Dagblað

Tölublað

Dagblað - 11.02.1926, Blaðsíða 2

Dagblað - 11.02.1926, Blaðsíða 2
2 DAGB LAÐ Utan úr heimi„ K.höfn. FB., 10. febr. '26. Ueimsblöðin nm Mnssolini. Símað er frá London, að blöðin séu harðorð um frekju Mussolini. Blaðið Daily Express endar grein um þetta með þessum orðum: Niður með allar harðstjórnir. 60 stiga frost. Simað er frá Stockhólmi, að í smábæ einum í norðurhluta Svíþjóðar hafi verið mælt mest frost, sem komið hefir á Norð- urlöndum, sem sé 60 gráður á Celsius. Stresemann heldnr ræðn nm hótanir Mnssolini. Simað er frá Berlín, Strese- mann hafi haldið mikla ræðu í gær um framkomu Mussolini gagnvart þýzkum íbúum í suð- ur-Tyrol. Las hann upp yfir- lýsingar italskra stjórnaryfirvalda þar sem því var lofað'að láta íbúana óáreitta og lofa þeim að halda siðum sínum. Strese- mann bendir á, að Mussolini hafði brotið öll þessi loforð og hótun Mussolini um að flytja landamærin lengra norður á bóginn væri rauninni ógnun um styrjöld gagnvart Austurríki og Þýzskalandi. Kaupdeiln á isafirðl (Eftirfarandi skeyti barst hing- að í gær frá ísafirði, sent af blaðinu Vesturland. Kemur það nokkuð á óvart eftir skeyti þvi, sem birt var í gær, því þar var sagt að samkomulag hafi náðst á þeim grundvelli, að kaupgjald- ið yrði samkvæmt væntanlegum samningum). Vesturl. segir svo: ísafirði, FB., 10. febr. ’26. Á mánudaginn var gert verk- fall við útskipun á fiski frá Jó- hanni Eyfirðing & Co. Kröfðust verkamannaforsprakkar, að strax skyldi semja um kr. 1,20 tima- kaup, og kr. 1,50 eftirvinnu fyrir alt árið. Nálega allir atvinnu- rekendur voru staddir í Reykja- vík. Firmað lofaði að leita um- V élareimar 1. flokks, allar breiddir. Lands- ins lægsta verð í SLEIPNI, Laugaveg 74. Sími 646. sagnar fyrir hádegi f ,gær, og var þá haldið áfram vinnu og skipað út 170 skpd. í gær var ekki unnið vegna úrkomu. En þá kom tilboð umboðsmanns farmeiganda um mismun kaups og kröfu við útskipun farmsins. I morgun var byrjað að vinna, en verkamannaforsprakkar bönn- uðu vinnufúsum að vinna. Bæj- arfógeti kvaddi þá til mann að halda verkfallsmönnum frá vinnutækjum og flutningsleiðum, en honum var með ofbeldi bægt frá því. Var þá hætt allri vinnu. Alt rólegt(?) — Dágott fiskirí í útverstöðum. JE£ox*giii. Nætnrlœknir. Daníel Fjeldsted Laugaveg 39. Sími 1561. NæturTÖrðnr í Rvíkur Apóteki. Athygii kjósenda skal beint að kjörskrám þeim, er liggja til sýnis á skrifstofu bæjargjaldkera til 14. þ. m. Kjörskrár þessar gilda fyrir tímabilið i. júlí 1926 til 30. júní 1927 og verður önnur þeirra notuð við landskjör i júli næstk., en hin skrá- in er sú almenna alþingiskjörskrá (til kjördæmakosninga), sem jafnan má búast við að kosið verði eftir. Er mjög áriðandi, að þeir, er kosn- ingarrétt hafa, gæti þess, að nöfn þeirra séu á skránum, þvi komið getur fyrir, að þau falli af skrá, þótt staöið hafi þar áður, en eftir að kærufrestur er útrunninn hinn 21. þ. m. er ekki unt að gera neinar breytingar á kjörskránum. Kirkjuhljómloikar Páis ísólfssonar í gærkvöld tókust ágætlega eins og vænta mátti því Páll er svo vand- virkur maður að hann býður ekki upp á annað en það sem gott er. \— Hvert sæti í kirkjunni var skip- að og aðsókn svo mikil, að aðgöngu- miðar, voru uppseldir fyrir hádegi í gær. — Hljómleikarnir verða end- urteknir annað kvöld. Hestnr fældigt fyrir brauðvagni í gær, á Kalkofnsveginum. — Tveir drengir voru á vagninum og henti annar sér strax af honum en hinn féll niður og meiddist all mikið. V. Ií. s. 'V öriibílastööin. Sími 1006 — þúsnnd og sex. Beint á móti Liverpool. Þegar þér ferðistr þá kaupið þér náttúrlega Hand- töskur, Handkoffort og Merki- geyma ódýrast í SLEIPNI, Laugaveg 74. Sími 646. 'HtgT Auglýslngum í I)ag- blaðið má skila i prentsmiðj* una Gntenberg eða á afgreiðsla hlaðsins. Sími 744. Ilesturinn braul vagninn af sér og hljóp siðan með annan kjálkann i eftirdragi yfir Lækjartorg og vest- ur alt Austurstræti. Margt fólk var á götunni, og mátti litlu muna aö ekki hlytist af meira slys. Dranpnir kom af veiðum í nótt og fór aftur í morgun áleiðis til Bretlands. Hann hafði um 900 ks. Sadó aukaskip Eimskipafélagsins kom frá Vestfjörðum í gærkvöld. Lyra fer héðan í svöld kl. 6 áleið- is til útlanda. Kemur við í Vest- mannaeyjum og Færeyjum. Dansinu í Hrnna verður leikinn í kvöld i 15. sinn. Þingmönnum ec boðið á leikinn, að þessu sinni. Hafnarfjörður. Kolaskip sem Transporter heitir. kom á laugardaginn til Heliyers Bros. Pað var með um 2000 tonn af kolum. Botnrörpnngarnir Víðir fór á ís- fiskveiðar á laugardaginn. Frá Bretlandi eru nýkomnir Cerisó Kings Gray, Ver (seldi fyrir 790 sterl. pd.) Surprise (seldi fyrir 1050 pd). og Valpoole kom i gærkvöld hafði selt fyrir á 8. hundr. pd. Rán fór til Bretlands í fyrrakvöld með um 900 ks. af isfiski. íþrótlafélag Hafnarfjarðar heldur fjölbreytta skemtun á laugardags- kvöldið. M. a. verður þar sýnd leikfimi, kefladráttur, sungnar gam- anvisur o. fl. I Lýsing bryggjnnnar. Nýbúið er að rafýsa liafskipabryggjuna, endurbæta ljósin á gömlu bryggjunni og setja Ijós á nýju viðbótina.

x

Dagblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblað
https://timarit.is/publication/605

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.