Dagblað

Issue

Dagblað - 28.11.1925, Page 2

Dagblað - 28.11.1925, Page 2
2 DAGB LAÐ vel fyrst í stað, en þegar komið var upp undir ísland, hrepti það aftakaveður. Rauk á út- synningsstormur og kafaldshrið með svo miklum ofsa, að við ekkert varð ráðið. Var þá vélin stöðvuð og haldið upp í. Smurn- ingsolíugeymirinn sprakk, svo nær öll sú olía fór til spillis, sem skipið átti. Seglin tættust í sundur, gaffallinn brotnaði, og skipið barst óðfluga að landi. Var þetta á Breiðamerkursandi, rétt fyrir vestan Jökulsá. Skips- menn ætluðu að láta fyrirberast niðri í káetu, en sáu brátt, að slíkt var mesta óráð, því skip- inu sló út og lá á bakborðssíðu, en sjórinn skall yfir jafnt og þétt. Komust þeir þá allir upp i reiða, utan einn — Ingvar — sem sjór tók út og yíir stjórn- borðshlið og upp á land heilu og höldnu. Þorsteinn, stóð neðst í reiðanum og var syndur, kast- aði sér skömmu síðar útbyrðis í aðsogi, en sennilegast er að vit 'hans hafi fylst sandi og olíu, sem flaut um alt, því hann hröklaðist út og aftur fyrir skip-1 ið og sökk þar skyndilega. Skipið barðist og bylti sér f hafrótinu, gat kom á það og vörurnar bárust á land, mið- siglan fór fyrst, og Stefán hraut fyrir bórð efst úr reiða, en komst naumlega í land, og svo þrekaður, að Ingvar átti fult í fangi með að hressa hann við. Sáu þá skipverjar sem eftir voru sitt óvænna og komust við illan leik niður úr reiðanum og á kaðli í land. Voru þeir þá þjak- aðir mjög og flestir alblautir. — Það var á áttunda tímanum um morguninn að skipið kendi grunns, en stundu eftir hádegi voru þeir niu komnir á land. Var nú lagt af stað í áttina til bæja. Þegar komið var að Breiðárós, treystust 5 ekki lengra en létu þar fyrirberast um hríð. Jón, Aðalsteinn, Einar og Haraldur héldu áfram og sáu loks brugðið upp ljósi í glugga. Mátti þar engu muna að þeir færi framhjá og hefði þeir þá sennilega allir orðið úti. — Var bær þessi Kvísker. Þegar félagarnir fjórir höfðu sagt frá hinum, fór bóndi af stað með hesta, handlukt og þokulúður. En það er frá hinum að segja, að þeir héldust ekki lengi þarna á bersvæði við ósinn, og fóru nú aftur í stefnu á strandstaðinn. Varð Stefán fyrst viðskila við þá. Virtist hann ruglaður orðinn eftir fallið úr reiðanum og þóttist einn rata. Fanst hann síðan örendur af leitarmönnum. Urðu hinir fjórir smámsaman viðskila hvor við annan. Sæbjörn varð úti en 3 þeirra komust naumlega niður á strandstaðinn, fundu þar skóflu, grófu sig niður í s&nd- inn og breiddu segldræsur og annað sem fyrir hendi var yfir sig. Var þá skipið farið að brotna mjög, en varningurinn sást austur með allri ströndinni. Varð það þeim til lifs að þeir ^átu grafið sig í sandinn því um um nóttina gerði talsvert frost, þóttust þeir eitt sinu heyra í þokulúðri í fjarska en biðu átekta að hann færðist nær. Bóndi hafði farið alla leið niður á strandstaðinn, en blés þar ekki í lúðurinn. Fórhann heim við svo búið, en fór um morguninn aftur í fylgd með örðum, fann þá félagana og fór með þá til bæjar. Fundu þeir lík Sæbjörns heit. á leiðinni. Að Kvískerjum komu þeir um miðjan dag, en þeir sem ferða- færir voru fóru að Knapavöllum morguninn eftir. Var svo eftir nokkra daga lagt upp þaðan og frá Fagurhólsmýri í fylgd með Runólfi á Svínafelli^og 2 mönnum öðrum. Voru 17 hest- ar í förinni, einn handa hvor- um fylgdarmanna og tveir handa hvorum skipbrotsmanna. Förin að austan tók 8 daga. Tekið var á móti þeim opnum örmum alstaðar á leiðinni. — Á Breiðabólsstað sneru fylgdar- menn aftur með hestana, en strandrnenn komu í bifreið hingað frá Ægissíðu. Það vissu menn seinast til skipsins áður en ófært varð yfir sandinn, að það var komið í spón. Það var vátrygt fyrir 125 þús. kr. Vörur voru allar vátrygðar, einnig 300 tunnur af benzíni, sem voru á þilfari. — QagBlað. Bæjarmálablað. FréttablnO. Ritstjóri: G. Kr. Guðmundsson, Lækjartorg 2. Símar 744 og 445. Viðlalstími kl. 5—7 siðd. Afgreiðsla: Lækjartorg 2. Sími 744. Opin alla virka daga kl. 9—7. Blaðverð 10 au. eint. Askriftar- gjald kr. 1,50 á máuuði. Prentsmiöjan Gutenberg, h.f. Borgin. Sjávarföll. Síðdegisháflæður kl. 3,58 í dag. Árdegisháflæður kl. 4,25 í nótt. Næturlæknir Jón II. Sigurðsson Laugaveg 40. Sími 179. Nl. Aðra nótt Daniel V. Fjelsteð Laugaveg 38. Sími 1561. Næturvörðnr í Laugavegs Apóteki. 6. vika vetrar hefst. Jólafastan hyrjar á morgun. Tíðarfar. í morgun var 6 st. liiti i Grindavík og St.hólmi, i Rvík og Vestm.eyjum 5 st. ísaf. 4 og Akur- eyri 3 st. Á Hólsfjöllum var 4 st. frost, í Seyöisf. og Hornaf. 3; og á Raufarhöfn -í-0. — í Khöfn var 1 st. hiti, i Færeyjum 1 st, frost á Jan Mayen 5 st. og í Angmagsalik 4 st. frost í gær. — Loftvægislægð fyrir norðan land. Búist er við vestlægri átt á Suður- og Suðvesturlandi en breytilegri vindstöðu annarstaðar, með úrkomu víða. Messnr á morguu. Dómkirkjan kl. 11 séra Bjarni Jónsson og kl. 5 séra Friðrik Hallgrimsson. Fríkirkjan kl. 5 séra Árni Sigurðss. (Engin messa kl. 2). Landakotskirkja kl. 9 árd. hámessa og kl. 6 síðd. guðspj. með prédikun. Sjómannastofan kl. 6 síðd. alm. guðspjónusta. $ Kjartan Ólafssou augnlæknir opn- ar L dag lækningastofu í Laekjar- götu 6, par sem skrifstofa Hjalta Björnsonar & Co. var áður. Kjartam hefir verið lengi erlendis og full- numast i sérfræðigrein sinni, bæði i London og Wien. Skodsborg kolaskip’til Duus-versl- unar kom hingað í gær. ÁgústFlygenring heflir legið veikur nokkuð lengi, og heflr hann nú sagt af sér pingmensku, vegna pess að ekki eru horfur á, að hann verði svo hress að geta gegnt pingstörf- um i vetur.

x

Dagblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblað
https://timarit.is/publication/605

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.