Skutull

Årgang

Skutull - 03.08.1935, Side 2

Skutull - 03.08.1935, Side 2
S K tl T U II C 2 KlíUuátök. Eftir miklar heimiliserjur hjá ihaldsflokknum f Reykjavík hef- ir verið ákveðinn eftirmaður Jóns Þorlákssonar í embætti borgarstjóra. Varð Pétur Hall- dórsson bóksali fyrir valinu. Jakob Möller mun hafa beitt hótunum, ef fram hjá sér yrði gengið, en kjósendanna vegna þorði flokkurinn samt. ekki að taka ábyi’gð á Möller. Að öðru leyti voru tveir þættir borgai'- stjóraorustunnar um þá Guð- mund Ásbjörnsson kaupmann og Thor Tliors, og sá þriðji um fjármálageníið frá Vestmanna- eyjum, Jóhann Jósefsson. Að baki þessum mönnum eru 4 sjálfstæðar klíkur í Sjálfstæðis- flokknum, og mun nú ekki vera friðvænlegt milli þeirra undirniði’i út af þessum mála- lokum. Kaupmannaklíka Reykja- víkur styður Pétur, og er af þessu auðséð, að í Reykjavík er hun sterkasla klíka flokksins, jafnvel svo, að hún ráði niður- lögum Kvöldúlfsklíkunnar. — Nokkuð mun það og hafa stutt að þessum úi’slituin, að öllum her saman um, að Pétur sé ihaldssamasti og þröngsýnasti maðurinn af öllum þeim, sem um var að ræða. Seint er að byrgja brunninn, þegar barnið er dottið í hann. En þó er seint betra en aldrei. Nú hefir ríkissijórninni bor- ist beiðni frá útgei'ðarmönnum á Siglufirði um að loka áfengis- verzluninni frá 25. júlí — 15. september, þegar hæjarfógetan- um lítist þess mest þörf. Áskorun útgerðarmannanna er svohljóðandi: „Yér undirrítadir útgerðar- menn og framlwœmdastjórar, sem atvinnu rekum á Siglufirói, skorum á ríkisstjórnina aó fela bæjarfógelanum hér í bæ aó loka áfengisútsölu ríkisins á tímabilinu frá 2ö. júlí til 15. september, þegar hann lelur, aó þess sé sérslök þörf, og þaó al- veg fyrirvaralaust, t. d. þegar mörg skip liggja hér inni vegna óveóurs eóa að öðru leyti þegar mikil hœtla er á, að óregla eóa óspeklir hljótist af of mikilli á- fengisneyzlu, og þá sérstaklega aðkomufólks. ríelta teljum við nauðsynlegt, svo að eigi horji til vandræða vegna óreglu og óreiðu á ýms- um sviðum, sem stórkostlega mundi tru/la atvinnurekstur vorn, og ekki sjáanlegl, að svo fjöl- menn lögregla verði skipuð, að reglu yrði haldið uppi“. Siglufirði, 10. júlí 1935. (Undirskril'tir.) Sjálfsagt eru það ekki einung- is bindindismenn, sem að þess- ari áskorun standa. En þeir viðurkenna vandræðaástandið. Sjá ekki fram á, að lögregla geti veitt atvinnu þeirra örugga vernd fyrir uppivöðslu drykkju- skaparins, og heimta að brunn- urinn sé byrgður. Svona er það jafnan í áfeng- ismálunum. — Rindindismenn sjá alltaf mannskemmdahættuna, sem af áfengisnautninni stafai'. Andhanningar viðurkenna hana ekki. En þegar líf ÞEIRRA eða fjármunir getur beðið tjón af afleiðingum víndrykkjunnar, þá viðurkenna þeir eins og aðrir, að þörf sé takmarkana. And- banningar telja rétt, að bílstjór- um og skipstjói'um sé bönnuð neyzla áfengis. Það gæti nefni- lega varðað þeirra eigið I i f, ef víndrykkja slíkra manna væri almenn. Og Siglutjarðar- ástandið, sem setur h a g s - m u n i þeirra í hættu,opnar líka augu þeirra fyrir lokunarnauð- syn vínbúðarinnai'. Munurinn á sjónarmiði bindindismanna og andbanninga virðist því greini- lega vei’a sá, að þeir fyr- nefndu vilja takmarka vínnautn vegna almennra skaðsemdar- áhrifa hennar, siðferóilegra og fjárhagslegra, — en þeir síðai’- nefndu eru aðeins með, þegar eigið líf og eigin fjármunir geta beðið hnekki af. — Bindindis- sjónarmiðið er menningar-sjón- armið — en hitt siðlaus ein- staklingshyggja, blinduð eigin- girni. Alþýðuflokksblað. Blaðið »Neisti« á Siglufirði liefir ekki komið út nema ein- stöku sinnum, en nú hefir Jón Sigurðsson, erindreki Alþýðu- sambandsins tekið við ritstjói’n Neista, og kemur blaðið fram-* vegis út vikuléga. — Hafði blað- ið strax mikla þýðingu fyrir gang hinnar snörpu kaupgjalds- deilu, sem atvinnurekendur stofnuðu til á Siglufirði núna í byrjun Síldartímans. — Óskar Skutull blaðinu góðs gengis, og er þegar sannfærður um, að Siglfirðingar eigi eftir að njóta mikilsgóðs af blaði sínu »Neista«. Þeir, sem gerast vilja kaup- endur Neista, ættu að snúa sér til ritstjóra þessa blaðs. Reknetasíld. byrjaði að veiðast hér í fyrri viku, og hefir nú verið góður afli undanlarna daga. Sumir bátar hufa jafnvel fengið 70—80 tunnur á nótivU. Knattspyrnukeppni fór fram í seinustu viku milli þriðja llokks fra knuttspyrnufé- laginu Val í Reykjavík og þriðja flokks úr Herði. — Var keppt tvisvar, og ui’ðu úrslit þau, að Hörður vann í bæði skiftin. Hið fyrra með 3:2 og hið síð- ara með 2:0. Mega ísfirskir knattspyrnu- menn una xnjög vel við þessi leikslok, einkum sökum þess, að þeir bafa nálega ekkert getað æft sig í vor, vegrxa viðgerðar íþi'óttavallarins. — Margir á- horfendur voru að kappleikjum þessum, enda er það ágæt skemmtun að horfa á knalt- spyrnu, þegar fjör er í leiknum og áhöld um frækni beggja sveita. Arngrímur Bjarnason, bóndi á höfuðbólinu Mýrum, mun vera hættur búskap og ætla að flytja hingað á mölina með fjölskyldu sína. Hefir lieyrst, að hann hafi keypt húseignina Ilafnarstræti 11. Kighóstinn hefir enn orðið barni að bana hér í bænum. Endurnýjun happdrættismiða til sjötta flokks er byrjuð. — Eru vinningar 350 og upphæð vinninga samtals kr. 71 000,00. Skólastjóraskifti. Steingiímur Steinþórsson hefii látið af skólastjórn bændaskólans á Hólum sökum- þess, að hann hefii nú tekið við embætti búnaðai- málastjóra. í hans stað hefir Kristján Karli- son, systursonur Sigurðar íyrrum búnaðarmálastjóra verið skipaðui skólastjóri á Hólum frá 1. þ. m. að telja. Kristján er ungur maður og heflr að undanförnu verið ráðu- nautur Búnaðarsambands suður- lands og bústjóri í Gunnarsholti. Knattspyrnukeppni. Staifsmenn í Kaupfélagi ísfiið- inga og Bökunarfólagi ísfiiðinga hafa skorað á staifsmenn víð veizlun Ólafs Kárasonar, veizl. Bj. Guðmundssonar, Smjörlíkisgerðar- innar og Gamlabakarísins i knatt- spyrnu laugatdaginn 3 ágúst næst- komaudi. Níræðisafmæli átti öldungurinn Jón Þórðarson dýralæknir þann 17. þessa mánað- ar. Hefir Jón nú verið blindur i mörg ár. — Er margt merkilegra i æfisögu hans en ýmsra þeirra, sem ástæða hefir þótt til að láta á þrykk út ganga. Talsamband við útlönd var opnað í gær. Er það mjög merkur atbuiður til aukinna tengsla milli íslands og umheimsins, og getur haft stórmikla viðskiftalega þýðingu. i Bækur, „Áp í lielvíti“. Eftir Volfgang Langhoff. Fyrir nokkrum dögum er út komin í Reykjavík athyglisverð bók, sem svo heitir. Gefur hún átakanlegar lýsingar af lífinu í þýzku fangaherbúðunum, og er því spennandi eins og skáldsaga. En því miður eru það sannir atburðir sem hún skýrir frá. Er höfundur hennar leikari, sem árlangt var haldið í þessum kvalastöðum, sem nazistastjórnin þýzka hefir búið út til að seigdrepa póiitíska andstæð- inga, aðailega jafnaðarmenn og kommúnista — og gyðinga. Höf- undurinn segist geta svarið, að hann segi ekkert nema sannleikann um dvöl sína í fangabúðunum. Er það óneitanlega ljótur sannleikur um meuningu vesturlanda á 20. öld. Bók þessi verður seld hér í bænum mjög bráðlega. Ný veiðiaðferð. Verðmæt fisktegund, sem ekki hefir verið notuð hér við land, veidd hér í Djúp- inu undanfarna daga. Árið 1924 fLuttist Norðmaður- inn Sirnon Oluen hingað til bæj- arins. Hafði hann þá i forum sín- um lifcil veiðitæki til Rækjuveiða. En Rækjan er lítil krabbategund, rauð á lit og almennt köfluð „kampalampi® á máli sjómanna. Er hún náskyld humrunum, sem mikið eru veiddir til manneldÍB i Norðursjónum og við Norður- Ameriku og þykja dýrindis fæða. Á árinu 1924 reyndi Símon Olsen ásamt 0. Gr. Syre að veiða rækjur hér í Djúpinu. Fengu þeir félagar etrax reynslu fyrir því, að nóg var tii af þeim, en markaður enginn. Hættu þeir svo veiðiskapnum og hafa ekki feng- ist við hann hér, fyr en nú. í vor pöntuðu þeir Olsen og Syre fullkomin rækjuveiðarfæri frá Noregi, og munu þau hafa kostað um 2000 krónur. Hafa þeir nú tekið mótorbát á leigu, og lögðu af stað i veiði- för inn 1 Djúp 28. júli sl. Fengu þeir i það sinn aðeins nokkra litra. Siðastliðinn mánudag lögðu þeir fólagar enn af stað og reyndu nú utarlega í Djúpinu — út af Jökulfjörðum á ca. 80 faðma dýpi. — Veiddu þeir þá vel, og ónýttist all mikið af aflanum vegna þess, að þeir höfðu ekki nógu stórvirk suðutæki i bátnum* en rækjurnar verður að sjóða etrax lifandi ur sjóuum. Settu þeir þá stór suðutæki 1 lest bátsins, og hafa veitt vel siðan. * Rækjurnar eru, eins og frænd-

x

Skutull

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skutull
https://timarit.is/publication/626

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.