Hænir


Hænir - 29.08.1925, Blaðsíða 1

Hænir - 29.08.1925, Blaðsíða 1
Ritstjóri og ábyrgðarm.: Sig. Arngrímsson Talsími 32 :: Pósthólf 45 Kemur út einu sinni í viku; minst 52 blöð á ári. Verð 6 kr. árg. Gjaldd. 1. júlí, inn- anbæjar ársfjórðungslega 3. árg. Seyðisfirði, 29. ágúst 1925 34. tbl. Seðlabankinn. Ræða Björns Kristjánssonar alþingismanns í Efri deild Alþingis 27. aprfl s. 1. Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hluttekninga við fráfaii og jarðarför Ara Brynjólfssonar. Þverhamri 29. júií 1925 Aðstandendur. Niðurlag. Ég sný mér því næst að Lands- bankanum, sem eftir frv. á' að verða seðlabanki. Ef hann starfar sem ra'unverulegur seðlabanki, þá hlýtur hann þegar í stað að tak- marka mjög lánsstarfsemi sína, eins og aðrir seðlabankar gera. Hann má því hvorki lána fé tii vafa- samrar útgerðar, hæpinnar verzl- unar eða yfir höfuð til vafasamra fyrirtækja. Tryggingarnar verða að vera af beztu tegund, ef hann á að vera sem seðlabanki. Nú hefir hann síðari árin lán- aö engu síður djarflega en hinn bankinn, og geri ég ekki ráð fyrir, að órannsökuðu máli, að það sé nema lítið brot af útistandandi skuldum hans um áramót, sem séu svo vel trygðar, eða lánað til svo stutts líma.ljað samrýmst geti seðla- banka. 5á banki hlýtur því einnig að draga saman seglin, svo fram- arlega sem hann á að reka við- skifti sín, álílca tryggilega og aðr- ir seðlabankar gera, sem vitanlega verður að gera kröiur til. En það skapar nýja áhættu fyrir gildi ís- lenzkrar kr., áhættu fyrir því, að minna sé flutt út. Ég játa, að hugsjón hæstv. fjár- málaráðherra er fögur og í sjálfu sér rétt, að vilja láta seðlabankann safna inneignum erlendis á göðu ár- unum; en það máekki gerast á þann hátt, altíeinu að hefta framleiðsl- una, eins og hér mundi verða raunin á. Sérstakur seðlabanki, gæti unnið nokkuö af þessu hlut- verki, og bankarnir sjálfir, þó þeir enga seðla hafi. En enginn banki getur mætt verulegum gengissveifl- um, eins og reynslan sýnir. Á meðan við Björn Sigurðsson vorum bankastjórar, árin 1910— 1918, átti Landsbankinn altaf inni erlendis um nýjár, og inneignin óx, eftir því sem árin liðu og viðskiftin stækkuðu, eins og- sjá má á bankareikningunum frá þeim árum. Þannig eiga bankarnir að „disponera^, ef rétt er að farið, og það er mögulegt. Og það er altaf mögulegt á venjulegum tím- um. Nú er á milli tvenns að vilja: að stofna sérstakan seðlabanka, sem útheimtir minna fjárframlag frá ríkissjóði, en ef Landsbankan- um veröur afhentur seðlaútgáfu- rétturinn, nýjan seðlabanka, sem truflar ekki í neinu viðskiftalífið eða starfsemi bankanna, en styð- ur þó hvorttveggja, — eða þá hitt, að afhenda þá Landsbankanum seðla útgáfuna, með allri þeirri truflun, sem það veldur, og sem ég hefi nú stuttlega lýst. Valið ætti ekki að vera vanda- samt, þótt seðlabankinn sé lítill, þá getur hann unnið þrent; að halda seðlum sínum nægilegagull- trygðum, svo almenningur hér og erlendis geti haft fulttraust á þeim, í öðru lagi að verka sem hemill á of öra framtakssemi manna, að of mikið af seðlum sé gefið út í landinu; og í þriðja lagi að ráða vöxtunum í landinu. Þetta tel ég höfuðatriðin. Hitt vegar minna í mínum aug- um, hvort hann á inni erlendis miljóninni meira eða minna, er misæri koma, því sú inneign verð- ur aldrei fullnægjandi, þegar veru- lega út af ber. Við sjáum, að þótt landið eða bankarnir skuldi nokkr- ar miljónir, þá gerir það ekkert til, meðan landið hefir traust, og framleiðslan er nægileg. Það fell- ir ekki krónuna í gildi. Þessvegna er meira áríðandi að leggja alla áherzluna á að styrkja og auka framleiðsluna í landinu, þannig, að vér getum ávalt flutt meira út en inn. Þaö eitt getur fyrirbygt allar óhagstæðar gengissveiflur, ef seðla útgáfu er haidið í hófi. En mér virðist frumvarpið stefna í gagnstæða átt. Með þessari greinargerð og greinargerð minni í áliti mínu á þskj. 367 vænti ég að hæstv. fjrh. afsaki, þótt ég ekki hafi getað orðið honum sammála i þessu máli. Ætli maður sérað látaseðla- bankann verða lífvörð gegn öllum gengissveiflum, eins og hæstv. fjár- málaráðherra og ráðunautur hans, próf. Axel Nielsen ætlast til, þá verður bankinn að eiga eigið fé svo tugum milj. skiftir, og sem hann gerir lítið annað við, en að passa á gengissveiflur bæöi nú og máske eftir 50—100 ár að ný heimsstyrjöld kann að skella á. En sú trygging yrði vissulega dýr, og dýrari en að setja svo mikinn gullforða fyrir seðlunum, að hægt sé að leysa þá inn ef með þarf, en sem menn veigra sér þó við. Ég hefi jafnan litið svo á, að fram- leiðsla og hæfileg takmörkun seðla- útgáfunnar gæti fyrirbygt verðfall gjaldeyrisins og að við gætum ald- rei hugsað til að hafa svo fé- sterkan seðlabanka, að geta ráðið neinu verulegu þar um, er í óefni er komið. Þessvegna hefi ég ekki einu sinni minst á þá hlið í um- tali mínu um stofnun seðlastofn- unar eða seðlabanka, að hann gæti skaðast þarna á verði. Hins- vegar vissi ég, að alt annað gátu þessarar stofnanir uppfylt, svo sem að hafa seðla sína vel gulltrygöa, að vera hemill á of öra framtaks- semi o. s. frv., það finst mér vera það eina, sem hægt er að ráða við. Hitt er meira bókvit (theoria), að hugsa sér að ráða nokkru um gengið aðeins með sparisjóðsfé. Það er ekki með bönkum eða peningum einum, sem hægt er að ráða genginu, heldur með nægri framleiðslu. Mál þetta hefir nú mjög skýrst við umræðurnar, og væri mjög æskilegt að það yrði ekki gert að neinu flokksmáli. Höfum við meiri hl. nefndarinnar lagt grundvöllinn undir það, að svo verði ekki, þar sem meiri hl. er úr þremur stjórn- málaflokkum. Ég vænti því að ekk- ert kapp komi fram frá hæstv. stjórn eða flokkunum um málið. Málið er stórmál og þarf því skynsemin að geta til fulls notið sín. En hætt er við, að hún geti það tæplega, ef kapp kemst inn í málið. Það er mín föst trú og von, að allir flokkar geti unnið saman um málið í eindrægni, því þá verður niðurstaðan væntanlega bezt. Ef dagskráin verðurfeld, og brtt. hv. þm. Vestm. koma undir atkv., þá greiði ég atkvæði á móti tveim fyrstu brtt., en með þeirri síðustu. Ég veit sem sé ekki dæmi til þess, að opinberum sjóðum hafi verið leyft annarstaöar að kaupa hluti í hlutafélagi með takmarkaðri ábyrgð. Ég veit þess hvergi dæmi nema á íslandi, og þau dæmi eru ekki fögur. Opinberir sjóðir mega ekki kaupa önnur bréf en ríkis- skuldabréf, eða veðdeildarbréf, (obligationir). Svo vildi ég víkja að einu at- riði ennþá, sem hæstv. fjrh. talaði um. Hann lagði mikla áherzlu á, að það væri ótækt, að ríkið hefði fleiri banka en einn, og þessvegna væri það ótækt að stofna sérstak- an seðlabanka, þar sem larids- bankinn væri ríkisins eign. Égget bent hæstv. fjrh. á einfalda ráðn- ingu á þessu. Það er ekki annað en að breyta nafni Landsbankans og kalla hann „Sparisjóð Reykja- víkur", eins og hann í raun og veru er. Breyta um nafnið ogláta hann draga inn af lánum sínum svo mikiö, að hann geti borgað ríkissjóði til baka það sem hann á í bæjarsjóði. Líka mætti gera hann að hlutafélagsbanka. Að öðru leyti kæri ég mig ekki um að fara inn á afsakanir í grein- argerð hæstv. fjármálaráðherra, hvernig á því stóð að undirbún- ingur málsins hetir orðið eins og raun er á, en ég hefi það á til- finningunni, og hafði á síðasta þingi, að það væri ákveðinn hugur hæstv. fjármálaráðherra að láta Landsbankann verða seðla- banka, og hefir hann því leitað á- lits hjá þeim, sem hann treysti að væru sér sammála. En ég álít að próf. Nielsen hefði átt að gefa stjórn Þjóðbankans banska þetta álit, en ekki ísl. stjórnlnni, og láta hana bera svo ábyrgð á þessum skjölum. Og þá efast ég um, að þetta álit hefði verið eins úr garði gert eins og það er. Frönsk veðurspá. í þetta sinn er það stjörnufræðingur franskur, A. Gabriel að nafni, sem segir fyrir um veður. Spáir hann því, að næsti vetur muni verða óvenju- lega harður. Segir hann betta bygt á vísinda- legum útreikningi, og að hann hafi komist að þeirri niðurstöðu, að óvenjulega miklir hitar og kuldar verði með vissu millibili, og að milli kaldra vetra líði 186 ár. Og af því — segir hann — að vetrarnir 1553 og 1740 voru mjög kaldir, má búast við mikl- um kulda komandi vetur. En ekki rætast nú allar spár, jafnvel ekki vísindamanna, og mætti svo um þessa verða.

x

Hænir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hænir
https://timarit.is/publication/620

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.