Dagblað

Ataaseq assigiiaat ilaat

Dagblað - 11.03.1926, Qupperneq 1

Dagblað - 11.03.1926, Qupperneq 1
\ 34. tbl. Reykjavik, íimtudag 11. marz 1926. II. árg. Ritstjóri G. Kr. Guðmundsson. Afgreiðsla Lækjartorg 2. Simi 744. Prentsmiðjan Gutenberg. Aukning Eimskipafélagsins. ii. Eftir því sem fengist hefir reynsla um rekstur innlendra flutningaskipa og starfsemi Eim- skipafélagsins hefir aukistogkom ist í ákveðið og skipulagsbund- ið horf, hefir jafnframt komið í Ijós að brýnustu samgönguþörf landsmanna er ekki hægt að fullnægja með þeim skipastói sem Eimskipafélagið á nú. Þess vegna hefir félagið orðið að taka leiguskip til vöruflutninga við og við og ríkissjóður orðið að kaupa strandferðaskip, sem eink- nm er ætlað til fólksflutninga. En þetta hvortveggja til viðbót- ar skipakosli félagsins er ekki nægilegt til að fullnægja hinni vaxandi flutningaþörf. Reynzlan hefir sýnt, að Esja nægir ekki til strandferðanna, a. m. k. nokkurn hluta ársins og verður því með einhverju móti að bæta svo þessar sam- göngur að brýnustu ílutninga- þörfinni verði fullnægt. — Eins og högum vorum er nú orðið háttað, eru greiðar samgöngur óhjákvæmilegt skilyrði fyrir efna- legri afkomu þjóðarinnar og ekki sýzt eru það strandferðirn- ar sem eru beinlínis lífsnauð- syn fyrir dreifðu og afskektu hér- uðin. — Með liverju árinu sem Uður verður þörfin á góðum samgöngum brýnni og tilfinnau- 'egri þau óþægindi og fjárhags- legi skaði, sem ófullnægjandi samgöngur vaida öllnm almenn- lngi. Þarf því að ráða hér bót á °g koma strandferðunum sem fyrst i viðunandi horf. — Verður nú næst að því vikið, hvaða leiðir til þess eru líklegastar. Leikhúsið. Á útleið eftir Suíton Vane. Loksins virðast bæjarbúar hafa fengið leikrit sem þeir eru al- menl ánægðir með. Bæri það líka vott um meir en í meðal- lagi brenglaðan listasmekk ef svo væri ekki, því þarna fer saman hugðnœmt efni, góður útbúnaður og ágœtur leikur. — »Á útleið« hefir farið sig-' urför víðs vegar um hinn ment- aða heim á örfáum árum og gert ungan og umkomulitinn rit- höfund alþektan a. m. k. um allan hinn enskumælandi heim, og einnig nokkru viðar. Ætti það óneitanlega að vera nokkur trygging fyrir því að hér sé um merkilegt leikrit að ræða, enda er svo í raun og veru. Efni leiksins er frumlegt en um leið alment; það er lýsing á ferðinni til »fyrirheitna lands- ins«, þangað sem vér eigum all- ir að tara. Leikurinn gerist allur i reikingasal á skipi og »per- sónurnar« eru aðeins nokkrir farþegar, sem eru á leiðinni »yfir um« án þess þeim sé það ljóst i fyrstu. En smám saman kemur vitneskjan um það, hvern- ig komið er og þá fara þeir að búa sig undir heimkomuna »hinumegin«, hver á sinn hátt. Meðferð Leikfélagsins á leik- ritinu er öll hin prýðilegasta og því tvímælalaust til sóma. Leikendur skilja yfirleitt ágæt- lega hlutverk sín og Ieika þau af meiri og jafnari list en oft hefir átt sér stað áður. Sérstaklega er leikur Indriða Waage tilkomumikill og er þar um mikla framför að ræða frá leik hans i fyrri hlutverkum, enda er hann ungur Ieikari og þvi á þroskaskeiði. Sýnir hann þarna mikla og ótvíræða Ieik- hæfileika, sem llklegir eru til enn meiri fullkomnunar. SoiTia og Ágúst Kvaran, Frið- finnur Guðjónsson og Emilía Indriðadóttir leysa öll hlutverk sín ágætlega af hendi, enda eru þau svo alkunnir leikendur, að af þeim er ekki annars en góðs að vænta. Og yfirleitt er með- ferð allra leikendanna góð og samleikur ágætur. Hér hefir aðeins verið minst á helztu atriði efnis og leiks, en langt mál mætti um það rita. Leikfélagið á miklar þakkir skilið fyrir að hafa valið þetta leikrit til sýningar, og þá ekki síður fyrir meðferð sína á þvi. Bæjarbúar virðast llka meta það að verðleikum, því aðsókn hefir verið ágæt, og væri óeðlilegt, ef hún færi minkandi fyrst um sinn. — Hér er dregið fram í leik efni, sem aliir vilja kynnast — og sem allir hafa gott af að sjá. —m.—n. Alþingi. Kjördæmaskipun. Eins og kunnugt er, hefir Jón Baldvinsson borið fram frum- varp um að skifta Gullbringu- og Kjósarsýslu í tvö kjördæmi, þannig, að Hafnarfjörður verði sérstakt kjördæmi, en báðar sýslurnar annað. Allsherjarnefnd hefir haft frumvarpið til athug- unar, og hefir meiri hluti henn- ar lagst á móti því, að það næði fram að ganga með þvi að ekki væri sá munur »á at- vinnurekstri manna í Gullbr.-

x

Dagblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblað
https://timarit.is/publication/605

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.