Skutull

Árgangur

Skutull - 03.08.1940, Síða 1

Skutull - 03.08.1940, Síða 1
SKUTULL CTtgefandi: Alþýðusamband Vestfirðingafjórðungs. Prentstofan Ísrún. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: GUÐMUNDUR GÍSLASON HAGALÍN. XVIII. ár. Iaafjörður, 3. ágást 1940. ‘29. tbl. Flísar | og plötur V á veggi og gólf. Asfaltlím, Dúkalím. Kr. H. Jónsson. Sjálfstæði íslendinga 1. íslenzka þjóðin á ekki að baki sér langa sögu, samanborið við ýmsar aðrar þjóðir. En við ís- lendingar höfum öllum þjóðum ítemur glögg gögn um sögu okkar frá upphafl vega — svo glögg gögn, að þau voru okkur á 19. öld og fyrstu áratugum þessarar aldar svo að segja einhlítt vopn í baráttunni fytir endurheimt sjálfstæðis okkar. Sagan íslenzka sýnir okkur, hvernig við, strax og við kom- umst undir erlent vald, etum sv ptir umsömdum réttindum og lögum skipað í landi eftir erlendu valdboði. Hún sýnir okkur einnig, hvernig erlent vald miðar veizlun og viðskipti öll við aðra hagsmuni en okkar eigin. Hún sýnir okkur, hvernig erlend refsilöggjöf er Uutt til landsins og látin gilda hér án tillits til okkar eigin skoðana um þessi efni. Hún sýnir okkur, hvern- ig erlent fjármála- og verzlunar- auðvald þjakar þjóðina, dregur dáð úr atviunuvegunum og verður valdandi að eymd og mannfeili. Hún sýnir, hvernig þjóðin var þjökuð af refsingum, sem stóðu í engu skynsamlegu hlutfalli við af- brotin. Hún sýnir okkur, að jafn- vel þá er hið erlenda ríkisvald, hið upplýsta einveldi í Danmörku, undir sterkum áhrifum frá skyn- semistefnunni í andlegum og ver» aldlegum efnum, verður máttlaust og getulaust til bjargar og úr- lausnar, þar sem annarsvegar var erlent veizlunar- og auðvald. Og hún sýnir okkur, hvernig þjóðin rís úr öskustóuni, strax og hún fær að ráða sjálf fjármálum sínum og atvinnumálum, hvernig hinar hæstu vonir forvígismannBÍns mikla, Jóns Sigurðssonar, rætast ein af aunari, og þjóðin á sumum svið- um fer fram úr því, sem hinir djörfustu leiðtogar hennar hafa þorað að vona. 2. Allir vita, að það, sem við höfum öðlazt af frelsi og fram- förum, höfum við ekki öðlazt. í baidaga með byssu eða sverð í hönd. Við eigum þar allt að þakka þeim straumum andlegs frelsis, sem flæddi yfir flest lönd Evrópu á 18. og 19. öld — og enn eru ekki að fullu stöðvaðir. Við mátt- um beita rökum í baráttu okkar, máttum það í riti og ræðu. Án hugsana-, mái- og rit.fielsis heíði okkur bókstaflega ekkert á u n n i z t. Og barátta íslenzkrar alþýðu inn á við hefði einnig ver- ið ómöguleg án þessa frelsis. 3. Nú er mjög skipt um í hinum svokallaða menntaða heimi — víðast hvar. Rétturinn til að hugsa, tala og rita frjálst er tekinn af mönnum. Og réttur þjóða, stórra og smárra, er að vettugi virtur. Riki og þjóðir hafa veiið beittar vald', blóði þeirra úthellt og þær sviptar frelsi. Norðmenn, Danir, Ilollendingar, Belgar, Prakkar, Pól- verjar, Pinnar, Tékkóslóvakar, Eistar, Leltlendingar, Litháar, Rúmenar, Luxemburgarmenn — — og að nokkru leyti ýmsar aðr- ar þjóðir — þar á meðal við ís- Iendingar — hafa orðið fyrir meira og minna þungum búsifjum. En þrátt fyrir allt þetta, sem gerzt heflr — og þrátt fyrir skýr rök okkar eigin sögu, er fjöldi manna hér í landi, sem ekki aðeins segir: Það, cem veiður að vera, vilj- ugur skal hver bera, heldur hreiht og beint óskar hér eftir erlendum yflrráðum. Þetta er sannleiki, sem engum þýðir í móti að inæla, er ekki hefir lokað aug- um og eyrum hina síðustu mánuði. Hver er þó sá, sem ekki, ef hann hugsar sig um, geti í ljósi sögu okkar og annara þjóða, séð það skýrt og greinilega, að hvers- konar erlent vald sem væri, frá hvaða riki sem það kæmi, og hvað sem það bæri í brjósti gagn- vart okkur, mundi verða okkur fjötur um fót? Því sjálfs er hönd- in hollust. Við einir getum haft þau sjónarmið, sem okkur henta, Við einir þekkjum tilfinningar þjóðarinnar og arfgengar menn- ingarlegar afltaugar hennar. Við einir miðum atvinnu- og fjármála- framkvæmdir íslenzku þjóðarinnar við hennar eigin þaifir og háttu. Við einir erum börn þessa lands og börn þeirrar þjóðar, sem bar- izt hefir hér við óblíðu láðs og lagar og erlent fjárdráttarvald í öld eftir öld. Við vitum, að jafnvel umbóta- þyrst og velviljuð dönsk stjórn var máttlaus hér til úrbóta og fram- fara á 18. og 19. öld — og megn- aði ekki að hafa vald á umboðs- mönnum sínum, hvað þá fjár- dráttarvaldinu danska. Við vitum einnig, að allt breyttist hér á skammri stund til bættra kjara og meiri menningar, strax og við fengum að vera okkar eigin for- sjá. Þetta eru staðreyndir, sem ekki veiður á móti mælt, og þeir, sem ekki hirða um þær, en óska okkur erlendrar stjórnar, hver og hvaðan sem hún er, eru annaðhvort þjóðfélagslegir og menningarlegir óvitar — eða þá, að þeir láta allt annað ráða en beztu vitund um það, hvað þjóð þeirra er fyrir beztu. 4. Nú munu ýmsir segja: Við ráð- um engu um það, á hverju velt- ur í veröldinni, og við okkur verður gert, hvað sem þeim hin- um stóru og háu herrum sýnist,, sem ofan á verða — og svo þýðir ekkeit um þessi mál að hugsa — og það er sama, hvaða skoðanir menn hafa á þeim. Það er rétt: Við ráðum því miður engu. Við getum ekki varið okkur, hve fegnir sem við vildum. Því er nú erlendur her hér í landi. Eq hitt er hinn herfilegasti og háskalegasti misskilningur, að við eigum þar með að veiða tóm- látir um það, hvernig allt veltist — eða endilega telja sjálfsagt, að víkja okkur á veg þeirra, sem bet.- ur hafa þá eða þá. Því hið eina, sem gefur okkur vonir fyrir fram- tíðina, hver sem nær hér tökum á stjórn landsins, á auðliudum þess og atvinnuvegum, er það, að við höldum viljanum stælt- um til að vera við sjálfir, vera íslenzkir menn, hver og einn, vera allir í heild íslenzk þjóð, hvað sem yfir dynur. Jifuvel undir erlendti stjórn munum við geta háð bar- áttu fyrir andlegu og menningar- legu sjálfstæði okkar, og ef okkur tekst að halda því, þá mun fyrr eða síðar gefast tækifæri til nýrrar endurreisnar, því fyrr eða síðar mun birta yfir. Pyrr eða síðar munu hinar einstöku þjóðir b jóta af sér hvert erleut ok og hin andlegu öfl á ný verða yfirsterk- ari vólbyssum, flugvélum, fallbyss- um og öðrum morðtólum. Alþjóðamálin og styrjðldin. Ástand það, sem skapaðist i Þýzkalandi eftir heimsstyrjöldina 1914—’18, var hið herfilegasta. Á þýzku þjóðina voru lagðar hinar ógurlegustu byrðar, en hinsvegar var hún svipt mögu- leikunum til þess að geta borið þær án þcauta og hörmunga, þar sem mjög var að henni þrengt um landrými í öðrum heimsálfum. Áður en Hitler tók völdin, var svo komið, að götubardagar milli kommúnista og nazista voru orðnir daglegt brauð, og gátu friðsamir menn ekki farið leiðar sinnar án þess að eiga á hættu að verða skotnir, þvi að hin löglega stjórn landsins réð ekki við neitt með þvr lögreglu- og hervaldi, sem henni var leyft að hafa. Mjög mikill hluti þjóðarincar hugsaði svo á þá leið, að allt vildi hann heldur en þetta niðurlægingar- ástand áfram — át á við og inn á við. Og Hitler, sem sýndi, að hann bæði vildi og þorði, varð ofan á Hann rétti svo hina þýzku þjóð úr kútnum og gaf henni nýja von um völd og sigra, og honum var mætt af Bretum og Frökkum á tvo vegu, sem báðir voru jafn heimsku- legir. Annar var sá, að neita að verða við hverri ósk hans, þó að sumar þeirra byggðust á lifs- nauðsyn Þjóðverja; hinn var að láta alltaf undan, þegar til al- vörunnar kom, þangað til allt var orðið um seinan og stór- styijöld óumflýjanleg. Svo er ná komið sem komið er. Þjóðverjar hafa þegar skammtað sér Austur- riki, Tékkóslóvakíu, bróðurhluta Póllands, Holland, Belgíu, Fi akk- land, Noreg og Danmörku. GagnvartRússum spiluðu Banda- menn líka úr höndum sér möguleik- unum;þeir létu hjáliða að notatæki- færið, þegar Austurriki og Tékkó- slóvakía voru tekin og Stalin hafði enn andatöðu gegn Þjóð- verjurn — og ekkert samkomulag var orðið milli Rússlands og Þýzkalands. Hvað hefir svo orðið ofan á hjá Rússum? Allir vita, að þeir lýstu sig verndara smáþjóðanna, haturs- menn þýzka nazismans o. s. frv. En þeir sömdu við nazista, réð- ust aftan að Pólverjnm og tóku

x

Skutull

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skutull
https://timarit.is/publication/626

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.