Skutull - 03.08.1935, Page 3
SKUTUtL
a
Gerist kaupendur
SKUTULS
Blaðið kostar aðeins 5 kr. á
ári, eða tæpa ÍO aura á viku.
ur þeirra Leturbumarinn og hum-
arinn, ljáffeng fæða, og meðal
dýrustu sjávarafurða í Danmörku
og Englandi — þrjár til fjórar
krónur kxlóið og jafnvel hærra
verð. Eru þær margvíslega mat-
reiddar, bæði sem ofanálag á brauð
og einnig i salöt, sópur og sósir,
einkum með fiskibollum. Hausinn
er tekinn af með einu handtaki
og fiskinum síðan þrýst át ór
skelinni með fingrunum.
íslendingar kunna fæstir að
borða þessa Ijúffengu fæðu, en
borið saman við norska bæi á
stærð við ísafjörð, væri eðlileg
neyzla af rækjum hér ca. 100 kg.
á dag.
Nathan & Olsen annast sölu á
þeim rækjum, sem þeir Simon
Olsen veiða, og er lieykjavik aðal-
markaðsstaðurinn fyrst i stað, En
liklegt er, að eitthvað verði fljót-
lega flutt af þeitn til Englands,
þar sem þær eru i geypiverði. —
Hér í Kaupfólaginu geta bæjar-
bóar fengið nýjar rækjur- Er þeim
stillt át í glugga Kaupfélagsins,
og geta menn sóð þær þar. Ætti
fólk ekki að láta útlit skepnunn*
ar hræða sig, heldur herða upp
hugann og smakka.
íslendingar kunna ekki að
borða sild, og fyrir nokkrum ár-
um kunnu þeir heldur ekki að
veiða hana.
íslendingar kunna yfirleitt ekki
að notfæra sór nema algengustu
og ódýrustu fisktegundir. Þeir vilja
ekki veiða annan sjávarafla en þann,
sem hægt er að rífa upp í skips-
förmum á stuttum tíma. En þetta
verður að breytast. ísland liggur
umkringt beztu fiskimiðum heims.
íslendingar verða því að verða
forustuþjóð um notkun þeirra
auðæfa, sem hafið geymir. — Flest-
ar beztu vonir íslendinga eru
bundnar við hafið og gnótt þeirra
verðmæta, er vinna má ár þeim
íeng, sem þangað er sóttur.
Guðmundur Geirdal, skáld,
var fimmtugur í gær, Sendu
margir bæjarbúar honum hlýlegar
kveöjur fyrir hugheilt samstarf í
þágu sönglífsins í bænum og bind-
indismálanna. Bins og ísflrðingar
allir vita, er Gruðmundur enn eins
og ungur maður að vallarsýn, og
því ekki ólíklegt, að hann kunni að
lifa annað fimmtugsafmæli.
Flokkssprenging — Kosn-
ingahræðsla — Kisuþvottur
— útskúfun ogkaupmennska.
Eftir að ihaldsmeirihlutinn í bæj-
arstjórn Reykjavíkur hafði ákveðið
að kjósa Pótur Halldórsson bóksala
sem borgarstjóra í höfuðborginni,
lýsti Jakob Möller, formaður Sjálf-
stæðisflokksins í bæjarstjórninni
því yflr, að hann mundi ekki greiða
Pétri atkvæði og annaðhvort kjósa
sjálían sig eða sitja hjá.
Sló þá felmtri miklum á íhalds-
liðið, því margir af atkvæðasmöi-
um flokksins fylgdu Möller, og
leit á tímabili út fyrir, að flokkur-
inn mundi klofna út af baráttunni
um borgarstjóraembættið.
Péturs-sinnar héldu fundi sér,
og Jakobínar sór, og miðstjórn
Sjálfstæðisflokksins gaf út yfirlýs-
ingu. í henni var þetta meðal ann-
ars:
„ Þegar í stað eftir andlát Jóns Þorlaks*
sonar höfðu margir af áhrifamönnum
Sjálfstæðisflokksins augastað á Jakob.
Möller til þess að takast á hendur
borgarstjórastarfið í Reykjavík, og
voru í þeim hópi msðai annara
allflestir meðlimir foringjaráðs Varð-
arfólagsins‘‘.
þetta var huggunarkaíli yflrlýs-
ingarinnar. En svo kom útskúfun-
arkaílinn rétt. á eft.ir. í houum
stóð þetta:
„Niðurstaðan varð þó að lokum
sú, að annar ágætur maður var
valinn til stöðunnar og var orsök
þess einkum undirróður sá, sem
undanfarin ár heflr átt sór stað
innan flokksins gegn Jakob
Möller".
Mun hór átt við kvaitanir heið-
virðra fcjálfstæðismanna yflr því
dekri, sem foringjar íhaldsins hafa
haft í frammi við Möller þrátt
fyrir allar hans stórkostlegu ávirð-
ingar, sem öll þjóðin að kalla má,
hefir íoidæmt mjög eindregið.
Þá kemur þvottakaflinn:
„Er því sórstök ástæka til að
að taka fram, að allar þær sakir,
sem Jakob eru bornar á brýn, eru
öldungis ástæðulauBar og samheldn-
inni innan flokksins stórhættulegar".
Það er vitanlega hætt við því,
að heiðarlegt fólk innan Sjálfstæð-
isflokksins reyni eitthvað að losa
um flokksbönd s{n, þegar slíkii
menn eins og Jakob Möller skipa
æðstu sætin í áhrifamiklum stjóm-
málaflokki og er varinn í líf og
blóð { trássi við almenningsálit
heillar þjóðar. En ekki er líklegt,
að allir Sjálfstæðismenn sannfærist
um hreinleik Jakobs, t. d. að hann
hafl rækt bankaeftirlitið með alúð
og samvizkusemi, þrátt fyrir þenn-
an seinasta kattarþvott miðstjórnar
Sj álfstæðisflokksins.
Niðurlag yfirlýsingarinnar er svo-
hljóðandi:
„Verður því að víta harðlega
allan undirróður, sem átt hefir sér
stað inuan Sjálfstæðisflokksins gegn
Jakob Möller og þá menn, er að
slíku standa".
Reykjavík, 30. júlí 1935.
F.h. Miöstjórnar Sjálfstæðisflokksins
Ólafur Thors.
Niðurlagið segir svo mikið sem
þetta: „Skammist þið ykkar allir
Sjálfstæðismenn, sem ekki hafið
trú á Jakob Möller. — En þó
hefir miðstjórnin hafnað honum í
þet.ta sinn og lagt út í harða
innanflokksbaráttu af hræðslu við
atkvæðaafleiðingar þess, ef Jskob
yrði borgarstjóri. Af hverju skeður
slíkt nema af trúleysi sjálfrar mið-
stjóinarinnar áþessum sama Möller,
sem einu sinni átti að hafa eftirlit.
með bönkum og sparisjóðum?
Þjóðin spyr, ogskemmtir sór við
þessa kostulegu yfiilýsingu mót-
sagnanna.
Nýjar kosningar hefðu leitt af
því í Rvík, ef Jakob Möller hefði
setið hjá eða kosið sjálfan sig við
borgarstjórakosninguna sl. fimmtu-
dag. Vissu allir, að undir slíku
þorði íhaldið ekki að eiga fyrir
nokburn mun, því þar með hefði
fylgishrun þess síðan við seinustu
alþingiskosningar orðið þjóðinni
opinbert. Það var því talið full víst,
að Jakob hefði tiyggt sér ný frið-
indi í flokknum gegn því að rétta
upp putana með Petri, enda fór
það svo, og náði bóksalinn þannig
kosningu. — Jón gamli Ólafsson
lót svo um mælt fyrir nokkrum
árum, að yfirleitt svíbju hundar
ekki húsbændur sína, meðan þeir
hefðu kjötbein í kjaftinum, en þvi
mætti alltaf búast við aí Jakob
Möller. Tflefni þessara orða var það,
þegar Framsókn veitti Möller banka*
eftirlitið fyrir pólitískar vonir í
frjálslyndisleyfum hans. — Spá Jóns
rættist í það sinn. Ætli hún geti
ekki líka ræzt, enn.
I. flokkur:
Nr. Nr. Nr. Nr. Nr. Nr.
7 42 72 110 157 231
9 50 73 114 169 238
15 52 96 130 182 248
20 61 87 146 210 271
28 70 108 152 217 285
II. flokkur: Nr. 36, 37, 41, 51
I^-úgur er meðal hollustu
uæringarefna. — Gelið börn-
um yðar, og étið sjálf, meira
af rúgbrauði.
Reynið rúgbrauð frá Bök-
unarfélagi ísfirðinga.
Bæði seydd og óseydd.
Ekkerl brauðgerðarhús á I
Vesturlandi framleiðir nú I
meira af þessari brauðteg- I
und en Bökunarfélagið.
NýLízku tæki til brauðgerðar,
Kajaka-kappróður
Til ágóða fyrir sundlaug á ísa-
firði, fer fram á sunnudaginn og
hefst laust eftir hádegi. Lagt verð-
ur af stað frá Shellbryggjunni á
Stakkanesí, róið út með landi íétt
fram hjá Torfnesbryggju, milli Es.
Elínar og lands, rétt fram bjá
bæjarbryggjunni og endað niðri í
bátahafnarmynni.
Skilyrði fyrir þátttöku í kapp-
róðri þessum er sundkunnátta. Bát-
ar verða látnir fylgja ræðurunum
til frekara öryggis. — Aðgangur
koslar 50 au. og er með því fé,
sem safnast, stofnaður sjóður til
sundlaugatbyggingar hér í bænum.
Börn fá ókeypis aðgang. — Ætl-
unin er i framtíðinni að æfa her
knattleik á kajökum, ,eins og mjög
er nú tíðkað víða erlendis. Eru til
þess óvenjuleg skilyrði á svo köll-
uðum „Músling* sundamegin við
Suðuitangann.
Spariö kostnadT
Á öðrum stað í blaðinu auglýsir
bæjaifógetinn lögtak á þinggjöldum
yflrslandandi árs. Ættu menn að
spara sér þann kostnað, sem af
lögtaksinnheimtunni leiðir, ef þeir
hafa nokkur tök á að greiða gjöld.
in fyrir tilskilinn t.ima.
286 417 430 493 520
318 418 447 494 522
322 421 453 496 550
365 424 465 508 580
366 426 468 516
ísaflrði, 2. ágúst 1935.
Samvinnufélag isfiröinga.
Sérstakt tækifæril
Fimm manna fólksbifreið (Chryslei) í ágætu standi til sölu nú
þegar. Hagkvæmir greiðsluskilmálar. Leitið samninga við
Aðalstein Richter
Tangagötu 6.
Tilkynning,
Útdráttur á skuldabréfum vorum frá 17. maí 1932 heflr farið fram,
og hafa þessi skuldabréf verið út dregin:
Ni. Nr. Nr. Nr. Nr.