Dagblað - 18.11.1925, Síða 2
DáGBLAÐ
Leikir ogleíkhús.
Frh.
1 Noregi er mikil barátta um
»Landsmaalet«. Stórþingið hlynn-
ir mjög að þeirri stefnu og held-
ur . henni fram. Þjóðleikhúsið
talar ríkisnorsku, eða þá dönsku,
sem hefir verið rituð í Noregi
af Björnson og Ibsen. Ef þjóð-
leikhúsið ætti að fara að leika
á landsmálinu, yrði að þýða
verk þeirra á nýnorsku. Björn-
son og Ibsen kæmust á þann
hátt út úr norskum bókmentum
og yrðu þýddir höfundar. Góðir
leikendur, sem altaf hafa leikið
á ríkisnorsku, yröu að fara að
Ieika á nýju máli. Þetta fólk
yrði alveg afióga og til lítils
nýtt á leikhúsinu. Um þetta er
barist á þjóðleikhúsinu í Osló.
Sem lítinn vott um hvernig leik-
hússtjórnin litur á málið, mætti
minna á þetta smáatriði: Þegar
þjóðleikhúsið var komið upp,
þá var eitthvert blaðið sem
spurði um, hvað ætti nú að
leika fyrsta kvöldið. Því var
svarað: »Við leikum eitthvað
eftir elzta leikritaskáld Norð-
manna, og það er Björnson«.
»Nei, Holberg er ennþá eldri en
Björnson«, var því svarað. »Þið
byrjið með því að leika eitthvað
eftir hann«. Svo var farinn sá
millivegur, að leikinn var sinn
þátturinn eftir hvert höfuðskáld-
ið. — Eftir Holberg var leikinn
annar þátturinn úr »Sængurkon-
unni«, sem leikin hefir verið öll
hér i Rvík oftar en einn vetur.
í Bergen hefir verið leikið að
staðaldri siðan 1850. Það voru
engin smámenni, sem höfðu
Bergensleikhúsið með höndum.
Björnstjerne Björnson var þar
leiðbeinari; eftir hann kom Hen-
rik Ibsen og var í sömu stöðu
þar. Svo má segja, að leiksviðið
í Bergen hafi kent þeim báðum
hina miklu og góðu leiklistar-
gerð þeirra, sem síðan er orðin
svo fræg. í Bergen varð »Fru
Inger til Österaat«, eftir Henrik
Ibsen, fyrst til þess að vera
tekið með óvenjumiklum fögn-
uði. í Bergen mun frú Gunder-
sen hafa leikið í fyrsta sinni,
og Schancke er þaðan lika.
Með verkum Björnsons og Ib-
sens fluttist miðdepill veraldar-
bókmentanna norðnr. Leikrita-
gerð þeirra liggur nú til grund-
vallar fyrir þeim bókmentum í
heiminum. Það er að vísu satt,
að Ágúst Strindberg hefir verið
leikinn mjög í Þýzkalandi á síð-
ustu árum, en Þjóðverjar segja
nú, að hann sé frumkvöðull aö
»stjórnleysinu« eða lagaleysinu,
sem nú ríkir í leikritagerð hjá
sumum yngri leikritahöfundum
Þjóðverja.
Nú á Bergen nýtt leikhús, sem
stendur á góðum stað í bænum,
og er allvegleg höl). Þar standa
þeir báðir íyrir framan leikhús-
ið, Björnson og Ibsen, eins og
fyrir framan þjóðleikhúsið í
Osló. — Holberg er á öðrum
stað í bænum, og má af því sjá,
að Bergensbúar hafa ekki gleymt
þvi, hvar snillingurinn gamli er
fæddur. Ýms fleiri leikhús eru
einnig í Noregi.
Frh.
Borgin.
Sjávarfölt. Siðdegisháflæður kl.
6,45 í kvöld. Árdegisháflæður kl. 7,10
í fyrramálið.
Sólarupprás kl. 9,8. Sólarlag kl.
3,17.
Kæturlæknir. Daníel V. Fjeldsted,
Laugaveg 38. Sími 1561.
Næturvörðnr í Rvíkur Apóteki.
Tfðarfar. Sunnan- og suðvestan-
átt alstaðar í morgun, og úrkoma
víða. Heitast var á Akureyri 7 st.
Seyðisfirði og Grindavík 6, Vest-
mannaeyjum og Hornarfirði 5, ann-
arstaðar 4 st. nema á Hólsfjöltum 1
— í Færeyjum var 9 st. hiti, á Jan
Mayen 1 st. frost, og í Angmagsalik
í gær 5 st. frost, — Loftvægislægð
fyrir norðan Jan Mayen og suðvest-
an land. Búist er viö suðlægri átt,
og siðan allhvassri suðaustanátt á
Suðvesturlandi með úrkomu á Suð-
ur- og Vesturlandi.
Útbreiðslnfund héldu stúkurnar
Framtíðin og Víkíngur í Templara-
húsinu i fyrrakvöld. Indriði Einars-
son rithöfundur hóf umræður, en
aðrir ræðumenn voru Ágúst Jóns-
son f.v. hreppstj., Haraldur Guð-
mundsson kaupfélagsstjóri og Helgi
Sveinsson f.v. bankastjóri. Fundur-
inn var flölsóttur, prátt fyrir ill-
viðrið, sem hér var í fyrrakvöld.
Skaftfelllngur kom í fyrradag úr
ferð að austan.
2)ag8lað.
Bæjarmálablað. Fréttablað.
Ritstjóri: G. Kr. Guðnmndsson,
Lækjartorg 2. Símar 744 og 445.
Viðtalstimi kl. 5—7 síðd.
Afgreiðsla: Lækjartorg2. Simi744.
Opin alla virka daga kl. 9—7.
Blaðverð 10 au. eint. Askriftar-
gjald kr. 1,50 á mánuöi.
Prentsmiðjan Gutenberg, h.f.
Lyra kom hingað á hádegi í gær,
og fer héðan aftur annað kvöld á-
leiðis til Noregs, um Yestm.eyjar og
Færeyjar.
Jón Helgason mngister hefir ný-
iega lokið við að semja ritgerð um
Jón Ólafsson Grunnviking. Hefir
hann lagt hana fyrir heimspekideild
Háskólans til umsagnar, og par til
kvaddir dómarar hafa tekið hana
gilda til doktorsnafnbótar. Vörnin
mun fara fram skömmu fyrir jót.
Árnesingamót veröur haldið hér
á laugardaginn. Hafa pau mót áður
verið með beztu héraðsmólum sem
haldin hafa veriö, enda eru Arnes-
jngar hér fjölmennir. Sú nýlunda
verður nú, að fóik austan úr sveit-
um kemur hingað suður, aðeins til
til að sitja mótið.
Hjúsknpnr. Ungfrú Margrét Arn-
ljóts frá Pórshöfn og Hjalti Björns-
son heildsali voru gefin saman í
hjónaband siðastl. sunnudag af séra
Fr. Hallgrimssyni.
Baruayeiki hefir stungið sér nið-
ur á Grimsstaðaholti, og hafa 3
börn veikst par á sama heimllt.
Engin skólabörn eru á pvi heimili,
svo ekki er hætt við útbreiðslu
veikinnar pess vegna.
Hetgidágalöggjöfln. Nefnd sú, er
sameígiulegi safnaðarfundurinn á-
kvað að skipa, hefir nú verið kos-
in, og urðu pessir fyrir vali: Ágúst
Jósefsson beilbrigðisfulltrúi, séra
Friðrik Hallgrimsson, Eggert Bríem
yfirdómari, Jón Halldórsson tré-
smiðameislari og Jón Ólafsson
framkv.síj. Er nefndinni ætlað að
endurskoða helgidagalöggjöfina, á-
samt pingmönnum bæjarins, °6
hefir hún pegar tekið til starfa.
Feningar:
Sterl. pd............... 22,15
Danskar kr............. 113,94
Norskar kr.............. 93,43
Sænskar kr............. 122,43
Dollar kr............... 4,58
Gullmörk .............. 108,93
Fr. frankar............. 18,52
Hollenzk gyllini........184,47