Svindlarasvipan - 12.01.1933, Blaðsíða 3

Svindlarasvipan - 12.01.1933, Blaðsíða 3
SVINDLARASVIPAN E*ad dregur til þess, sem verða vilL L Mannleg tunga hittir stundum á að segja þær setningar, sem aldrei firnast og alltaf eiga við. — Vísan hér að ofan er fimmtíu ára gömul eða meir, og maðurinn sem hún var ort um, hét ekki Ari Þórðarson. En þó vísan hefði verið gerð í gær eða í dag, þá fellur það í svo ósköp ljúfa löð, að víkja henni við og heim- færa hana upp á viðskiptasvikarann og æru- leysingjann Ara Þórðarson, því þó svipast sé um á ólíklegustu stöðum eftir ærlegheitum Ara, þá er þau hvergi að finna, og þó að hundarnir gelti að tunglinu, er það miklu eðlilegra en að Ari sé siðameistari. Fyrir athugaleysi fékk Ari birta grein eftir sig í Alþýðublaðinu með árásum á tvo menn hér í bænum, bar hann þeim á brýn m. a. að þeir lánuðu út peninga með okurrentum. Það er nú talað um það að eitt meðal ann- ars sem auki viðskiptakreppuna hér í Reykja- vík, sé allskonar okur. Við heyrum oft talað um húsaleiguokur, lóðaokur meðalaokur, peningaokur (háir bankavextir) og ótal fleiri okur. Einnig er oft minst á ýmsa okurtaxta, og svona má lengi telja, en hvað sé nú í raun og veru okur, þar skiptast nú fyrst skoðan- irnar, þó allir séu sammála um það að okur eigi sér stað hér í bæ. Ef annarhver þessara manna sem Ari kall- ar okrara, hefði keypt víxil af manni, með gjalddaga eftir 4 mánuði, þá hefði víxileig- andinn fengið 450—475 kr. í peningum, en ef maðurinn, sem átti víxilinn, hefði nú hitt á Ara Þórðarson í staðinn fyrir Metúsalem eða Pétur, hvað hefði hann þá fengið? Hann hefði flækt sig fastan i lyga- og svikaneti því, sem Ari Þórðarson hefir riðið utan um sig, og í net þetta hefir Ari ánetjað nóg til að geta leyft sér viðbjóðslega óhófs- evðslu og allskonar glæframensku, þangað til nú í senni tíð, að fiskiríið er hjá honum far- ið að tregðast og mun vera aðeins til lítilfjör- legs lífsframdráttar. Og þarna er nú komið að ástæðunni fyrir árásunum hjá Ara, á Metúsalem og Pétur. Hon- um finst að þessir og aðrir menn, sem ef til vill eru harðdrægir, en áreiðanlegir í viðskipt- um sínum, hafi dregið frá sér viðskipta- þurfalingana, en viðskiptalífið er nú þannig, að það gerir enginn öðrum viðskiptagreiða fyrir ekki neitt. Metúsalem eða Pétur láta sér máske nægja að taka eina eða tvær fjaðr- ir af viðskiptafuglinum, Ari vill reita af lion- um allt fiðrið og blóðfjaðrirnar með, — svo að eftir verði ósjálfbjarga og dauðadæmt dýr, sem að treðst undir fótum mannanna ofan í aurbleytuna á viðskiptaveginum. Og þegar ritstjóri Alþýðublaðsins áttaði sig á því, hver Ari var, þá fékk hann auðvit- að ekki meira rúm í Alþýðublaðinu eða neinu öðru blaði og var svo hjálpað til að gefa út „Okrarasvipuna“, ómerkilegt plagg ómerks manns. II. Ari Þórðarson getur þess í „Okrarasvip- unni“, að Metúsalem Jóhannsson hafi verið dæmdur í hæstarétti fyrir ofbeldi við kven- mann, já, Metúsalem var dæmdur í smásekt sannanalaust mót neitun — en eftir líkum, fvrir að hafa kjaftshöggvað hortuga og ósvífna stelpu, — en um dóminn var deilt, eins og t. d. nýuppkveðinn dóm í hæstarétti, „þó allir leiti út um haug og innan um sorp til vonar, enginn rekst á ærutaug" Ara þórðarsonar. en þó meiri hlutinn af landslýðnum hefði kjaftshöggvað Ara Þórðarson, þá hefði allur liópurinn verið sýknaður í hæstarétti og um dóminn ekkert deilt. Ari getur þess ennfremur að Metúsalem hafi svarið fyrir barn. Þau eru nú víst orðin fá tilfellin þar sem málstaður barnsmóður er svo bágborinn, ósannindin svo augljós í framburðinum, að tilnefndum barns- foður sé boðinn eiðurinn, — en auðvitað skil- ur Ari ekki þetta fyrirbrigði, og engum hefði dottið í hug að láta Ara vinna eið, þó um hvolpsfeðrun hefði verið að ræða, hvað þá heldur barns, og þó að flagaraeiginleikar Ara beri ekki nógu mikla sýnilega ávexti, þá getur maður svo ósköp vel sett sig inn í þær móður- tilfinningar, sem vilja ekki hafa afkvæmið sitt bendlað við Ara nafnið, og hafa notað önnur úrræði. Það er læknir einn hér í bænum, sem hefir oft skrifað nafnið sitt á sama pappírinn og Ari Þórðarson, þessir tveir menn hljóta því að vera talsvert handgengnir hver öðrum, það má einkennilegt heita eins og „prangið“ er runnið Ara í merg og bein, að hann skuli ekki hafa látið þennan læknir „pranga“ út úr áfengisverzlun ríkisins 800 lítra af spíritus eins og hann segir að Metúsalem hafi gjört, — ef læknirinn hans Ara hefði gjört þetta, þá hefði Ari víst verið fáanlegur til að drekka helminginn og „pranga“ út hinum helmingn- um. Ari notar mikið spurningarformið í „Okr- arasvipunni“ sinni, það er nú ekki svo vitlaust, því enginn hefir á spurninni. Nú ætla eg að spyrja Ara að nokkrum spurningum, sem lúta að meira og minna svik- samlegum viðskiftum hans við ýmsa menn hér í bænum undanfarin ár. Ari þarf svo sem ekki að svara þessum spurningum, og ég býst svo sem ekki við, að hann gjöri það. Það verður skýrt frá hverju einstöku atriði í þessum og ótal fleirum svikaviðskiftum Ara í næstu blöð- um þessa blaðs, eftir því sem tími vinst til og rúm leyfir, því það má Ari Þórðarson vita, að úr því að hann byrjaði tilefnislaust að skrifa óhróður og lygar um heiðarlega menn, þá verður ekki við hann skilið fyr en hann er orðinn eins og lúbarinn hundur með laf- andi rófuna á milli lappanna, skotrandi aug- unum upp á aumustu bullur þessa bæjar, biðj- andi þær, að mega draga andann í rykinu við rennusteina götunnar. Og þangað til næsta blað kemur út, er gam- an fyrir Ara að rifja upp fyrir sjálfum sér þessi viðskipti, sem nefnd eru hér á eftir, og ef ske kynni, að Ari yrði andvaka einhverja nóttina, getur hann haft þessar spurningar eins og leikfang handa huganum, og af því að dagarnir eru að lengjast, en næturnar að stytt- ast, getur hann ef til vill dundað við þetta fram undir rismál vinnustéttarinnar, þó það endist honum auðvitað ekki til fótaferðartíma ónytjungsins og fótaferðartíma Ara sjálfs. Ef í einum hrepp eru eintómir ráðvandir og heiðarlegir menn, nema einn sauðaþjófur, þá þrífst hann þar illa og verður að flýja bygð- ina, eða hætta sauðaþjófnaðinum. Svona gekk með Ara í Borgarnesi, hann varð að flýja bygðina, og verður í næsta blaði skýrt frá við- skiftaklækjum hans þar, eftir heimildum ná- kunnugs manns. m. Þá koma nú spurningarnar til hans Ara. 1. Hvernig var með fjórtán hundruð krónu víxilinn, sem þú seldir Guðm. Gíslasyni hérna um árið? 2. Tapaðir þú ekki á kjötinu, sem þú keypt- ir af Halldóri R. Gunnarssyni? 8. Græddi ekki Magnús Sæmundsson á við- skiftunum við þig? 4. Er ekki Böðvar Jónsson ósköp þakklátur við þig, fyrir það, að þú fékst hann til að kaupa „Týr“? 5. Fanst þér nú ekki efnin hans Ólafs frá Þormóðsdal heldur íýrna eftir að þið kynt- ust ? 6. Hver var það, sem flekaði ráðskonuna frá fyrnefndum Ólafi? 7. Hver eyddi efnum hennar og hver eyði- lagði atvinnu hennar, eftir að hún misti ráðs- konustöðuna ? 8. Hver sér fyrir þessari konu núna? Er það Reykjavíkurbær eða ert það þú? 9. Finst Þorsteini Gunnarssyni, að hann hafi grætt á viðskiftum sínum við þig? 10. Hefir ekki Tómasi slátrara langað að slátra þér fyrir viðskiftaféflettingu ? 11. Hver var það, sem seldi útsláttarlausum fjölskylduföður þrjúhundruð tylftir af getnað- arverjum ? 12. Því er verið að fara í mál út af öðru eins og víxlinum hans Einars á Spítalastígn- um? IV. Fyrir mörgum árum flutti hér í bæinn, öldr- uð kona, sem áður að heita mátti hafði aldrei komið út fyrir sveitina sína. Einn dag er þessi kona ein á gangi á Baldursgötunni, sér hún þá eitthvað, sem líktist manni, í svaðinu utan- vert við götuna. Konuna greip hræðsla og hún fór inn í næsta hús, til óviðkomandi fólks, og hneig hún þar niður á stól. Þegar konan hafði jafnað sig dálítið, og fólkið fór að spyrja hana, hvað fyrir hefði komið, þá varð henni að orði: „Ég sá djöfulinn sjálfan, já, djöfulinn“. En það sem aumingja konan sá var þá bara Ari Þórðarson óður af drykk og dýrslegum lifnaði. Mannsmyndin mátti heita þurkuð út, skegg- ið og hárið skítugt og úfið, fötin forarleðja og um vitin slefjukend vitfirringsfroða, ýmist gaf hann frá sér villidýrsöskur eða samfelda runu af ógurlegustu formælingum. Hitt mannlega eðli var farið veg allrar veraldar, og dýrseðlið á lægsta stigi eitt um hituna. Var nú að undra þó að sveitakonan, sem alla æfina hafði ekki annað séð en sveitina sína í sumarskrúða og vetrarskarti, og aldrei augum litið neitt ljótara en hálffullan bónda við brúð- kaup eða í réttum, þó hún héldi, að það væri andskotinn ilsku flár, þar sem Ari var kom- inn ? Það er bær, ég held á Vesturlandi, sem heit- ir Árnabotn. Þar sér ekki til sólar 18 vikur af árinu, eitt sinn bjó þar bóndi, sem Árni hét, og um hann var gerð þessi alkunna vísa: „Ámi í Botni, allur rotni; ekki er dvgðin fín. þjófabæli, það er hans hæli, þar sem aldrei sólin skin". Ámi þessi bjó með móður sinni og hefir að líkindum ekki orðið gott til kvenna í sinni sveit. Tekst Árni því ferð á hendur í fjarlæga bygð, og ætlaði að leita sér kvonfangs. Árni staðnæmist á efnuðu heimili, og áttu hjóriin eina dóttur barna. Fyrsta daginn, sem Árni dvelur á bænum, er veður stilt, verður Árna þá að orði: „Nú róa bátar mínir í dag“.

x

Svindlarasvipan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Svindlarasvipan
https://timarit.is/publication/621

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.