Okrarasvipan - 31.03.1933, Qupperneq 4
OKRARASVIP AN
til þess að leika ekkjur og föðurlausa, eins og
þeir hafa leikið mig og börn mín.
Reykjavik, i Marz 1933.
Jóhanna A. Jónsdóttir.
Srádlararnir á nndanhaldi.
Tilgangurinn með útgáfu þessa blaðs, Okr-
arasvipunnar, var i upphafi sá, að benda Reyk-
víkingum og öllum landslýð á, hvað hjer væri
að gerast í viðskiftalífinu, hvernig einstakir
óhlutvandir menn, sem á einn eða annan hátt
höfðu komist yfir, með rjettu eða röngu, tals-
verða fjármuni, notuðu sjer neyð samborgara
sinna nú á þessum krepputimum, til þess að
okra á þeim, oft á svivirðilegasta og lúaleg-
asta hátt. Og svo hafa þessir fje-púkar ekki
látið sjer nægja að draga sjer fje af viðskifta-
mönnum sínum, heldur hafa þeir og svikist
um að greiða gjöld til almenningsþarfa af þessu
sínu gróðabralli með þvi að þykjast hvergi
nærri koma, og sjer til aðstoðar við þessi 6-
þokka og óþrifaverk hafa þeir notað sjer hina
og þessa lagasnápa.
Tilganginum með útgáfu blaðsins er nú að
nokkru leyti náð. Þeir menn, sem blaðið beindi
sjerstaklega orðum sinum til, brugðust reyndar
i fyrstu reiðir við, þvi að »sannleikanum verð-
ur hvor sár-reiðastur«. Þeir fóru að gefa út
blaðsneypu, sem þeir nefndu »Svindlarasvipan«,
en innihald hennar var ekkert annað en auð-
virðilegustu svívirðingar á ábyrgðarmann þessa
blaðs, allar upplognar. En nú eru þeir farnir
að sjá, að slikt og þvílíkt afsakar á engan hátt
þeirra eigið vonda hiartalag og okrara-innræti,
og virðast nú hyka við að renna sjer eftir
þeirri braut. »Svindla,rasvipan« er dauð, er
hrokkin upp af með þeim harmkvælum, að
enaemum sætir. Og hvað meira er: Þeir eru
orðnir svo hræddir við handhafa-skuldabrjef
og okur-vixla, að þeir mega hvorki heyra slík
plögg eða sjá. Þannig hefur Okrarasvipan verk-
að, og má það gott heita. En svo er annað,
sem meira er í varið, og vjer verðum að telja,
w- KORN-KAFFI.
Með vinsælustu tegundum af kaffi-líki er
Korn-kaffi, sem búið er til einungis af
hveitikorni, eða korni og ávöxtum. Þetta kaffi
er algerlega laust við hið alkunna kaffi-
eitur (Coffein). Það þola því allir, ungir sem
gamlir. — Korn-kaffið er selt í */4 kg.
pökkum á 0,45 pk. i eftirtöldum verzlunum:
Verzlun Quðm. Guðjónssonar, Skólav.stíg 21.
— Fell, Grettisgötu 57.
— Höfn, Vesturgötu 45.
— Guðjóns Guðmundssonar, Kárastig 1..
— Olafs Jóhannssonar, Sogamýri.
að sje að þakka Okrarasvipunni, og því, hve
ósleitilega vjer stungum á þessu þjóðfjelags-
meini. — Löggjafar vorir hafa nú í þinginu
sjeð, að þessi ósómi var þjóðarskömm, sem
varð að afmást, og hafa komið fram með frum-
varp, er bannar allar Blíkar aðfarir sem þær,.
er vjer höfum gert að umtalsefni í blaðinu, og
lagt háar sektir við, ef út af er brugðið. Vjer
óskum þessu frumvarpi góðs gengis gegnum
þingið, og vonum að það verði til þess, að
aðrar eins gorkúlur i þjóðfjelaginu, sem vjer
höfum gert að umtalsefni, visni út, og aðrar
nýjar fái aldrei þrifist i íslenzku loftslagi.
Drengir og telpnr,
sem vilja selja OKRARASVIPUNA á götunum,
skulu koma á skósmíðavinnustofuna á Berg-
staðastræti 19. Sölulaun eru 5 aurar af blaði.
Okrarasvlpan er til sölu á þessum
stöðum: í bókabúðunum á Laugavegi 68 og
Laugavegi 10. — Á Bergstaðastræti 19 (skó-
smíðaverkstæðinu) og á Baldursgötu 16 (uppi).
Enn fremur hjá blaðasölunum á Lækjartorgi.
Prentsmiðjan á Bergstaðastræti 19.