Skutull - 23.03.1946, Síða 2
2
SKUTULL
Matthías Ásgeirsson
SKUTULL
Vikublað.
Ábyrgur ritstjóri
og útgefandi:
Hannibal Valdimarsson
Hrannargötu 3, tsafirði.
Símar 160 og 49.
Afgreiðslu annast:
Jónas Tómasson
Hafnarstræti 2.
Sími 123.
Verð árgangsins 20 kr.
I lausasölu 35 au. eintakið
— 50 au. 8 síður.
Nýstárleg vinnu-
brögð.
Afgreitt mál skyldi tii
nefndar.
Máli, sem ekki fékkst tekið
á dagskrá, skyldi vísað til
bæjarráðs.
Ýmislegt kátlegt gerist nú á bæj-
arstjórnarfundum.
Á næstseinasta fundi lagði for-
seti bæjarstjórnar, sem jafnframt
er ráðinn bæjarstjóri, fast að bæj-
arstjórninni að afgreiða ákveðið
mál til. fulls — en síðan sagði
hann — „má vísa því til nefndar".
Ekki vildi hinn óþægi minni-
hluti taka upp þennan hátt á af-
greiðslu málá og taldi háðungu við
hafnarnefnd, ef farið væri að gera
gabb að henni með því að vísa til
hennar málum, sem bæjarstjórn
hefði afgreitt til fulls. — Undir
þetta tók einn af fulltrúum meiri-
hlutans, og varð flónsku þessari af-
stýrt í það sinn.
Á seinasta bæjarstjórnarfundi
gerðist aftur það, að tveir bæjar-
fulltrúar báðu um að fá mál tekin
á dagskrá, er dagskrá var tæmd.
Þessu var forseti andvígur. Kvað
hann hinsvegar sjálfsagt að vísa
umbeðnum málum til bæjarráðs.
Var honum þá bent á, að engu
máli gæti bpjarstjórn vísað til
bæjarráðs, nema hún liefði áður
tekið það á dagskrá.
Var þetta, að bæjarstjórn vísaði
máli, sem aldrei haf&i ú dagskrá
komiS til bæjarráðs -— engu
minni fásinna en dæmið frá fyrri
fundinum, þegar vísa útti afgreiddu
rnáli til nefndar, en hvorttveggja
sýnir mæta vel formfestu nýja
bæjarstjórnarmeirihlutans við af-
greiðslu mála.
Væri þó líkara, að slíkt væru
ekki menn með réttu ráði.
Framhald þessa skopleiks var
svo það, að þegar lil atkvæða-
greiðslu kom, um það, livort taka
skyldi umrædd mál á dagskrá, sat
sá bæjarfulltrúi meirihlutans, sem
beiðnina hafði frain borið, hjá, og
lét þannig fella það með jöfnum at-
kvæðum að taka málin á dagskrá.
Gaf hann aðspurður þá skýringu
á hjásetu sinni, að hann liefði vilj-
að láta málin fara til bæjarráðs. —
Virtist liann því hafa fallist á liinn
nýja sið, að bæjarstjórnin vísaði
málum, sem hún ekki tæki á dag-
skrá, til bæjarráðsins.
Skemmtu áheyrendur sér dátt
yfir formfestu meirihlutans. — Vill
Skutull fullvissa menn um, að það
er fróðlegt fyrir bæjarbúa að fylgj-
ast með málsmeðferð allri og
frammistöðu meirihlutans á bæjar-
stjórnarfundum.
1 raun og veru mega þeir, sem
áhugasamir eru um bæjarmálin, af
enguin fundi missa. Þar er góðrar
skemmtunar von á hverjum fundi.
Á þriðjudaginn var kom Grótta
frá Reykjavík. Hún flutti liingað til
bæjarins lík Matthíasar Ásgeirsson-
ar skattstjóra, en hann lézt á
sjúkrahúsi í Reykjavík eftir tanga
og stranga legu hinn 4. marz, eins
og Skutull hefir áður skýrt frá.
Matthías mun ungur liafa ráðizt
til verzlunarstarfa í Hnífsdal hjá
Jónasi kaupmanni Þorvarðssyni,
en síðan fluttist hann til Isafjarðar
og tók að stunda trésmíðánám, en
hætti því brátt vegna slysfara.
Hneigðist nú hugur Matthíasar .
til verzlunarstarfa, og sigldi hann
til Kaupmannahafnar til verzlunar-
skólanáms. Er hann kom heim afl-
ur setti hann upp eigin verzlun og
var hér kaupmaður í nokkur ár.
Þessu næst var liann ritari bæjar-
fógeta eða sýsluskrifari eins og það
var kallað, og síðar fulltrúi bæjar-
fógeta og oft settur sýslumaður og
bæjarfógeti um stundarsakir í for-
föllum hans. Gegndi Matthías rit-
ara og fulltrúastörfunum um full-
an áratug frá 1922 til 1933.
Á árinu 1933 varð Matthías for-
stjóri Togarafélags Isfirðinga, unz
það hætli störfum.
Á seinni árum stundaði Matthías
eigin vélbátaútgerð, þar til er hann
varð skattstjóri á Isafirði í ársbyrj-
un 1944.
Árið 1919 kvæntist Matthías
frændkonu sinni Sigríði Gísladótt-
ur frá Álftainýri. Eignuðust þau
þrjár dætur, Guðnýju, Áslaugu og
Svandísi, sem allar eru nú upp-
komnar og liinar mannvænlegustu.
Matthías Ásgeirsson var hið
mesta þrekmenni, eins og hann átti
kyn til. Faðir Matthíasar var Ás-
geirbóndi 5 Svartliamri, Ásgeirsson-
ar, Magnússonar bónda og lirepp-
stjóra á Kleifum Þórðarsonar prests
á Ilvítanesi og maddömu Matthild-
ar. Hún var dóttir séra Ásgeirs
Jónssonar í Holti, bróður Þórdísar
móður Jóns Sigurðssonar forseta.
— Hafa í ætt þessari verið afburða-
menn margir um afl og fræknleik
og er svo enn.
Bróðir maddömu Matthildar var
Matthías Ásgeirsson hinn sterki á
Eyri í Seyðisfirði og annar bróðir
hennar séra Jón Ásgeirsson á Álfta-
mýri. Var hann kraftamaður svo
mikill, að með fádæmum þótti og
fimur að sama skapi. Hefir Þor-
steinn Erlingsson skáld ritað um
hann skemmtilegar frásagnir, en
um Matthías bróður hans liefir Gils
Guðmundsson skráð merkan þátt í
bókinni „Frá yztu nesjum fyrsta
bindi, er út kom 1942.
Um ætt þessa segir Gils Guð-
mundsson það, að hún sýni ein-
hverja glæsilegustu sönnun þess
frá síðari öldum, livernig andlegt
og líkamlegt atgerfi gangi í erfðir
og lialdist við um aldir í sömu ætt-
bálkum. Segir hann svo um þetta
atriði:
„Fimm eru þau atriði, að minnsta
kosti, sem fram koma hvað eftir
annað lijá einstaklingum úr ætt-
þessari og lýsa sér svo glögglega,
að ekki getur hjá því farið, að það
sé annað og meira en tilviljun ein.
Eiginleikarnir eru þessir:
1. Almenn greind og óvenjuleg-
ar námsgáfur.
2. Frábærlega góð og stílhrein
rithönd.
3. Fríðleiki og glæsimennska í
ytra útliti.
4. Sjaldgæft afl og lipurð.
5. Mikil hneigð til áfengra
drykkja".
Auðvitað fylgja þessir eiginleik-
ar allir ekki liverjuin einstaklingi
ættarinnar, en hitt er satt, að þeir
eru áberandi fleiri eða færri hjá
flestum þeirra.
Og um Matlliías Ásgeirsson er
það að segja, að hann var ágætlega
greindur og góðum námsgáfum
gæddur. Kom það t. d. í Ijós við
verzlunarskólanámið í Höfn. Hlaut
hann þar 1. einkunn, þrátt fyrir
mjög lélegan undirbúning. Þá er
það ýkjulaust, enda alkunna, að
Matthías hafði frábærlega góða og
stílhreina rithönd. Hann var fríð-
ur maður og glæsilegur í ytra út-
liti. Og fáir saúitíðarmenn hans hér
á Isafirði munu vissulega hafa
þurft það að reyna, að þreyta afl
við liann, meðan heilsan var óbil-
uð. — En um fimmta eiginleikann
er það að segja, að víst er hann enn
til í þessari ætt, eins og fleirum.
Matthías Ásgeirsson var tvisvar
kjörinn í bæjarstjórn. Átti hann
þar sæti á árunum 1927—1930 og
aftur 1934—1938. Á seinna tíma-
bilinu kynntist ég honum gjörla.
Áttum við þá mikið og gott sam-
starf bæði í bæjarráði og bæjar-
stjórn.
Ekki verður því neitað, að Matt-
hías .var mikill flokksmaður —
harðsnúinn Sjálfstæðismaður. En
hann var drenglundaður og hreinn
og beinn andstæðingur. Þess vegna
fór vel á með okkur, og man ég
það, að við Guðmundur Hagalín
höfðum oft orð á því okkar í milli,
bæði þá og síðar, hversu samstarf-
ið við Matthías hefði verið ánægju-
legt, 'ekki hvað sízt í bæjarráði.
- Já, Matthías Ásgeirssón var
andstæðingur, sem ánægjulegt var
að starfa með deila við og berj-
ast gegn — og þrátt fyrir mikinn
skoðanamun okkar, bar ég til hans
að samstarfi loknu hlýján vinsemd-
arhug og fyrir iionum fulla virð-
ingu.
Nú er liann fallinn, hinn sterki
íslenzki stofn, á bezta aldri. Og ég
liefi fylgt honum til hinztu hvíld-
ar með þakklátum hug fyrir góða
viðkynningu og gott samstarf,
þótt við í flestu stæðum á öndverð-
um meið. — Ég tel liann hiklaust
í fremstu röð merkra samlíðar-
manna minna. — Og víst er hann
í flokki þeirra manna, sem ég
lengi man.
Hannibal Valdimarsson.
Eitt heildsalamálið enn:
Eigandi verzlunar-
innar BERGt dæmd-
ur í 30 þúsund
króna sekt.
Ólöglegur hagnaður,
rúmar 118 þúsund krón-
ur gerður upptækur.
Þann 13. þessa mánaðar kvað
sakadómarinn í Reykjavík upp
dóm í málinu réttvísin gegn
Bergþóri Eyjólfssyni Þorvalds-
syni, eiganda og forstjóra heild-
verzlunarinnar „Berg“.
Dómfelldur var dæmdur fyrir
brot á verðlags- og gjaldeyris-
löggjöfinni í 30 þúsund króna
sekt og greiðslu málskostnaðar,
og ólöglegur liagnaður, að upp-
hæð kr. 118.005,30 gerður upp-
tækur og eign ríkissjóðs.
Hins vegar var dómsfelldur
sýknaður af ákæru réttvísinnar
um hrot á 15. kafla hegningar-
laganna.
Barnamessa í Isafj arðar-
kirkju n.k. sunnud. kl. 11 f. h.
Almenn messa kl. 2 e. h.
James F. Byrnes
Þannig lítur hann út, utan-
ríkismálaráðherra Bandaríkj -
anna, sem nú er á hvers manns
vörum.
Ritstjóraskipti
liafa orðið við Þjóðviljann.
Hafa þeir Sigfús Sigurhjartar-
son og Einar Olgeirsson, sem
verið hafa stjórnmálaritstjórar
blaðsins allmörg undanfarin ár,
verið látnir liætta, en við hefir
tekið einn æstasti „moskvatrú-
boði“ kommúnista hér á landi,
Kristinn E. Andrésson.
Hafa menn orðið þess varir,
að átök mikil liafa verið um það
eftir kosningarnar, hverju ófarir
konnnúnista hafi veriö að kenna.
Telur moskvaklíkan, að stöðvun-
in sé því að kenna að ekki hafi
veriö haldið uppi nægilega hörð-
um áróðri fyrir hinn rússneska
málstað, en Sigfús og lians fylgj-
endur telja, að ófarirnar séu að
kenna óorði því sem á flokkinn
hafi fallið, vegna hins rússneska
einræðis, sem hér á landi er ó-
vallt nefnt í liáði „áiS austræna
lg&ræ&i“.
Geta menn liaft sínar skoðan-
ir á því, hvorir hafi á réttu að
standa, en staðreynd er það, að
trúin á Moskvatrúboðíö hefir
orðið ofaná hjá kommúnistum,
og skal nú reyna nýja sókn með
því að lierða agitasjónina fyrir
hinu rússneska föðurlandi.
Jakob Árnason, ritstjóri
kommúnistablaðsins Verkamað-
urinn á Akureyri hefir líka ver-
ið lagður til hliðar.
Þó hafa báðir ritstjórar íhalds-
blaðsins Islendingur á Akureyri
fengið lausu í náð og við hefir
tekið lil bróðabirgða nazistinn
Svafar Guðmundsson.
MUNIÐ
Björgunarskútusjóð Vcst-
fjarða. öllum f j árstuðningi
veitt móttaka hjá
Kristjáni Kristjánssuni,
Sólgótu 2, ísafirði.