa í nýsmíði húsa, eru
og hafa frá upphafi verið óþol-
andi ok, er suma hefir sligað,
svo þeir hafa mist eignir sínar
og annara og biða þess seint eða
aldrei bætur. Sumir erú enn að
sligast undir þeim, og er aðeins
stuadarfriður á meðan það góð-
®fi helzt, sem nú er. — Hvern-
ig er þessum lánum varið? Veð-
deildarlánin nýju þekkja allir.
Slík kjör eru áþreifanleg, og
átakanlegast hefir þó verið, að
geta ekki selt bréfin sæmilegu
veröi, þrátt fyrir alla viðleitni.
1 íðast hafa fastir sjóðir hlaupið
undir bagga, og ráðamenn þeirra
ákveðið ag verja nokkru fé til
kaupa á veðdeildarbréfum, af
Þvi, að þau hafa verið í lágu
veröi. Stundum hafa einstakir
efnamenn séð sér hag — beinni
og vissari hag í því en nokkru
öðru. — Það sýnir að bréfin
eru verðmæt eign, enda þótt
bankinn sjálfur hafi ekki viljað
kaupa þau. —
Þau lánskjör, sem veðdeildin
býður með þessum annmörkum,
eru þó hátið bjá öðrum lánum,
er menn hafa orðið að sætta
sig við annarstaðar. Víxla marg-
trygða nöfnum einstakra manna
hafa bankarnir neitað að kaupa
og hafa svo þessir veslings menn,
sem réðust í byggingar neyðst
til að sætta sig við okurkjör.
Vextir þeir, sem einstakir menn
hafa tekið fyrir að »hjálpa upp
á náungann« hafa verið svo
háir, að undrum sætir, að slíkt
athæfi skuli hafa þróast átölu-
laust. Gömlu vixilskuldirnar hafa
verið nógu erfiðar viðfangs með
8—9°/o bankavöxtum, þótt ekki
yrði menn að sæta slikum neyð-
arkjörum. —
Yfirleitt eru lán þau, sem á
eignum hvíla, svo óhagstæð, að
vonlaust er að húsabyggingar
aukist eða húsaleiga lækki, fyr
en því er kipt í lag og lán feng-
in á auðveldari hátt og með
hagkvæmum kjörum, eins og
gerist í öðrum siðuðum löndum.
Þetta verða húseigendur að
hafa hugfast, og keppa að því
með heilbrigðum samtökum, að
komið verði á hagkvæmari lán-
veitingum, annaðhvort í sam-
bandi við þær peningastofnanir,
sem fyrir eru, eða á annan hátt.
Þetta er blátt áfram lífsskilyrði
öllum sem hlut eiga að máli og
snerlir hag almennings og af-
komu allra meir en flest annað,
sem brotið er upp á til bættrar
hagsældar.
Ms. Svanur er væntanlegur í hing-
að næstu daga frá Stykkishólmi.
Er hann með fullfermi frá ýmsum
höfnum við Breiðafjörð. Hefir hann
nú lokið áætlun að þessu sinni.
Utan úr heimi.
Khöfn, FB., 18. nóv. ’25.
Einveldl Massollni.
Símað er frá Rómaborg, að
Mussolini hafi látið samþykkja
lög, þess etnis, að ekki megi
leggja neitt lagafrumvarp fram
i þinginu, nema hann fallist á
það fyrst. Ennfremur, að hann
beri aðeins ábyrgð á gerðum
sínum fyrir lconungi.
Setnliðið í Köin á förnni?
Símað er frá Berlín, að menn
geri sér alment vonir um, að
Bandamenn flytji burt setuliðið
af kolasvæðinu, þegar Locarno-
samningurinn verði undirskrif-
aður. —
Hátíðahöld í Bretlandi
Simað er frá London, að mikill
undirbúningur sé undir hátíða-
höld þegar Locarnosamningur-
inn verður undirskrifaður 1. n. m.
Fækkun setnliðsins í Þýzkal.
Símað er frá Berlín, að Hind-
inburg hafi tilkynt á stjórnar-
fundi, að Bandamenn hafi hálf-
vegis lofað, ekki eingöngu að
fara burt af Kölnsvæðinu, heldur
einnig fækka stórkostlega setu-
liði á hinum tveimur svæðunum.
Undirskrift Locarnosamningsins
rædd af miklu kappi á fundinum.
Landstjóraskifti í Sýrlandi.
Símað er frá París, að Sarrail
sé kominn heim frá Sýrlandi.
Ðe Jouvenel útnefndur eftirmað-
ur sína í Sýrlandi. Sarrail hefir
í hyggju að reka ofan í ásak-
endur hans þann áburð, að hann
eigi sök á óeirðunum í Sýrlandi.
Stjórnarskifti í Tékkóslóvakíu.
Slmað er frá Prag, að kosn-
ingar fari fram. Svehla forsætis-
ráðherra hefir beðið um lausn
fyrir sig og ráðuneyti sitt. Masa-
rykhefirbeðið ráðuneytið að ann-
ast stjórnarstörfin fyrst um sinn.