Merki krossins - 01.11.1939, Page 8

Merki krossins - 01.11.1939, Page 8
mjög mikið. Hinn 15. apríl 1905 dó önnur systir hennar, 32 ára, gömul, eftir langa og þunga legu. Hún var fín og göfug kona og Elísabet elsk- aði hana með móðurlegri umhyggju. Elísabet skrifaði bók um hana: »Sál«, sem kom út 1906, aðeins fyrir vanda- menn og vini sína, því bókin var ekki, ti,l sölu. Felix Leseur lét prenta hana, eítir ósk margra, aftast í bókinni »Andlegt líf«, bók, s.em fanst að El- ísabetu látinni. Faðir J. Hébert 0. P., skriftafaðir hennar í rúmlega 10 ár, skrifaði áhrifaríkan formála fyrir »Bréf um þjáninguna«, sem voru gef- ín út eftir fráfall Elísabetar, og ha,nn segir í bréfi einu frá því, með hve miklum áhuga hann hafi lesið bókina »Sál«, og hve mikið gagn hann hafði af því: »Það er ekki hægt. að mæta svo faptri trú, svo traustri og ein- faldri guðrækni, svo örlátri, undir- gefni, svo öruggri, yfirnáttúr- legri von, svo að það hafi ekki áhrif á mann«. — Þessi bók ber einnig vott utn þá miklu sorg, sem sjúkdómur og fráfall systur hennar bakaði henni. Við þetta bættust enn önnur áföll: systir hennar, sú eina, sem eftir var á l'ífi, var mjög veik; heilsu, móður hennar hnignaði altaf. En verra en alt þetta var sá andlegi einstæðings- skapur, sem sál hennar átti við að búa, því hinir venjulegu samvistar- menn hennar voru trúlausir. Það er áhrifamikið að lesa í dag- bók hennar og bréfum hvað hún seg- ir um þetta., hið þyngsta í þjáningum sínum. Það kemur oft. fyrir, að ein- hver í fjölskyldu heldur sig vera mjög einmana af því að hinir skilja hann ekki eða af annari ástæðu sem er ef til vill honum sjálfum að kenna. Og þetta getur valdið miklum áhyggjum. En verra er það, þegar göfug kona með fastri kaþólskri, trú og lífsskoð- un á, vegna þess að hún giftist trú- lausum manni, að lifa í umhverfi, sem er algjörlega trúlaust, og e,r þó ef til vill ekki fjandsamlegt, henni sjálfri heldur lífgskoðun hennar. Þetta verð- ur andleg þjáning, sem er tæplega bærileg. »Endurlausnari. minn, þú veizt að ég er mjög einmana, og þú veizt eirmig, hvað ég þjáist af mót- spyrnu og skeytingarleysi sumra«. Þessa bæn skrifaði hún í dagbók sína og altaf skrifar hún um þessa and- legu einveru, s,em er svo þung að bera. Þannig var æfi Elísabetar Leseur a.ð öllu leyti óþrjótandi og mikil þján- ing. En þessi þjáning var sál hennar til mikils gagns, og einnig sálum þeirra, sem hún bar sína þjáningu fyrir, fyrst. og fremsf sál eigin- mannsins. Ekki má gleyma því gagni, sem hún gerir öllum þeim, er lesa bækur hennar og finna, þar aftur hina sönnu kristnu lifsskoðun með því að skilja þýðingu þjáningarinnar í ljósi kristinnar trúar. Frh. Bæn til Guðs uin að öðlast sáluhjálplega (lauðaMlund! Lífið sjálft! að luktri asfi leys mitt bann fyr iðran sanna. Oleó smurður veit að ég verða viðr-kennandi mjúkleik þenna. Hreinast gef þú hjarta inínu liold og blóð, það er tókst af móður, lystiligu að leiðar nesti, leysist er iind af holdsins böndum. (Úr *Lilju«). Kitstjóri: Marteinn Vroomen. Prentsmiðja Jðns Helgasonar. Merki krossina 8 Cum lic. Sup.

x

Merki krossins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Merki krossins
https://timarit.is/publication/611

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.