Skutull - 12.10.1928, Qupperneq 3
SKUTULL
i
nitfregnir.
Gunnar Benidiktsson .
Anna Sighvatsdóttir.
Akureyri 1928.
Höfundur sögu þessarar er öll-
um altnenningi áður að góðu
kunnur af sögum sinum: „Niður
hjarnið“ og „Yið Þjóðveginn.“ í
V>áðum þassum sögum deilir hann
á galla núverandi þjóðskipulags,
einkum þó í þeirri siðartöldu.
Þes9Í nýja saga hans er einnig í
sama anda. Hún lýsir lífsbaráttu
ungra hjóna. Þau byrja búskap
fóvana og vinalaus, treystandi á
starfsþrek sitt og lífsorku, Konan
Anna Sighvatsdóttir hefir með
dugnaði og sparsemi unnið fyrir
sór og föður sínum karlægum, en
maður hennar, hefir áeiginspítur
reynt að brjóta sér braut tit menta.
Hann er kominn í 4. bekk menta-
skólans þegar þau bindast hjú-
skaparböndum og hygst að halda
námi áfram eftir hjónabandið.
Æblun hans er að leaa utanskóla
Og taka síðan stúdentapróf.
En alt fer þetta á annan veg.
Þegar fram líða stundir vaxa
örðugleikarnir. Konan, sera að
nokkru leyti hefir unnið fyrir þeim
báðum, miasir heilsuna og getur
ekki starfað; maðurinn verður að
vinna þegar vinna fæst og ástæð-
urnar leyfa honum að vera fjarri
heimili sínu. Um nám er ekki að
tala. Þessir örðugleikar lama lífs-
þrek þeirra beggja. Þau missa alla
trú á lifinu og að lyktum andast
konan í faðmi bónda síns. ör-
birgðin drepur hana i blóma lífs-
ins.
Þannig er aðalefni sögunnar
sagt í fáum orðum.
Hvernig höf. hefir tekist með-
ferð þessa efuis geta menn séð
með því að lesa bókina sjálfir. í
stuttri ritEregn verður slíku ekki
lýst. Þó skal á það bent, að þótt
meðferð efnisins sé alstaðar lýta-
laus og málið gott, þá er frásögn-
in full þur og köld, og höf. virðist
óþarflega mjúkhentur á þeim kýl-
um sem hann færir út úr. En
þrátt fyrir það er bókin hin eigu-
9
TTt-irecrsL
uafnótimj>Ia af öUttm tjct'óutn.
fiýjólfur ^fmason.
legasta og ætti alþýða að eignast
bana og lesa.
Hlín ársrit sambands
norðl. kvenna 12. árg.
Akureyri 1928.
Hlín hefir alla tíð verið fjöl-
breytt að efni, og skemtileg lestrar.
Þetta hefti er kinum eldri engu
síðra. I þvi eru meðal annars 1B
myndir af ýmsum hanDyrðum og
útskornum munum, meðal þeirra
verðlauna húsgögn Ríkarðar Jóns-
sonar, listamanns og verðlauna-
baðstofa Kristinar Jónsdóttur, mál-
ara. Myndura þessum fylgja skýr-
ingar eftir Ríkharð Jónsson og
Halldóru Bjarnadóttur. Fleira er
þar nytsamt og skemtilegt.
Hlín fæst hjá Rebekku Jóns-
dóttur Silfurgötu 9b og í Bökun-
arfólagi ísfirðinga. Yerðið er ein
k'óna. ___________ H.
Leiðarvísir til að nema
ýmsar hannyrðir og
fatasaum.
Svo heitir nýútkomin bók eftir
Elísabetu Valdimarsdóttur. Bók
þessi mun aðallega vera kærkomin
þeim, sem eiga óhægt með að fá
laiðbeiningar viðvíkjandi fatasaum
og hannyrðum, en er líka ómis9-
andi við kenslu.
í bókinni er langt á annað
hundrað myndir, sem eru til nán-
ari skýringar við að nema þessar
hannyrðir
Höf. hefír haldið uppi kenslu
í fatasaum og hannyrðum hór í
bænum undaDÍarin ár, og hlotið
almenna viðurkenningu nemenda
sinna, og annara sem betaskyná
slik störf.
Bókin er prýðilega vönduð að
öllum frágangi og hin eigulegasta.
Hún er, að mór virðist, ómissandi
EPLI
ÁPPELSÍNUR
ágætar teg-undir*.
Kaupfél agið.
25 aura kg. í heilum pokum.
Gulrófiír
kr. 9.50 pokinn.
XC a \xpléla,g°ið.
2>Tý kæía.
Verðið lækkað.
Kaupfélagiö.
við allan saumasksp og ætti að
komast inn á hvert heimili. Þar
að aukí er þetta tilvalin tækifær-
isgjöf handa kvenfólki. Bókin
fæst hjá G-uðbjörgu Guðjónsdóttir
Templaragötu 6.
G. G.
Bókmeutir.
Bókaverslun Gyllendals er nú
að hleypa af stokkunum mjög
merkilegri bókaútgáfu. Verða það
meðal annars skáldrit eftir snill-
inga eins og Dante, Boccacio,
Petraca, Shakespeare, Molíóri,
Rousseau, Goethe, Schiller, HugO,
Dostojofsky, Tolstoy o. fl. Einnig
vísindarit í sagnfræði, heimspeki
og öðrum greinum.
Danskir vísindamenn sjá um
útgáfu þessa.
Alls er gert ráð fyrir 62 bind-
um, 300—400 síðum hvert, er
koma út kálfsmánaðarlega. Verð
hvers bindis er danskar kr. 1.60
í kápu, en 3 kr. danskar í bandi.
W* VERSLIÐ Vlfi KAUPFÉLAGIÐ. -PW