Okrarasvipan - 31.03.1933, Page 1
OKRARASVIPAN
Blað um okur, t]árdrátt og vlðskltta-melnföng af ýmsu tœgl.
Útgefandi og ábyrgðarmaður Ari Þórðarson.
4. tölublað. Föstudaginn 31. Marz 1933. 1. áígangur.
Fjáraflaklóin 00 „Júristinn".
Hjer koma þá fyrir almenn-
ings sjónir myndir af þeim
tveimur herrum í okkar þjóð-
f jelagi, sem um margra ára skeið
hafa samræmt og sameinað
krafta sína um það, að framleiða
fjárhagsleg skálkapör og við-
skifta-vjelabrögð i stórum stýl,
á g i r n d sinni til eflingar og
þorpara-hvötum til þróunar.
F j á r a fl a k 1 ó i n er, eins og
alkunnugt er orðið fyrir löngu,
svo n a u m, og nízkunni sam-
gróin, að ' harmkvælalaust tímir
hún ekki að leggja sjer og sin-
um til boðlegan kjaftbita á stór-
hátíðum ársins, hvað þá endrarnær. — En sú undarlega mótsetn-
ing gerir þó slík strandhögg í skapgerð þessa manns við og víð,
að hann finnur sig aflknúðan til þess, af óviðráðanlegum illmennsku-hræringum hugarfarsins, að
leggja fram nokkurt fje, þegar hann þykist þess fullviss, að öðrum geti orðið það til nógu til-
finnanlegrar svívirðingar, meins og bölvunar. Og þessu til sönnunar skal það tekið fram hjer, að
hann hefur narrað útjaskað, örvasa gamalmenni, fyrir þeninga, út á þá mannvonzku-braut, að
bera upploginn stórþjófnað, rán og skjalafölsun, og mörg fleiri glæpaverk, upp á andstæðing sinn,
i opinberri saurblaðs-útgafu. — Allar þessar svivirðingar leyfir Fjáraflaklóin sjer að láta gamal-
mennið, á grafarbakkanum, ábyrgjast fyrir sig. — Og til þess að ná hámarki ósvifninnar í þess-
um skollaleik, hefur hann smalað saman nokkrum peningagráðugum fúkyrða-fúskurum, rekið þá
inn á svokallaða skrifstofu sína og skipað þeim að pára upploginn róg, mannorðs-níð og glæpa-
greinar handa^gamalmenninu til að ábyrgjast. — Það þarf tæplega að taka það fram, að svona
djöfullegt sálar-ástand, svona magnþrúnginn hefndarhug og klækjaþrótt, hafa þau illmenni ein á
valdi sínu, sem eru þrauthlaðin af samanþjöppuðu mannvonzku-fári, sem ræktað hefur verið árum
saman í ömurlegustu skúmaskotum illgirninnar. — Auðvitað þarf ruddalegasta rándýra-kjark til
þess að opinbera heilli þjóð innræti sitt í þessu gervi, — en Fjáraflaklóin sýnir henni það samt,
og það alls ófeimin og i fullum mæli. — Það er eins og hún viti það núorðið, að hún hefur