Dagblað - 11.03.1926, Side 2
2
DAGBLAÐ
Bernhand Stefánsson taldi
sanngjarnt að kjördæmisskifting-
in yrði, en ekki með öðru móti
en að þingm. yrði fjölgað um 1.
Siglufjörður hefði einnig sama
rétt til sérstaks þingmanns sem
Hafnarfjörður, og hefði óskir
um það áður komið fram. Ann-
aðhvort ætti því að fjölga þing-
mönnum um þessa tvo, þótt
þess þyrfti ekki vegna þingstarf-
anna, eða gjörbFeyta kjördæma-
skipuninni í réttara horf; en
það mundi varla geta komið til
greina fyrir næstu kosningar. —
Lagði hann siðan til að flutn-
ingsmaður tæki málið út af dag-
skrá og atbugaði það á þeim
grundvelli, sem hann hefði
bent til.
Miklu meiri umræður urðu
um þetla mál, og tóku ýmsir til
máls, en oftast töluðu P. O. og
J. B. Siðan var frv. samþ. til
3. umr. með 14 atkv. gegn 10,
og má búast við að þá komi
fram breytingartillögur við frv.,
helzt um það, að þingmönnum
verði fjölgað um tvo, svo Hafn-
arfjörður og Siglufjörður fái hvor
sinn sérstaka þingmann.
3. umr. á að fara fram i dag.
Borgin.
Nœtnrlæknir Kjartan Ólafsson
Lækjarg. 6 B. Simi 614.
Nætnrvörðnr í Rvíkur Apóteki.
Nýr kotnvörpnngnr, sem Asa heitir,
eign H. P. Duus, kom hingað í gær-
morgun. Er hann mikið skip og
fallegt og mjög vandaður að allri
gerð. Kolbeinn Sigurðsson kom
með skipið hingað og verður hann
skipstjóri á því framvegis.
Esja fer héðan kl. 6 annað kvöld
suður og austur um iand í fyrstu
hringferð sina á þessu ári.
•Hnglcstnr. Peir sem hafa haldið
að skrum og loddaraskapur réði
gerðum þess manns, er las i hug
manna í Nýja Bíó í gærkvöld, hafa
orðiö herfilega vonsviknir. Hr. Ejnar
Groth hefir ótvírætt mjög þroskaða
hugsæis-hæfileika. Allir þeir sem
hlusta á hann og fj’lgjast með þvi
sem fram fer, hljóta að viðurkenna
að þarna er einn þeirra fáu, sem
tamið hafa sér einkennilega gáfu,
sem margir eru gæddir, en sárfáir
hafa glætt svo að gagni megi verða.
Fóru menn ánægðir af fundi þess-
um, með svipaðar tilfinningar og
þeir, sem numið hafa nýtt land.
Peniugar:
Sterl. pd................ 22,15
Danskar kr............. 118,32
Norskar kr.............. 98,92
Sænskar kr............. 122,35
Dollar kr.............. 4,56“/«
Gullmörk .............. 108,62
Fr. frankar ............. 16,98
f. Hollenzk gyllini....... 182,99
Hring^já.
Brnui ú Ísaíirði.
ísafirði, FB., 10. marz. ’26.
Eldur kom upp í morgun í
husinu nr. 10 við Aðalstræti.
Brann húsið að nokkru; fólk
bjargaðist og innanstokksmunir,
að mestu þó töluvert skemdir.
I húsinu var skipa-afgreiðslan
og fimm fjölskyldur, sem nú
eru húsnæðislausar. Eldurinn
kviknaði frá eldavél, en var
slöktur eftir hálfa stund. V.
Kappskákiu nyrðra.
Akureyri, FB., 10. marz ’26.
Samtímisskák Stefáns Ólafs-
sonar fór fram á sunnudaginn.
Úrskurður 1 gær. Var hann á
þá leið, að hann hefði 15 vinn-
inga, tapað 4 skákum og 6 jafn-
tefli orðið. Næstkomandi sunnu-
dag teflir Ari Guðmundsson einn-
ig samtimisskák við 25 menn.
og Kjósarsýslu og Hafnarfirði,
að skifting kjördæmisins sé ó-
hjákvæmileg af þeim ástæðum«.
Frv. var til 2. umr. í Nd. í
fyrradag, og urðu um það all-
miklar umræður. Frsm. meiri hl.
allsherjarnefndar P. Ottesen lagð-
ist eindregið á móti því, og dró
fram ástæðu fyrir því, að skift-
ingin væri hvorki réttmæt né
málið nægilega undirbúið, til
þess að það mætti ganga fram
á þessu þingi. Tók hann Akur-
eyri og Seyðisfjörð til saman-
burðar, og taldi að þeir kaup-
staðir hefði haft miklu meiri
rélt til að vera gerðir að sér-
stökum kjördæmum, því at-
vinnuskiftingin hefði verið miklu
greinilegri þar heldur en nú væri
í þessu kjördæmi.
Framsögum. minni hl. (J. B.)
taldi svo mikinn mun á atvinnu-
rekstri manna í þessu kjördæmi,
að skiftingin væri réttmæt. At-
vinnuskiftingin væri að aukast,
því annarstaðar en í Hafnar-
firði væri menn nú farnir að
hallast meira að landbúnaði en
sjávarútvegi, einkum siðan vegir
komu suður, svo menn gæti
annast alla flutninga landleiðina,
og því ætti nú þorpin soður
með sjó fremur samstöðu með
uppsveitum sýslnanna. Tók hann
skiftingu Húnavatnssýslu til sam-
anburðar, og taldi að miklu rík-
ari ástæður væri fyrir skiftiagu
Gullbringu- og Kjósarsýslu en
verið hefði þegar Húnavatns-
sýslu var skift.
— Ól. Thórs viðarkendi að
kjördæmaskipunin væri órétt-
mæt, en engin almenn tilmæli
um skiftinguna hefði komið
fram. Aðeins á einum fundi
hefði einn maður borið fram
tillögu i þessa átt, en líklegt
mætti telja, að þar stæði ákveð-
inn flokkur að baki. En hins-
vegar væri sér kunnugt um, að
í sýslunum væri menn yfirleitt
mótfallnir skiftingu. Taldi hann
sig mundi verða á móti frv.,
því hvorttveggja væri, að hann
áliti skiftinguna óréttláta vegna
mismunandi kjósendafjölda og
hefði heldur ekkert umboð til
að styðjast við. Aftur á móti
myndi hann hafa verið með frv.
um fjölgun þingm., þannig að
Hafnarfj. fengi 1 þingm., en sýsl-
urnar 2, hefði það komið fram.
Lyra fer héðan kl. 6 í kvöld á-
leiðis til Bergen, mn Vestmanna-
eyjar og Færeyjar.
Yélbátinn Eir frá ísafirði hefir
vantað siðan á laugardag og eru
menn nú orönir hræddir um að
hann hafi farist. Nokkrir botnvörp-
ungar hafa verið beönir um aö
svipast um eftir honum og einnig
hefir Pór verið að leita hans.
|{Lagarfoss kom frá Patreksfirði
í morgun.
Neistar.
— Pegar við erum hamingjusöm
erum við ekki altaf góð, og pegar
við erum góð erum við ekki ávalt
hamingjusöm.
— Pað er hægur vandi að sýna
þeim velvild, sem stendur á sama
um alt.