Skutull - 15.08.1945, Qupperneq 4
150
SKUTULL
Kosningarnar í Bretlandi.
X^úgur er meðal hollustu
næringarefna. — Gefið börn-
um yðar, og etið sjálf, meira
af rúgbrauði.
Reynið rúgbrauð frá Bök-
unarfélagi Isfirðinga.
IEkkert brauðgerðarhús á
Vesturlandi framleiðir nú
meira af þessari brauðteg-
und en Bökunarfélagið.
Bæði seydd og óseydd.
Nýtízku tæki til brauðgerðar
HANDKNATTLEIKSMÓT annars
flokks fór fram hér í bænum s.l.
sunnudag. Drjú félög tóku þátt í
mótinu: Vestri, Grettir á Flateyri
og Stefnir í Súgandafirði. — Vestri
vann mótið.
Á DRENGJA-MEISTARAMÓT ÍS-
LANDS í Reykjavík fóru héðan úr
bænum þeir Ingvar Jónasson og
Gunnar Sumarliðason og tóku þar
þátt í 400, 1500 og 3000 metra
hlaupum.
Ingvar varð sá fiinmli í 400 mtr.
hlaupi, fjórði í 1500 metra hlaupi
og sá fimmti í 3000 metra hlaupi.
Gunnar tók þátt.í 1500 metr. hlaupi
og varð sá áttundi að marki.
REKNETAVEIÐI. Héðan úr bæn-
um stunda nú 5 vélhátar síldveiði
með reknetum, tveir hátar úr Súða-
vík, fjórir úr Bolungavik, þrír úr
Hnífsdal og einn frá Þingeyri. Hafa
þeir allir fengið sæmilega veiði
hér í Djúpinu nú um 10 daga
skeið. Bezt hefir veiðin verið fram
undan Sandeyri.
Ishúsin hafa nú fengið allmikið
af síld til beitu, og síldarútvegs-
nefnd hefir verið send heiðni um
1000 tómar tunnar til söltunar. En
Það furðulega hefir skeð, að þess-
ari beiðni hefir verið synjað.
Verður ekki annað séð, en að
tómar tunnur á Siglufirði séu tald-
ar betra búsílag hjá ríkinu en full-
ar hér.
FRÁ SlLDVEIÐI ísfirzku lierpi-
nótaskipanna:
Grótta ............ 4659 mál
Richard ........... 2761 —
Huginn 1........... 3591 —
Huginn II.......... 4190 —
Huginn III......... 2357 —
Auðbjörn .......... 1676 —
Ásbjörn ............ 505 —
Gunnbjörn ......... 2201 —
Sæbjörn ........... 1832 —-
Valbjörn .......... 1281 —
Véhjörn ........... 1414 —
HJÓNAEFNI. Nýlega liafa opin-
berað trúlofun sína, ungfrú Hólm-
fríður Einarsdóttir frá Loðmundar-
firði og Ólafur Sigurðsson í Bæj-
um á Snæfjallaströnd.
-------O--------
Blam AKRANES,
hefir komið út á fjórða ár. (Það
fæst nú frá uppliafi aftur). Kemur
út mánaðarlega a. m. k. 12 síður
hverju sinni. Árg. kostar 20 kr.
Blaðið flytur fjölhreytt efni. M. a.:
Ævisögur- íslenzkra athafnamanna.
Sögulegan fróðleik um Akranes, svo
og aðra sagnaþætti. Það flytur
margar greinar um alhliða menn-
ingarmál sem alla landsmenn varða.
Vísnahálk og ritdóma um hækur o.
fl. Blaðið er prentað á mjög vand-
aðan pappír og jafnaðarlegast prýtt
fjölda mynda.
Kosningaúrslitin
í Bretlandi,
sem tilkynnt voru síðastliðinn
fimmtudag, liafa dregið að sér at-
hygli alls heimsins undanfarna
daga, eins og farið liefði jarðskjálíti
um allan hnöttinn.
1 fyrsta sinn í sögu veraldarinn-
ar hafa kjósendurnir í háhorg auð-
valdsins og jafnframt elzla þing-
ræðisríki heimsins, gefið andstæð-
ingum auðvaídsins', lýðræðisjafnað-
armönnum, stórkostlegan meiri-
hluta á þingi, gefið þeim óskoruð
völd um fimm ára skeið.
Þessi sigurfregn mun að líkind-
um hljóma líkt og líkahöng í eyr-
um margra þeirra, sem enn liafa
trúað á framtíð hins gamla auð-
valdsskipulag og voru, þrátt fyrir
allt, sem á undan var gengið, farnir
að vona, að allt myndi falla aflur
í sinn góða og gamla farveg —
farnir að prédika á ný hoðskap
hins óhefta frjálsa framtaks ein-
staklingshyggjunnar, og farnir að
undirhúa á nýjan leik stórfellt arð-
rán alþýðunnar, sem víðasthvar
hafði verið stöðvað í bili, meðan
á stríðinu stóð (nema á Islandi).
Winston Churchill.
Og íhaldsöflin um heim allan
höfðu með réttu nokkra sigurvon.
Ihaldsflokkurinn í Englandi gekk
til kosninga undir merkjum glæsi-
legs stríðsleiðtoga, manns, sem það
að visu liafði aldrei viljað viður-
kenna á friðartímum, og ekki fyrr
en Verkamannaflokkurinn neyddi
forustu hans upp á það eftir ófarir
og axarsköft Chamberlains. öll
hrezka þjóðin og allir lýðræðis-
sinnar um lieim allan viðurkenna
þakkarskuld sína við Churchill
fyrir forustuhlutverk hans á stríðs-
árunum. En hrezku kjósendurnir
kusu ekki um mann eða menn,
heldur um málefni. Ennþá einu
sinni sannaði hin hrezka lýðræðis-
þjóð, að hún er ófáanleg til að
leggja örlög sín í hendur einum
manni, hversu vænt sem henni
þykir um hann, nema hún geti
skilið stefnu hans og fylgt henni
Þess vegna féll Churchill svo djúpt
á hápunkti lýðhylli sinnar.
Um ástsæld Churchills þarf ekki
að efast. En einmitt þessvegna
lilýtur öllum lýðræðissinnum að
vera margföld uppörfun af kosn-
ingaúrslitunum í Bretlandi.
Stefnuskrá Churchills.
En hvernig var sú stefnuskrá
liins mikla stríðsleiðtoga, sem
kjósendur Bretlands dæmdu hann
úr leik á?
Hún var alls ekki nein venjuleg
íhaldsstefnuskrá eins og það, sem
íhaldsflokkar liér og annarsstaðár
huðu upp á fyrir stríðið. Churchill
lofaði fullkominni alliýðutrygg-
ingalöggjöf, miklum húsahygging-
um og alhliða umhótum að öðru
leyti. Hann talaði jafnvel um fjög-
urra ára áætlun.
En í megindráttum vildi hann
halda liinu gainla skipulagi á fram-
leiðslunni. Einkaframtakið átti að
leysa vandamál framleiðslunnar að
mestu leyti. Hann þrumaði á móti
skipulagningu framleiðslunnar og
áætlunar-þjóðarbúskap. Einkaauð-
valdið var að lians (lómi fært um
að skapa atvinnu lianda öllum, ef
því væru gefnar frjálsar hendur og
uppörfun af hálfu hins opinhera.
Við þekktum þessar kenningar hér
heima, áður en Morgunhlaðið birti
aðalkosningaræðu Churchills með
mjög lofsamlegum ummælum.
En hrezka þjóðin hafði líka
heyrt þenann boðskap oft áður af
munni margra glæsilegra stjórn-
málaleiðtoga sinna. Hún trúði hon-
um ekki oftar. Hún þckldi bölvun
Iiinnar sl<i pulagslausu aaöixtlds-
framleiöslu fijrir slriöiö. — Hún
þekkti atvinnuleysið, og eymdina,
húsnæðisskortinn og sóðaskapinn,
sem viðgengist hafði í móðurlandi
hinnar frjálsu samkeppni og fram-
taks einstaklingsins. Hún hafði
sannreynt galla hinnar skipulags-
lausu framleiðslu og liún hafði líka
skilið ko'sti hinnar skipulögðu
framleiðslu, eins og þeir liöfðu
hirzl í stríðsframleiðslunni, þegar
leiötogar Englands höföu neyöst til
aö taka upp a& verulegu leyti
skipulag sósialismans, lil þess aö
foröa Bretlandi og öllum hinum
lýöræöissinnaöa heimi flá því aö
farast. Og þessvegna sagði hún nei,
takk við hinni fallegu stefnuskrá
Churchills. Ilún vildi ekki aftur í
sama farið. Hún krafðist nýskipun-
ar á atvinnumálum landsins, raun-
verulegrar nýsköpunar.
Bylting' vorra tíma.
Hinn nýi forsætisráðherra Bret-
lands, jafnaðarmaðurinn Clement
Attlee, lét svo um mælt, að kosn-
ingasigurinn táknaði nýja öld. —
Þessi ummæli hans og margra
fleiri af forystumönnum hrezka Al-
þýðuflokksins bera þess vitni, að
þeim er Ijóst liið mikla sögulega
hlutverk, sem nú hefir verið lagt á
lierðar þeirra. Þeir hafa verið
kjörnir til þess af meirihluta hinn-
ar elztu og að ýmsu leyti þroskuð-
ustu lýðræðisþjóðar heimsins að
framkvæma á friðsamlegan og lýð-
ræðislegan liátt, byltingu vorra
tíma, eins og Harold Laski, fram-
kvæmdarstjóri brezka verkamanna-
flokksins, hefir kallað þau alda-
hvörf, sem nú eru að verða. öld
auðvaldsskipulagsins er að kveðja,
— öld sósíalismans, hinnar skipu-
lögöu eöa þjóönýltu framleiöslu er
aö rcnna upp.
Það er bylting vorra tíma, ekki
stjórnarfarsleg bylting, eins og
franska stjórnarbyltingin, heldur
hylting á sviði framleiðslu og við-
skipta. Fyrsti stóri áfanginn í
þeirri byltingu er rússneska stjórn-
arbyltingin 1917. Hún var og um
leið að nokkru leyti stjórnarfars-
hylting, því áhrifa frönsku bylting-
arinnar hafði sáralítið gætt í
stjórnarfari Rússa fram til þess
tíma. Rússneska hyltingin hafði því
allt aðrar sögulegar forsendur en
þær, sem voru i löndum Vestur-
Evrópu og víða annarsstaðar, þar
sem livítir menn húa.
Nazisminn var tilraun af hálfu
fylgjenda auðvaldsskipulagsins til
að stöðva hina efnahagslegu hylt-
ingu sósíalismans. Sú tilraun liefir
mistekist fyrir hina hetjulegu har-
áttu og mótstöðu fólksins í löndum
bandamanna. Þetta fólk er nú að
heimta sigurlaunin. Það vill ekki
sælta sig við, að hinn gamli heim-
ur auðvaldsins, heimur arðráns og
atvinnuleysis, rísi upp á ný.
Kosningarnar í Bretlandi eru
ináttug yfirlýsing um það. 1 flest-
um eða öllum löndum Vestur-
Evrópu og víða annarstaðar, munu
á næstunni fara fram þingkosn-
ingar, þar sem sama baráttan mun
fara fram og nú þegar hefir átt
sér stað svo glæsilega í Englandi
og varla þarf að efa, að fordæmi
Breta mun hafa glæsilega þýðingu
í öllum jiessum löndum.
Alþýðan í þessum löndum mun
hvarvetna bcrjast til valda undir
kjörorðunum um nýjan heim, um
skipulagðan áætlunarhúskap, um
þjóðnýtingu stærstu framleiðslu-
tækjanna og hankanna, um full-
koranar byggingar, um atvinnu
handa öllum, um hoðlega manna-
hústaði handa öllum, um notkun
stríðsgróðans, þar sem því er til að
dreifa, í almannaþágu.
Og hvernig lítur þetla svo út
liérna á Islandi? Á bylting vorra
tíma aö fara fram hjá þessum
hólma?
Naha, naha, naha!
Hér eru starfandi tveir allstórir
verkalýðsflokkar, sem sainanlagt
hafa hlutfallslega hærri þingmanna-
tölu en hrezki Verkamannaflokkur-
inn hafði, þegar hann lagði lil úr-
slitaorustu við íhaldið í Bretlandi
og hafnaði öllum tillögum um sam-
vinnu við það fyrir kosningar. Báð-
ir þessir flokkar hafa injög róttæka
og sósíalistiska stefnuskrá, já,
meira að segja nærri því sömu
stefnuskrána.
Hér er við völd stjórn með 4
sósíalistiska ráðherra af 6. Er þá
ekki alll í fínasta lagi?
Jú, jú, segir aðalmálgagn stjórn-
arinnar, Morgunblaðið, sem um
langan tíma hefir verið gapandi af
aðdáun yfir stefnuskrá hrezka í-
haldsins og kosningaræðum
Churchills. Því var meira að segja
fleygt, aö Ólafur Tliors heföi veriö
búinn aö ákveöa kosningar i haust,
ef Churchill sigraöi.
Nú segir Morgunblaðið, að aðal-
skyssa Churchills hafi verið sú að
hann hafi ekki tekið Ólaf Thors og
íslenzka Sjálfstæðisflokkinn sér.til
fyrirmyndar! Og Þjóðviljinn segir,
að Morgunhlaðið túlki kosningaúr-
slitin í Bretlandi hárrétt. Hér sitji
verkalýðurinn að völdum með
frjálslyndum og framsýnum al-
vthnurekendum, sem skilið liafi
kröfur tímans.
Já, inargt er nú skrafað, en er
nú íslenzk alþýða svo einföld að
trúa því, að hér sé af heilindum
mælt?
Veit liún ekki, að hér á íslandi
hefir safnast meiri stríösgróöi hlut-
fallslega en í nokkru ööru landi í
heiminum og aöallega á fárra
manna hendur? Veit hún ekki, að
miklum hluta af þessum stríðsgróða
er skoliö undan skatti, og að stjórn-
arvöldin aðhafast ekkert til þess að
hafa upp á honum? Að í fjármála-
ráðherraembættinu situr inaður,
sem rétt fyrir stjórnarmyndunina
lýsti því yfir, að skattsvikarar gætu
rólegir lagt peninga sína í hank-
ana, þeir gæfu engar upplýsingar.
Að í forsætisráðherraembættinu
situr einn af milljóna-stríðsgróða-
mönnum landsins?
Veit hún ekki, að ýmsir af þeim
mönnum, sem verkalýðsflokkarnir
liafa gert handalag við og stjórna
því, sem þeir kalla nýsköpun, cru
ekki aöeins siöspilllir stríösgróöa-
menn, heldur einnig fyrrverandi
nazistar og vikapiltar Þjóöverja?
Veit hún ekki um liina taum-
lausu spillingu og fjársvik heild-
salastéttarinnar, sem þrátt fyrir
alla leyndina og samáhyrgðar-
pukrið hefir ekki tekizt að dylja
með öllu, og þykir henni ekki
einkennilegt, að þrátt fyrir þetla
megi ekki minnast á landsverzlun
við foringja verkalýðsflokkanna,
enda þótt það sé gamalt stefnu-
mál þessara flokka?
Jú, hún veit þctta og margt fleira,
sem kannske verður drepið á hér
síðar við tækifæri.
Hana hlýtur að fara að renna
grun í, að það sé eitthvað bogið
við þá pólitísku stefnu verkalýðs-
flokkanna, sem hefir skipað al-
þýðu þessa lands inn í pólitískt
handalag' við spilltustu stríðsgróða-
klíkur landsins og leyfir þeim að
lireiðra um sig í næði og undir-
búa nýtt stórfellt arðrán almenn-
ings á Islandi.
Það er fyllilega kominn tími til
að þögnin sé rofin í þeim mál-
gögnum, sem vilja raunverulega
nýja tíma á Islandi — sem vilja
ekki þegja um spillinguna í fjár-
málalífi þjóðarinnar og niðurlæg-
ingu þeirra stjórnmálaflokka, sein
taka hana undir verndarvæng sinn.
Kári.