Sunnudagsblaðið

Issue

Sunnudagsblaðið - 01.11.1925, Page 1

Sunnudagsblaðið - 01.11.1925, Page 1
Sunnudagsblaðið. M I ðjáp f ft e,YvS r*? I 3L æ JCŒZ*. •x S w eMs 6'JL'ö œMs is'JTti Þeir sem einu sinni reynn Sueces Braii láta ebhi bjóða sér aðra dósa- nijólk. UNSWEtTtf^ 'ORATED HLFQ^ Ábyrgst að innihalda ekbi minna en 8°/o smjörfltu. ^Es-iy Dessi mjólk er framleidd af Coöperatieve Condena- fahriek »Friesland« Leewarden, Ilollandi, sem í eru 45 rjómabú, er framleiða árlega 275 niilj. lítra af mjólk. Er þessi feikna sala næg trygging fj'rir gæðunum. Succesmjólkin er bragðbezt ogf íitumest. Umboðsm. verksmiðjunnar H. I. GtíSLASOIV, Langaveg 5. Símar 630 & 463. Vegurinn upp hæðina. Niðurl. Nick sagði eitthvað ljótt. Honum lík- aði ekki meir en svo, að ég skyldi minnasl á þetta. Margoft var yfirfor- ingjunum formælt fyrir, að leila uppi einhvern herjans stað, kjallaraholu eða annað verra, kalla það varðherbergi, og senda þangað korpóral og nokkra dáta. Það var auðvitað ekki þeim að kenna. Þetla var a part of the game, þáttur i leiknum. En það bitnaði á þeim. feir voru baknagaðir fyrir það. í varðher- berginu voru fangar geymdir, þeir fé- lagar okkar, sem eitthvað höfðu brotið af sér. Varðtímarnir voru altaf hinir sömu, tvær stundir á verði, fjórar til »hvíldar«. Og það var aldrei eftir því sóst, að vera á verði. Síður en svo. Síst á svona göngu. — Góð stund leið. Við fengum te og brauð, en ekki fóru allir á fætur til þess að neyta af því. Píp- urnar voru dregnar upp úr vösunum og í þeim kveikt, þótt hálmur væri á gólfi og þvi eldhætt. Og okkur fanst ekkert á skorta vellíðan okkar. En svo bárust að hljómar frá orgeli og allur kliður datt i dúnalogn. Áhrifin voru friðandi og það var ljúft að mega hlusta á þessa þýðu tóna. f’að hafði góð áhrif á okk- ur, sem vorum allir friðelskandi menn, þó við bærum morðvopn í höndum. Og tónaflóðið vakti minningar, sem voru fagrar, en það var eÍDS og mergð gam- alla sára ýfðist upp ... Og lónarnir voru fyrirrennarar Svefns konungs, sem þreyttum mönnum er svo ljúft að ganga á vald. Og þó frá þeim félögum okkar, sem þegar voru sofn- aðir, bærust þungar hrotur, þá var eng- inn þar, sem hneykslaðist á þvi eða naul síður friðarins og kyrðarinnar og fegurðar orgelleiksins. Og þegar ég bjóst að ganga á vald Svefni konungi, þá ... Stuttur (Shorty) undiiforingi! Mér er hlýtt til þín, gamli Skoti. En á því augnabliki elskaði ég þig ekki. Ég fann það á mér, sá það á svip þínum, er þú leist í áttina til mín, að ég var kjörinn varðmaður þetta kvöld. »Skipun er skipun, Thornstein«, sagði Sluttur. »Pað er ógaman, en það verður svo að vera. Nick, Tony, Pren- dergast, þið líka«. Stuttur var óvenjulega fastmæltur á r-unum. »Hann hefir fengið aukaskamt af rommi«, hugsaði ég. Og Stutt;-’’'varð að vekja hina. Peir állu erfi'' ...eð að stilla skap sitt. En loks vorurn við albúnir. Stundu áður vorum við alsáttir við alt. En nú for- mæltum við, sumir okkar a» m. k., þessum herjans heimi með öllu, sem í lionum var. Við vorum aftur hermenn. í heila nótt urðum við að vaka meðan aðrir sváfu. Röðin var komin að okkur. Það var alt og sumt. — »Nóg romm, piltar«, hvíslaði Stutlur. Og ég vissi hvað verða mundi. í varðbei berginu, á milli varðslunda, yrði ilrukkið og spilað á spil og reykt og rætt um konur. — Er við genguin út voru allir í fasta svefni. En tvær dökkklæddar nunnur geDgu um á gólfi, frá einum hermanni til annars, eins og lil þess að fullvissa sig um, að enginn lægi illa, til þess að signa syndugan hóp og gera krossmark við höfðalag hvers einstaks. Kjallarahola. Rottur. Votur hálmur og óhreinn á gólfi. Kertisskar á kassa og matarílát úr tini, fult af rommi. Stuttur hafði sagt salt. Peir höfðu þá haft hugsun á þessu. Pað var svo daun- ilt og óvistlegt, að okkur fýsti iítt að sofa. Og við deildum drykknum bróð- urlega, reyktum og ræddum. Skepnur vorum við ekki og þarna var ekki einu sinni skepnum boðlegt að hvílast. Á miðnætti fór ég á vörö. Enn rigndi. Fjórir lögðúm við af slað. Undirfor- inginn með talinn. Eg lenti á síðasla varðstað. Og undirforinginn gekk aftur til kjallaraholunnar og þeir þrír, sem við höfðum leyst af veiði. Að baki mér var reisulegt steinhús tvilyft og vandað og steinveggur með járngrindum í fyrir framan. Og fyrir framan vegginn átti jeg að ganga fram og aftur í tvo tíma, og »vernda« her- deildarforingjann ef á lægi, en hann hvíldi þarna inni í stóra húsinu í rnjúkri sæng. En ég öfunda hann ekki. Mér líður vel, af því ég er einn. Ég vaki og lifi. Hann ekki. — Ekkert ónáðar mig. Heil skáldsaga flýgur gegnum huga minn, mergð skáldsagna. Eg er kon- ungur og dísir næturinnar eru sendi- boðar mínir, og alt lýtur mér. Ég ríf niður, umturna, breyti enn og byggi á ný. Ég byggi háa höll, hún er silfrin- lituð og slendur í dökkgrænum skógi og hún er sveipuð sólskini. Par skortir ekkert. En alt í kring er eymd og grát- ur og ójöfnuður, formælingar auðsafn- ara, sem hafa glatað öllu, hlakk hinna. Og þúsundir magurra barnshanda lyft- ast, i bænum til himins, en þau eru ekki bænheyrð. Iivert tillit í sorgbitnum barnsaugunum er áhrifameira en hin fegursta bæn hins mjúkmálasta guös-

x

Sunnudagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/615

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.