Sunnudagsblaðið - 01.11.1925, Síða 2
26
Sunnudagsblaðið.
þjóns. En ég er konungur, sem á háa
höll, og ég leiði þau inn í dýrð hallar
minnar. Og þau fá fylli sína og leggjast
til svefns. Og konungurinn er sorgbit-
inn, því börn eiga að hlægja og leika
sjer, en þessi börnin hafa gleymt því
eða aldrei lært það ...
Klukknahringing. Klukkan er eitt. Ég
vakna af draumum mínum. Og ég lít
alt í köldu ljósi virkileikans. Lííið er
barátta, stríð. Og ég er þræll hins auð-
uga og er til alls búinn, nema að sví-
virða konur og misþyrma börnum.
Vegna mín og miljóna annara munu
miljónir barna eiga eríitt. það er eins
um óvinahermanninn, en ég hata hann
ekki og hann hatar mig ekki. En við
skiljum ekki hvorn annan — til fulls.
En stjórnmálamennirnir skilja. Og peð-
unum er teflt fram á orustuvellinum.
Óvinahermaðurinn er agnarlítið peð,
sem ég drep ef ég get. Og hann lítur
sömu augum á mig. En í raun og veru
er okkur hlýlt hvors til annars. En við
lútum illa valdi og við vitum ekki að
við eigum vald sjálfir.
Ég er þræll og ég er í ósátt við heim-
inn. Ég er einn í miljónahóp, sem
hlýðir en hatar. Ilatrið er vakið. En það
er ekki þann, sem ég kalla óvin minn,
sem ég hata. Og ég veit að það er eins
um hann.
Og ég heyri fótatak í myrkrinu. Og
ég sé tvær blikandi stjörnur, þó hvergi
sjái í himininn. Og kona ein stendur
heint andspænis mér og önnur við hlið
hennar.
Önnur þeirra ber skjólu, og sú, er
andspænis mér stendur, réttir mér bolla
með heitum drykk. Og það er köldum
líkamanum gott. En það er lyf sjúkri
sál minni að finna návist konu, sem
kannske hefði syndgað ekki minna en
flestir, en hafði fundið frið við guð. Og
það var ást í augum hennar, sem var
ung og fögur, þó hún væri klædd
nunnukufli, ást til mín, því hún elsk-
aði alla menn, og ég var einn þeirra.
Ástin til alls geislaði út frá henni og
mér fanst ég standa í birtu Drottins.
Eg var barn guðs og hún var mér góð
systir. — Ég hafði hugsað um höll,
silfrinlitaða í grænum skógi, sveipaða
sólu. Slík var ást hennar. Og ég var
ekki konungur, ég var lítið barn, sem
hafði liungrað og þyrst, og dís mann-
kærleikans hafði birst mér.
Þegar hún kveður mig og snýr sér
við snertir hún lílinn silfurkross, sem
hún ber í svartri keðju. Og það er eins
og Ijómi á hann, þó dimt sé. Fótatak
systranna fjarlægist. Og hverfur seinast
alveg.
En ég sé veg framundan, sveipaðan
sólu. Hann liggur upp hæð og á hæð-
inni er kross, óbrotinn trékross. Og
mergð manna krýpur í lotning.-----------
Það er eins og þreytan ágerist óðum.
En ég er sæll, því sál mín hafði leitað
í sömu átt og sál konu, setn var i sátt
við guð og alla menn.
/1. Th.
Félag Yestar-Islendinga.
Aftalfuntlur mánudaginn 2. nóvember næstkomandi á Hótel Hekln
kl. 81/-2 síðdegis.
Kosin stjórn, rædd félagsmál, flutl erindi (síra Friðrik Hallgrímsson).
Stjórnin.
Conrad Nngel og Patsy Ruth Miller í
kvikmyndinni »Master of Man« (Men-
neskets Herre).
Um Ljóðaþýðingar
Stgr. Th,, I. b., skrifar Bjarni Jónsson
kennari í Heimilisbl. í árg. ’25:
Yfir öllum þessum ljóðum er sami liugð-
næmi blærinn, sem yfir frumortum kvæðum
þjóöskáldsins. Fornmentaáslin skín út úr
þeim, og lienni er sú stefna í skáldskapnum
samfara, að búa alt liið hversdagslega lað-
andi hátíðabúningi. Alt er eins og wsveipað
fegurðar gullblæjum«, líkt og náttúran á vorin.
Stgr. Thorsteinsson var líka skáld vorsins og
œskunnar.
Vér hlökkum til áframhaldsins, og vonum
að íslensku heimilin llýti fyrir því sem mest,
meðjþví að kaupa sem fyrst þau heftin, sem
komin eru.
Ytri frágangur er vandaður og fylgir því
höfundaskrá og fróðleiksgreinar og fyrirsagn-
ir og upphöf þeirra kvæða, sem komin eru.
Prentsmiðjan Gutenberg.
Áu dóms og Iflga.
Flestir kannast við hinar svo kölluðu
»Iynchings« í Bandaríkjunum, sem lengi
voru álitnar svartasli blelturinn á skildi
hinnar vestrænu þjóðar. Mest hefir
borið á þeim í suðurríkjunum, þar sem
negrar eru fjölmennastir. »To lynch«
þýðir að »taka framkvæmd laga í eigin
hendur«, eins og þegar slíkt æði grípur
menn, að engin biðlund er til þess að
bíða úrskurðar réttarins, en sá sem
grunaður er um glæp, er tekinn af
skrílnum og drepinn án dóms og laga.
Tíðast hafa svertingjar þeir sælt slíkum
aðförum, er djarftækir gerðust tii hvítra
kvenna. Hin síðustu ár hafa mörg félög
með dagblöðin í broddi fylkingar, bar-
ist fyrir því, að hvert riki gerði alt
hugsanlegt, til þess að allar »lynchings«
hættu, enda fækkar þeim slöðugt, voru
aðeins 16 síðastliðið ár, en sú tala
þykir lág samanborið við tölur fyrri
ára. — Orðin »lynching« og »to lynch«
eru dregin af nafni bónda eins í ríkinu
Virgina, er Lynch liét, er var alræmd-
ur fyrir, að »taka framkvæmd laganna
í eigin hendur.«
Charlie Chaplin
var fæddur í London 1889; foreldrar
hans voru GyðÍDgar. Hann byrjaði að
leika, þegar hann var 7 ára gamall, en
kvikmyndaleikari gerðist hann 1914.
Jack Taylor i kvikmyndinn »Paa
Livet Iös«, leikinn af Fred. Thomson.
íi———^
Snnnudagsblaðiö.
ltitstjóri: Axol Thorstelnsoii.
Afgreiðsla: Kirkjustræti 4 (búðinni
við Tjarnargötu).
Askriftarverð: Kr. 5 00 (52 blöð).
Einstök blöð: 15 aura.
Afgreiðslusími: 1558. Póstbox: 95G.
Auglýsingaverð: Kr. 1.50 pr. cm. eind.
Umboðsmaður vestan liafs: Pórður
A. Thorsteinson, 552 Bannatyne Ave,,
Winnipeg.