Hænir - 28.08.1926, Qupperneq 1
Ritstjóri og ábyrgðarm.:
Sig. Arngrímsson
Talsími 32 :: Pósthólf 45
xð
4. árg.
Seyöisfirði, 28. ágúst 1926.
33. tbl.
Utgáfa nýrra
bankavaxtabréfa.
Síðasta þing afgreiddi lög um
heimild fyrir veðdeild Landsbanka
íslands til að gefa út nýja flokka
(scriur) bankavaxtabréfa. Stjprnin
lagði þetta frv. fyrir þingi6, að
mestu leyti eftir tillögum milli-
þinganefndarinnar í bankamálum,
en eitt þeirra verka, sem henni
var ætlað að leysa af hendi, var
undirbúningur löggjafar um fast-
eignaveðlán. — Fjármálaráðherra
tjáði nefndinni á síðastliðnu hausti,
að fyrir þing 1926 yrði IV. flokk-
ur veðdeildarinnar útgenginn, og
væri því brýn nauðsyn að hún
gerði tillögur um málið, og hraðaði
svo, að kæmist fyrir næsta þing.
Ákvað nefndin svo, „að snúa sér
að því, sem bráðabirgðaráflstöfun,
að gera tillögur um útgáfu nýrra
bankavaxtabréfa", því að sjáanlegt
væri, að tími ynnist ekki til að
„gera tillögur um frambúðarfyrir-
komulag á fasteignaveðlánastofnun
í landinu“. Og þetta mál er all-
yfirgripsmikið, en hinsvegar að-
kallandi þörf að því sé sem fyrst
komið í viðunandi horf, hvort
sem svo slík stofnun yrði nefnd
ríkisveðbanki eða eitthvað annað.
Hinsvegar eru þessi heimildarlög
fyrir veðdeild Landsbankans sýni-
lega til mjög mikillar hjálpar fyrst
um sinn.
Skulu hér skráð nokkur atriði
nefndra laga (Alþt. þgskj. 399):
1. gr.
„Veðdeild Landsbankans skal
vera heimilt að gefa út banka-
vaxtabréf, alt að 10 miljónum
króna. Vaxtabréfunum má skifta
í flokka, og nefnist sá þeirra, er
fyrst kemur til framkvæmda, 5.
flokkur veðdeildarinnar og hinir í
áframhaldandi töluröð þar á eftir.
Fjármálaráðherra ákveður, hvenær
hverjum flokki skuli lokið, er
stjórn Landsbankans hefir gert til-
lögur um það. Heimilt er, með
samþykki fjármálaráðherra, að hafa
2 flokka með mismunandi vöxtum
starfandi í senn. En eigi má hver
flokkur þá vera stærri en 3 miljónir
króna. Fyrstu fjögur árin eftir að
5. flokkur er settur á stofn, veitist
tlllag til þessara veðdeildarflokka
úr ríkissjóði, 8000 kr. á ári“.
6. gr.
„Fé veðdeildarflokkanna má
lána gegn veði í jarðeignum, erfða-
festulöndum og húseignum með
lóð í kaupstöðum og verzlunar-
stöðum, en gegn veði í húseign-
um því aðeins, að þær séu vá-
trygðar í vátryggingarstofnun, er
bankastjórnin tekur góðaoggilda.
Lánsupphæð má ekki fara fram
úr 8/b af virðingarverði fasteignar-
innar.
Ennfremur er heimilt að veita
lán bæjar-, sýslu- og sveitarfélög-
um“.
9. gr.
Eigi má lána nema gegn 1.
veðrétti. Minsta lán skal vera 300
kr., og skulu lánin jafnan standa
á hundraði króna.
Lánstíminn má vera alt að 40
árum, sé veðið jarðeign eða vand-
að steinsteypuhús, og alt að 30
árum, sé veðið vandað timburhús.
Sé veðið bæjarlán, sýslulán eða
sveitarlán, skal því Iokið á eigi
lengri tíma en 40 árum“.
25. gr.
„Ríkisstjórninni skal heimilt að
taka lán erlendis til kaupa á alt
að 3 miljónum króna í banka-
vaxtabréfum, er gefin verða út
samkvæmt lögum þéssum. Vaxta-
bréf þau, er ríkisstjórnin kaupir
samkvæmt þessu, skulu vera flokk-
ur út af fyrir sig, og skal haga
vöxtum bréfanna, verði þeirra og
tírnalengd útlána úr flokknum eft-
ir lánskjörum þeim, er ríkissjóður
fær, svo að hann verði skáðlaus
af.----------“ ’
Samkv. símskeyti hér í blaðinu
hefir forsætisráðherra útvegað 2
milj. kr. lán í þessu skyni.ogvon
til að þessi nýi flokkur veðdeild-
arinnar taki brátt til starfa, Væri
ekki vanþörf að úr raknaði ögn
um byggingarerfiðleika.
' •
5 daga úr Hornafirði norður
í Bárðardal.
Þrír Hornfirðingar, Helgi Guð-
munásson í Hoffelli, Sigurbergur
Árnason í Svínafelli og Unnar
Benediktsson í Einholti fóru að
heiman með nesti og nýja skó
hinn 15. f. m. og stefndu til fjalla,
eða þó öllu heldur til jökla. Var
sýnilegt á fasi þeirra og föggum,
að þeir hugsuðu ekki til að hverfa
heimþaðkvöldiðog ekki hin næstu,
enda var förinni heitið norður
yfir Vatnajökul og til bygða á
Norðurlandi.
Segir „Dagur“ svo frá um för
þeirra:
þeir „lögðu upp frá Svínafelli
fimtudaginn 15. þ. m. kl. 6 síð-
degis og komu inn að jökli kl.
11 um kvöldið. Kl. ó1/^ árdegis á
föstudag lögðu þeir á jökulinn og
komu niöur af honum vestan við
Kverkfjöll, eftir þriggja dagaferðá
jöklinum, sunnudaginn 18. kl. 7
síðdegis. Hreptu þeir þoku fyrsta
daginn til kl. 4 síðdegis, en blíð-
viöri úr því. Færð var ill á jökl-
inum og eigi unt að beita skíð-
um. Frá Kverkfjöllum héldu þeir
félagar að Dyngjuvatni sunnan
Dyngjufjalla og þaðan til Öskju.
Þeir sáu hólma sunnarlega í Öskju-
•vatni og rauk úr hólmanum. Þykir
líklegt, að hólma þeim hafi skotið
upp við eldsumbrot þau, sem
verið hafa í Öskju í vor og sum-
ar. Kl. lOsíðdegis á þriðjudag 20.
þ. m. komu þeir félagar í Svartár-
kot og héldu þaðan til Akureyrar
snöggva ferð. Vatnajökull reyndist
82 km. langur á þessari leiö“.
Hafi nokkurntfma fyr verið farið
þessa leið yfir Vatnajökul, þá er
langt síðan. Heim fóru þeir sömu
leið aftur og hafði gengið vel.
Símfregnir.
Rv. 2il8. FB.
Engar sættir eru enn í kolamál-
inu, að því er síðustu fregnir
herma.
Frá París: Belgíumenn og
þjóðverjar semja um að Þjóðverj-
ar kaupi borgirnar Eupen og
Malmedy fyrir 120 miljónir franka,
gegn aðstoð Þjóðverja til að reisa
við frankann. En mótstaða Poin-
care virðist hafa hleypt málinu í
strand. Frakkastjórn hefir gert
strangar ráðstafanir til að hindra
verðhækkun á nauðsynjum og
fyrirskipað einkanlega ríkisspar-
semi á öllum sviðum.
í Reykjavík er nýstofnað bann-
bandalag. Tilgangur þess er sam-
vinna ýmsra félaga til eflingar
bindindi og bannstarfsemi.
Fjármálaráðherra hefir fengið
tveggja miljóna króna Ián í Höfn
til bankavaxtabréfakaupa hins nýja
(5.)flokks veðdeildarinnar, er senni-
lega tekur til starfa í seftember.
Um framboð í Dölum er sagt,
að í kjöri verði, séra Jón Guðna-
son, Sauðafelli og sennilega Sig.
Eggerz og Jón Sívertsen, verzl-
unarskólastjóri.
Sáttasemjari í vinnudeilum er
sennilegt að verði Björn Þórðar-
son, hæstaréttafritari, er Georg
Ölufsson, bankastjóri, lætur af
starfinu.
Rv. 27/8. FB.
Frá Aþenu er símað, að Kon-
dylis óski að allir flokkar taki
þátt í stjórninni, en að Pangalos
verði líklega stefnt fyrir herrétt.
Símskeyti í dag hermir, að fylgis-
menn og andstæðingar Kondylis
berjist nú ákaflega í Saloniki.
Frá Lundúnum: 30.000 námu-
menn hafa aðeins samið sérfrið,
en heil miljón heldur áfram verk-
falli. — Heimsblöðin skrifa þegar
geysimikið um föstu ráðsætin í
tilefni septemberfundar Þjóða-
dandalagsinsi er upptaka Þýzka-
lands verður tekin fyrir. Bretar
styðja ákaft kröfu Þjóðverja um
fast sæti í ráðinu, en Poincare
kröfu Pólverja. — í Vínarborg
hafa 700 socialistar verið hand-
teknir fyrir tilraunir til að stofna
lýðveldisflokk.
„Fjörutíu árum siðar ’.
Stephan G. Stephansson, skáld,
sat í sumar, að því er „Heimskr."
segir, á kirkjuþingi „Hins samein.
kirkjufél. íslendinga í Norður-
Ameríku", en á kirkjuþingi hafði
hann ekki setið síðan fyrir 40 ár-
um, þá kjörinn erindreki fyrir
Parksöfnuð, fyrsta söfnuð íslend-
inga í Norður-Dakota.
Á þinginu í sumar, var svo
mælst til þess við hann, að hann
ritaði nafn sitt í fundabók Kirkju-
félagsins, og léti erindi fylgja. Var
síðan tekið 10 mínútna hlé,
en Stephan ritaði á meðan hvor-
tveggja í bókina, nafnið og erind-
ið, og las síðan upp:
„Fjörutfu árum síðar".
— sbr. „Locksley Hall Forty
Years after“, eftir Tennyson.
Mér hefir orðið mílan drjúg
milli kirkjuþinga!
Þótt nú bjóðist betri trú
bygðum íslendinga.
Staddur á Kirkjuþingi Sambands-
manna, 29. júní 1926.
Stephan G. Stephanssonu.
Sigurður prófastur Sivertsen
lagði í gær af stað frá Eiöum
norður í Vopnafjörð, hans gamla
prestakall, og í för með honum
séra Ásmundur Guðmundsson
skólastjóri. En eins og sjá má á
öðrum stað í blaðinu, ætlar hann
að sitja Prestafélagsfundinn í Valla-
nesi, sem stendur yfir dagana 4.
—6. n. m. En þar er búist við
að mættir verði flestir prestar
Múlaprófastsdæma.
»