Hænir


Hænir - 28.08.1926, Page 3

Hænir - 28.08.1926, Page 3
H ÆN I R Frá Landssímanum. Frá |og með 1. september lækka gjöld fyrir símskeyti til útlanda Dannig, talið í aurum: Færeyjar 25, Danmörk og England 42, Stjórnarskeyti 27, Noregur 48, Svíþjóð, Frakkland og Holiand 54, Austurríki, Tjekkoslovakia, Danzig, Ítalía og Grænland 63, írland 46, Pólland 65, Spánn 61, Finnland 68, Portugal 67, Gibraltar 64, Belgia 52, Þýzkaland 59, Sviss 60, Ungverjaland og Rúmenia 71, Rússland 86, Illinois 210, Manitoba 230, Massachusetts og New-York 170, Pensylvania 190, Sascat- chewan og Washington ríkið 245. Útreiknað skeytagjald, sem ekki endar á 0 eða 5, hækkist upp í næstu tölu deilanlegri með 5. Reykjavík, 28/s. '26. O. Forberg. Kennarastaðan í Skriðdalsfræðsluhéraði er laus til urnsóknar. Umsóknir sendist fræðslunefndinni fyrir 20. september. Fræðslunefndin. „G R E I“-hreyfillinn fullnægir öllum kröfum, sem gerðar verða til fyrsta flokks nýtízku mótors, fyrir'þil- skip og báta. Verðið sanngjarnt. FáiQ verðlista og leitið tilboðs hjá umboðs- mönnum. P. A. Ólafsson, Reykjavík. hafi verið um neitt skárra að ræða fáanlegt. Þó ^ð ekki hefði verið hægt að hola niður nema 8—10 farþegum og skipið haft greiðan gang, þá hefði enginn kvartað, með tilliti tii þess hvernig á stóð. En faiþegarúmlaus sleði, sem þeir, sem bráðnauðsynlega þurftu að komast leiðar sinnar, verða þó að kúldrast á, getur ekki annað en valdið óánægju um mesta umferða- tímann, þegar varla nokkurt farþegaskip er á ferðinni langan tíma á stóru svæði fram með ströndinni, nema „Esja“. En marg- ir af þeim, sem nutu hennar aðra- hvora leiðina að norðan eða norð- ur, stóluðu upp á að geta notað varaskip Goðafoss heim. Hér er að eins minst á ferðir manna innan iands, en því slept, að geta komist milli landa, sem virðist alveg loku skotið fyrir, á svona fari. Nei, óánægja manna yfir þessu, er sannariega ekki ástæðulaus. Austurland á ekki þeim samgöngu- kjörum að íagna, að unandi sé við úrtök í því efni, eða misstig aftur á bak, þó ekki sé nema um stundarsakir. Jörgen Frantz Jacobsen, heitir færeyskur rithöfundur, sem dvalið heíir hérálandi um skeiðísumar. Hinn 22, júlí birtist grein eftir hann í „Politiken". Er grein þessi skrifuð af glöggum skilningi á stjórnarfarslegum viðskiftum Dana og íslendinga. í frásögn hans og ályktunum um hagi og háttu þjóð- ar vorrar, mál og menningu, lýsir sér einlæg velvild og réttsýni. Hár aldur. Tíu alsystkini frá Nottingham á Englandi, 8 bræður og 2 systur, er öll voru á lífi 8. þ. m. og að jafnaði 81 árs að aldri. Það elzta er 92, þá 88, 86, 85, 83, 80, 78, 75, 71, 69 ára. Fyrsti kvenmaður, sem synt hefir yfir Ermarsund. Ung stúlka, 19 ára, frá New-York, Miss. Ger- trude Ederle, synti snemma í þess- um mánuði yfir Ermarsund, frá Gránefshöfða fyrir norðan Bou- logne á Frakklandi yfir á Englanc nálægt Dover, á styttri tíma en nokkur hefir áður gert, Hklukku- stundum og 34 mín. Hún reyndi þetta sund í fyrra, en varð að hætta við. Gafst samt ekki upp, sú litla. Sá, sem síðast hafði metið, var Tiraboschi, sem synti yfir 1923 á 16 tímum og 33 mín. — Sá fyrsti, sem komst á sundi yfir Ermarsund, var kapteinn Webb, 1875. Hann synti það á 21 tíma og 45 mínútum. AIIs hafa sex komist yfir á sundi. Markaskrá Múlasýslna og Seyð- isfjarðarkaupstaðar er nýkomin út hér í prentsmiðjunni. Um útgáf- una annaðist Þórhallur Jónasson á Breiðavaði. Unglingastúkan „Klettafrú" nr. 64 heldur fund á morgun kl. 2 e. h. Hinn nýi gæzlumaður gerist þá félagi stúkunnar og tekur við stjórn hennar. Félagar eru beðnirað fjöl- menna. Ofurstlautenant Alfred J. Benwell. Hann er nafntogaður maður, yfirrit- ari Hjálpræðishersins í Danmörku, en er um þessar mundir á ferðalagi hér á landi, og von bráðar væntanlegur hing- aö til bæjarins. Ofurstinn er Englendingur að ætterni, en hefir dvalið síðastliðin tvö ár í Dan- mörku. Ungur að aldri gerðist hann liðsmaður Hjálpræðishersins, og var jannig um hríð hermaður og hljóm- leikari við eina af deildum Hersins á Austur-Bretlandi. Árið 1888 var hann hafinn til fyrirliðastöðu, og fékk skip- un til Alþjóða-Höfuðstöðvanna í Lund- únaborg. Tveim árum síðar var hann, ásamt fleiri foringjum, sendur sem brautryðjandi fyrir starfsemi Hjálpræð- ishersins í lýðríkjum Suður-Ameríku. Hófst starfsemi sú í stórborginni Buen- os Aires, höfuðstað argentinska lýð- ríkisinn. Hér hafði ofurstinn margvísleg störf með höndum, bæði sem trúboði með- al þjóðarinnar og síðar, þegar starf- seminni óx fiskur um hrygg, sem rit- stjóri Herópsins, sem var ritað á Spán- versku, og heitir á því tungumáli, „E1 Cruzado11. Árið 1897 gekk hann að eiga sænska konu, sem var trúboði þar syðra, frk. Mathilde Bydén. Eiga þau hjón fjögur börn, sem öll eru starfandi liðsmenn í Hjálpræðishernum, og er ein dóttirin um þessar mundir á Alþjóðaforingja- skóla Hersins í Lundúnum. Eftir 15 ára dvöl í Suður-Ameríku fengu þau hjón- in skipun um að hverfa aftur heim til ættjarðar hans, og var ofurstanum þá falið mikilsvarðandi trúnaðarstarf innan vébanda starfseminnar í Stóra-Bretlandi. Síðast var hann fulltrúi við utanríkis- deildina í Lundúnum, með sérstakri á- byrgð á trúboðsstarfsemi í Suður- og Vestur-Ameríku, í Egyptalandi og Pale- stínu, lýðríkjum Suður-og Mið-Ameríku ásamt Vestur-Indíum. Ofurstinn er þrautreyndur starfsmað- ur, og þekkir hinar ýmsu hliðar mann- lífsins mæta vel. Má með sanni segja, að hann hefir lagt alt í sölurnar fyrir heilagar hugsjónir, enda fengið miklu góðu til vegar komið. Einhverju sinni var hann dæmdur til tíu daga fangels- vistar, vegna boðunar fagnaðarerindis- ins um Jesú Krist. Fátækt og margvís- legar þrengingar, eldgos og önnur stór- kostleg náttúru-undur og afleiðingar þeirra, hefir hann þolað og um þessar erfiðustu stundir lífs síns, talar hann einatt með hrifningu, djúpri lotningu og þökk til hans, sem hélt fyrir hon- um hlífiskildi, þegar á móti blés. Orð fer af því, að ofurstinn sé mjög vel máli farinn ogvegna hæfileika hans sem söngvari og hljómlistarmaður, er hann kunnur og mikils metinn evang- eliskur sóló-söngvari. Ofurstinn talar vonum tramar góða dönsku, auk þess sem hann talar spán- versku og enska tungu mæta vel. Hér á landi hefir ofurstinn túlk og samkomurnar, sem getið er um hér neðan við, munu að sjálfsögðu verða bæði vekjandi og. fræðandi. — Mun þessi erlendi gestur eiga hingað til lands mikið og gott erindi, og að hvetja menn til þess að færa sér það sem bezt er í nyt, mun vera sjálfsagð- ara en svo, að það gerist nokkur þörf, en hafa ættu menn það í huga, að dvöl hans hér verður mjög takmörkuð. Föstud. 3/o. Fagnaðarsamkoma. Laugard. 4/o. Fyrirlestur, 15 ár \ Sudur-Ameriku. Sunnud. 5/g. Barnasamkoma. — að kvöldi: Samkoma. Mánud. °/o. Á Hánefsstaðaeyr- um kl. 84/2. Þriðjud. 7/o- Hinn postullegi andi Hjálprœðishersins. Miðvikud. 8/o. Kveðjusamkoma. # # Seyðfirðingabók. Nauðsynjamálin eru mörg, og margt, sem þarf að koma í fram- kvæmd. Um það eru menn jafnan sammála. En það, sem all-oftast strandar á, er hið mikla „afl hlut- anna, sem gera skal“, fjármagnið. En „mikið má, ef vel vill“, og eins og það er staðreynd, að aur- ar gera krónu og kiónur miljón, eins tekst oft með fúsum framlög- um að mynda álitlegan fjárstofn, eða upphæð, sem nægir til að hrinda nauðsynlegu verki af stað, og síðan til fullra framkvæmda. Leiðir til þessa getaverið margar. Skal nú skýrt frá leið, sem ein- um bæjarbúa hefir hugkvæmst tii þess, að koma einu mesta nauð- synjamáli, sem hann telur að bíði átekta — fyrst og fremst Seyðfirð- inga — á rekspöl. Hann hefir látið gera bók — vand- aða, í gyltu bandi — er hann ætl- ast til að Seyðfirðingar skrifi nöfn sín í á afmælisdögum sínum, og láti nafnritun fylgja nokkra upp- hæð, minst 1 krónu, og heitir bók- in Seyðfirðingabók. En skýrt er frá tilgangi í stuttum formála framan við hana. — Er þess að vænta, að menn hafi ánægju af því, að gefa afmælisgjöf á þennan hátt, og í svo nauðsynlegum til- gangi. Eitt nafn er þegar komið| Langbezta mótorvélin er RAPMOTOREN Umboðsmaður: Árni Jónsson, Eskifirði. Nóvember-bær kýr til sölu. R. v. á. í bókina með dálítilli upphæð, en fé það, er safnast, verður lagt inn í sérstaka sparisjóðsbók í íslands- banka, og upphæðin ekki hreyfð, nema eftir ráðstöfun, er þar um verður gerð, samkv. formála bók- arinnar. Bókin verður til sýnis fyrir menn að skrifa nöfn sín í á skrif- stofu Hænis fyrst um sinn, frá 30. þ. m. Seyðfirðingar! Munið eftirSeyð- firðingabók á afmælisdögum yðar. „Rapmotoren" hét skip, er kom hér í gær, er vélasmiðjan „Rap“ A/s. í Oslo hefir í förum, til að auglýsa iðnað sinn. Nánar í næsta blaði. í greininni „Endurreísn ftalíu“ í síðasta blaði hafði misprentast í 18. línu a. n., 3. d. á 1. bls., af að auðmennirnir, í stað: ef að auð- mennirnir, og í 1. d. á 2. bls. í 9. 1. a. n., og kúga, fyrir: að kúga, og í 31. 1. a. n. komið gegn, í staðinn fyrir: komib í gegn. Kobbi skalli fær ágætar gulrófur með septemberferð Esju. Verðið væntanl. um 25,00 lOOkg.

x

Hænir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hænir
https://timarit.is/publication/620

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.