Dagblað

Ataaseq assigiiaat ilaat

Dagblað - 21.03.1926, Qupperneq 1

Dagblað - 21.03.1926, Qupperneq 1
42. tbl. Reykjavík. sunnudag 21. marz 1926. 11. árg. Ritstjóri G. Kr. Guðmundsson. Afgreiðsla LæUiartorg 2 Sími 744. Preutsmiðjan Gutenberg. Skólavörðuhæðin - Guðm. Eiuarsson: Háborgin. (Séð frá Frakkaslíg), Við norðurhlið torgsins: Sýningarhús og samkomuhús eða kirkja. — Við austurhlið: Háskóli ásamt bú- stöðum fyrir kennara. —• Suöurhlið: Stúdentagarður (í suðurhorni) og tvö safnahús. F*að vestra er hús Einars Jónssonar eins og h a n n hugsar sdr það fullgcrt. — Við veslurhlið: Ibúðarhús með vinnustofum fyrir listamenn. Umhverfi Reylcjavíkur er dá- samlegt í fjarsýn. Telja margir sém víða hafa farið að óvíða gefi að líta fegurra útsýni. Bæj- arstæðið hefir einnig verið sér- staklega ákjósanlegt til að byggja á verulega fagra borg, sérkenni- lega og tilkomumikla. En svo hef- ir verið með það farið, að óhugs- andi er að staðhættir og útsýni geti nokkurntíma notið sín til tulls og er þá ekki annað að gera en reyna að umbæta bæinn eft- ir því sem hægt, er jafnóðum og hann er endurbygður og jafn- framt bjarga því sem eftir er af óskemda bæjarstæðinu. Eins og bærinn hefir verið bygður er hann ljótur og til- komulaus. Hlykkjóttar illa gerð- ar götur, lítil og sviplaus hús, stíllaus og ósamræm í útlifi og gerð. Hvergi er tekið tiilit. til innbyrðis afstöðu né fegurðar útsýnisins. Pær eigindir sem minst hefir gætt við byggingu Reykjavikur er listnæmi og feg- urðarsmekkur. En nú er mönnum orðið ljóst, aö bér er illa komið og eitthvað þarf að gera til að endurbæta það sem hægt er, og að bjarga því sem bjargað verður. Og er það helzt þess vegna aö skipulags- nefnd hefir verið valin sem hefir það aðalstarf að reyna til að koma betra skipulagi og sam- ræmi á bæinn jafnóðum og hann er bygður að nýju. Mörgum hefir fundist að þess- ari nefnd hafi verið mjög mis- lagðar hendur um sumar gerðir sinar og verið furðu sljóvskygn á einföldustu grundvallaratriði augljósustu umbóta. — En um það verður ekki meira sagt að þessu sinni. Skólavörðuhæðin hefir lengst af verið talin fegursti staður- inn til útsýnis yfir bæinn og umhverfið. Línur og litir fjalla- hringsins njóta sin bezt þaðan og litbrygði fjarlægðarinnar eru greinilegust og auðsæjust af þeirri sjónarhæð. Þaðan er víð- sýnið mest og fegurst. Ofmikið hefir verið þrengt að skólavörðuhæðinni með bygg- ingum stíllausra og fegurðar- snauðra íbúðarhúsa en há-hæð- in er samt áð mestu óskemd ennþá af byggingum þar uppi og henni má ennþá bjarga frá ófarnaði umhverfisins. Töluvert hefir verið rætt um að byggja þar einskonar háborg Reykjavikur, sem bæri yfir um- hverfið og skæri sig úr að út- liti og allri gerð. »Háborg islenzkrar menning- ar« hefir þessi byggingarhug- mynd verið nefnd, því ætlast er til að þar verði einskonar mið- stöð andlega lífsins. Háskóli, stúdentagarður, safna- hús og kirkja eða annað sam- komuhús eru helztu bygging- arnar sem þar hafa verið ráðnar.

x

Dagblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblað
https://timarit.is/publication/605

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.