Skutull

Árgangur

Skutull - 10.10.1924, Síða 1

Skutull - 10.10.1924, Síða 1
sSKUTDLL* Eitstjóri: síra Guðiu. Guðmundsson. sí>%, II. ÁK. ísafjörður, 10. oktober 1924. 41. tbl. Islandsbanki og Höskuldur. Einhver, sem kallar sig Höskuld gjörist til þess í Vesturlandi 7. þ. m. að balda ski'ldi fyrir ía- landsbanka. Ekki skal neitt fást um það þó þessi verjandi bankans fari í dularklæðum, því sé bann sá er kunnugir ætla, mundu orð bans engu ineir metin þótt rétt nafn fylgdi. Höskuldur þessi byrjar mál sitt á því, að kvarta undan rógi þeim, sem ár eftir ár sé borinn á Is- landsbanka. Þetta nær engri átt. Þó Is- landsbanki hafi vérið opinberlega átalinn og vittur fyrir ýms til- tekin atriði og jafnframt heimtuð rannsókn á öðrum, sem óljós þóttu eður dulin, þá er slíkt langt frá að vera rógur. Þetta hefur verið opinberlega gjört, stutt með rökum, sera stjórn bankans ýmist hefur viðurkent, eða ekki getað hrakið til þessa.' Það óljóea hefur hún ekki hirt að gjöra kuunugt. Hvað sem öðru liður mega allir ejá, að hér er ástæðulaust að kvarta um að bankinn hafi rií'gður verið. Getur slik kvörtun ekki komið nema af tvennu. Annað hvort veit „Höskuldur“ ekki hvað orðið rógur þýðir, eða hann af prett- viai leggur í það nýja merkingu. Telur Skutull það síðara öllu líklegra, þó síst þurfi fyrir hið fyrra að synja. Því ekki virðist Höskuldur stíga í vitið. I stað þess að sýna fram á að aðalbankinn væri hafður fyrir rangri s<)k, fer hann að tala um töp útbúsins hér. Urn st'jórn þess og hag hefur ekkert verið talað i blöðunum og var því óþarft og aulalegt af Höskuldi að fara að ropa um handaskolin þar. En Skutull hefur ekki nema ,gaman af að fá sem skýrastar fréttir þaðan, bara sannar séu. En því verður ekki að svo búnu treyst. I Skutli hefur áldrei verið sagt neitt um það, á hverjum Islands- banki hefði tapað. Frá almennu sjónarmiði skiftir það heldur ekki mestu, enda þó það hafi mikið að þýða, ef meta^ skal stjórn bankans á þeim og þeim tíma eða stað. Þessháttar greinargerð heimtar meiri kunnugleik á bókum og basli bankans, en Skutull liefur haft færi á að afia sér. Höskuldi §ýnist hægra um vik, enda er hann byrjaður á tap- skýrslu úibús lslandsbanka hér. Treystir hann þvi að margt má ókunnugum bjóða í frétta ekyni, en kunrtugir munu ekki í neinuin vanda með að vita hve mikil lán hafa veitt veiið í bjarg- ráðaskyni við Súgfii ðinga eða aðra. Gota þeir, sem Höskuldur telur slik lán liaia fengið, vegið þau og metið uns dagur dóms og reikningsskapar upprennur fyrir útbúið. Mætti þá svo fara, að aðrir yrðu mun hærri á ölmusulistanum; saknar Skutull þess ekki, úr þvi Islandsbanki telur sig geta verið „fiott“ eins og Höskuldur kemst að orði. — — — Höskuldur gefur í 6kyn, að bankauiatsnefndin hafi um árið ætlað tfap af lánum við útþú íslandsbanka hér um 600 þúsund krónur. Þetta hefur aldrei heyrst fyrri og mun vist blandað málum eða ruglað saujan við það, sem síðar kom til, enda skiftir það ekki mestu hvað áætlað er, heldur hitt hvað reyDÍst. Og Höskuldur kemst á tíundar lista sinum hvergi nærri alla leið að enda þessarar áætlunar, en afganginum snarar hann svo að miklu leyti i sira Guðmund. Sá ætti að hafa fengið svika- laust í soðið. Hann væri þá heppnari að sinu leyti en þeir, sem sett hafa gróðavonir sinar á þrifnað og þokkasæld Mandsbanka. — — Sakamenn við barn akcnslu. Það lánast ekki öllum eins vel og Gfrafar-Jóni að komast hjá þeim grilum, sem heita lög og dómarar. Verður þvi eigi nema sumt séð af ferli þeirra. Nokkrir verða fyrir þeim ósköp- um, að lög og dómarar eru sífelt á hælum þeirra, hvað lítiö sem út af ber. ■Svo hefur i öllu falli verið áður fyrri. Einn þeirra sem slíkt mátti reyna var Fjalla-Eyvindur. Sýndi hann á sinni tið hve meinhæg, velþenkjandi og sístel- andi lipurmenni lengi og á marga vegu geta komið sér undan refs- ingum þótt dómfeld séu og eftir þeim lýst og leitað. Hann sat raunar ekki við .eætan hag með jafnaði, en svo varð hann líka orðlagður lifandi, nafn- kendur þar á eftir, og nú fyrir skömmu leikinn og lagfærður í kongsius Kaupinhöfn, auk heldur annarstaðar. Ymsir sakamenn slógust til fylgdar við Eyvind um lengri eða skemmri tíma og mundi einnig af þeirra dæmi skynja mega, að satt er máltækið: „Það slær og rær hver með sídu lagi.“ Halla var löngum með E3<-vindi. Svo framarlega sem börnum á fræðslualdri, stúlkum bæði og piltum, er þarft að vita eem glögguet skil á Eyvindi og félögum hans, hefur Sigurður Kristjánsson sóð þar vel fyrir, því eftir sögu Grafar-Jóns lót hann skólabörnin hór vandlega lesa: Bátt frá Fjalla-Ey vindi, Höllu, Arnos, Abraham og Hirti útileguþjófum. /,

x

Skutull

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skutull
https://timarit.is/publication/626

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.