Skutull - 23.03.1946, Page 3
S K U T U L L
3
YERKALÝÐSMÁL. f
ASalfimdur Sjómannafélags ís-
firSinga var haldinn í fyrradag kl.
4 í Alþýðuhúsinu.
Jón H. Guðmundsson var kosinn
formaður, en frambjóðandi komm-
únista, Guðmundur Gunnlaugsson
fékk 4 atkvæði. Að öðru leyti var
stjórnin sjálfkjörin og skipa hana:
Marías Þorvaldsson varaformað-
ur, endurkjörinn. Kristóbert Rósin-
karsson ritari. Guðmundur Pálsson
baðst undan endurkosningu. Ólaf-
ur Þórðarson gjaldkeri, endurkos-
inn. Steinn Guðmundsson fjármála-
ritari, endurkjörinn. Meðstjórnend-
ur: Kristján Kristjánsson og Bjarni
Hansson.
A'ðalfundur Verkalýðsfélagsins
Baldurs var haldinn í fyrrakvöld.
Stjórnin varð öll sjálfkjörin og
skipa liana:
Helgi Hannesson form.aður,
Hannibal Yaldimarsson, varaf.
Gunnlaugur Ó. Guðmundsson ritari.
Halldór Ölafsson gjaldkeri.
Ragnar G. Guðjónsson fjárm.rit.
Varastjórnina skipa:
Salómon Hafliðason ritari.
Jón Jónsson frá Þingeyri gjaldk.
Einar Sigurjónsson fjármálarit.
Skuldlaus eign félagsins er kr.
66 789,44 og eignaaukning á árinu
'rúmar 17 000,00 krónur.
Samþykkt voru svohljóðandi mót-
mæli út af brottrekstri Verka-
kvennafélagsins Framsókn úr AI-
þýðusambandi Islands.
Þar sem það óheyrilega ofbeldi
hefir verið framið, að eitt af stofn-
félögum Alþýðusambands Islands,
Verkakvennafélagið Framsókn, hef-
ir verið rekið úr Alþýðusambandi
Islands fyrir það eitt, að félagið
vildi ekki afsala hagstæðum kaup-
gjaldssamningum, er það hafði náð,
og ekki heldur breyta skipulagi
sínu — vill Verkalýðsfélagið Baldur
fordæma þetta einstæða gerræði og
mótmæla harðlega liinni ástæðu-
lausu og ósvífnu brottvikningu
verkakvennafélagsins Framsóknar
úr Alþýðusambandi Islands.
Tillagan var samþykkt með sam-
liljóða atkvæðum.
Um 150 manns sóttu fundinn.
Verkfalli strætisvagna-bílstjór-
anna í Reykjavík lauk þann 12.
þessa mánaðar. Gengu báðir aðil-
ar að miðlunartillögu sáttasemjara
og verður grunnkaup bílstjóranna
612,50 krónur á mánuði, en áður
liöfðu þeir 525 krónur. Er þarna
því um mjög verulega kauphækk-
un að ræða. Ýms hlunnindi bíl-
stjóranna voru líka bætt og aukin.
Veitingaþjónar og matsveinar á
skipum Eimskipafélags Islands hafa
sagt upp samningum, og kemur til
verkfalls, ef ekki hefir samizt við
þá fyrir 1. apríl næstkomandi.
A ðalfundur V erkalgðsf élagsins
Vörn á Bíldudal var haldinn s. 1.
sunnudag. Stjórnin var öll endur-
kosin, og skipa hana:
Gunnar Kristjánsson formaður
Kristján Ásgeirsson varaformaður
Lúter Bjarnason ritari
Guðbjartur Jónsson gjaldkeri
Guðný S. Guðmundsdóttir meðstj.
Elísabet Þorbergsdóttir meðstjórn-
andi.
Samþykkt var á fundinum allítar-
leg ályktun um öryggismál, og verð-
ur hún hirt síðar í blaðinu.
Verkalýðsfélagið Baldur á 30 ára
afmæli 1. apríl næstkomandi. Verð-
ur afmælisins minnsl með samkomu
og útgáfu afmælisblaðs.
Svo segja liin blöðin.
Sá atburður, að kommúnisti
komst í bankaráð Landsbankans á
atkvæðum sjálfstæðismanna, hefir
vakið hina mestu furðu. Vita menn
ekki, hvaða verzlun standi að baki
því fyrirbrigði. Um þetta skrifar
Vísir 8. marz:
„SjálfslæSisflokkurinn kemur
kommúnista í bankaráö Lands-
bankans.
Skörin færist upp í bekkinn.
Landsbankanefndin hélt fund í
gærdag og kaus tvo menn í banka-
ráðið. Nefhdin er þannig skipuð,
að Sjálfstæðisflokkurinn hefir 6
menn, Framsóknarflokkurinu 4,
Alþýðuflokkurinn 3 og kommúnist-
ar 2. Úr bankaráðinu áttu að ganga
2 menn, sjálfstæðismaður og Al-
þýðuflokksmaður. Sjálfstæðisflokk-
urinn gat komið sínum manni inn
í ráðið með eigin atkvæ'ðum, án
þess að fá styrk frá öðrum flokk-
um. Ilinir flokkarnir gátu aðeins
komið að manni með því að sam-
einast tveir eða þrír um kosning-
una.
Er af þessu Ijósi, að Sjálfstæðis-
flokkurinn hefir afsalað sér manni
i bankaráðið og beinlínis ráðstaf-
að sætinu til kommúnislans með
því a'ö hafa engan sjálfslæðismann
i kjöri, þótt honum væri innan
handar að fá hann kosinn með sin-
um eigin atkvæðum. Það, sem hér
hefir farið fram, er því raunveru-
lega sú staðreynd, að Sjálfstæðis-
flokkurinn hefir kosið kommúnista
í bankaráðið í staðinn fyrir sjálf-
stæðismann, sem var fyrir, og
flokkurinn liefir þar með afsalað
sér meiri hluta i bankaráðinu og
gert kommúnistann að oddamanni.
Langlundargcð borgaranna.
Sjálfstæðismenn yfirleitt munu
furða sig á þessari dæmalausu ráð-
stöfun, sem brýtur í bága við póli-
tískar hugmyndir þeirra og flokks-
stefnu. Það er gagnstætt stefnu
sjálfstæðismanna að efla kommún'-
ista og þcirra stefnu til valda í að-
alpeningastofnun þjóðarinnar, sem
kommúnistar hafa ofsótt og svívirt
meira en nokkra aðra stofnun í
landinu. - Ábyrgðin á þessari ráð-
stöfun lilýtur að hvíla á miðstjórn
og þingflolcki Sjálfstæðisflokksins,
sem hafa samþykkt kosningu
kommúnistans, því að öðram kosti
hefðu fulltrúar flokksins í banká-
nefndinni ekki getað né viljað rísa
Úndir þeiri-i vanvirðu, sem flokkn-
um liefir verið gerð með þessu.
Nú fer að verða ljóst, hvers
vegna Gísla Sveinssyni og Pétri
Ottesen var vikið úr bankanefnd-
inni fyrir áramótin og aðrir lítil-
sigldari settir í þeirra stað. Hefðu
þeir setið áfrám í nefndinni, hefði
flokknum verið hlíft við þeirri
hneisu, sem honum hefir nú verið
gerð með kosningu kommúnistans.
Flatsængin með kommúnistunum
fer að verða dýr fyrir flokkinn og
þjóðina, ef framhald verður á slík-
um flótta frá stefnu og manndómi.
Ennþá einu sinni mun þess vænzt,
að ekki bresti langlundargeð borg-
aranna, þótt þeir séu nú langþreytt-
ir orðnir á sífelldri eftirlátssemi og
þjónustu við kommúnista, sem
stingur einkennilega í stúf við yf-
irborðsfjandskapinn til þeirra í
nýafstaðinni kosningabaráttu.
Þarna sjá sjálfstæðismenn út um
land, svarl á hvítu, í sjálfstæðis-
blaði, að vegna ástríkis við komm-
únista afsalar Sjálfstæðisflokkurinn
sér ekki aðeinseinummanni.lieldur
líka meirihlutaaðstöðu í bankaráði
Kirkjuhljómleikar. Sunnukórinn
hélt hljómleika í Isafjarðarkirkju
þann 15. þessa mánaðar. öll voru
viðfangsefni kórsins að þessu sinni
eftir Jónas Tómasson organista
kirkjunnar og stjórnanda Sunnu-
kórsins. Húsfyllir var og voru
hljómleikarnir endurteknir sunnu-
daginn þann 17. þessa mánaðar.
Undirtektir voru hinar ágætustu.
Dylst mönnum ekki, að eftir Jónas
Tómasson liggja nú orðið allmörg
veigamikil kirkjuleg tónverk, enda
var hinn mesti myndar- og menn-
ingarbragur á öllum flutningi tón-
verkanna.
Tónleikarnir voru í fjórum þátt-
um. Fyrstu sex lögin söng Sunnu-
kórinn við undirleik frú Sigríðar
Jónsdóttur.
1 öðrum þætti lék Ingvar Jónas-
son á fiðlu, en höfundurinn sjálf-
ur á orgel. Var þátturinn hugljúfur
og náði föstum tökum á áheyrend-
um.
1 þriöja þætti sungu ungar stúlk-
ur þrjú lög við orgelundirleik, en
að síðustu söng Sunnukórinn 6 lög
undir stjórn tónskáldsins.
Sunnukórinn hefir sjaldan sung-
ið bétur en þetta kvöld. Var auð-
lieyrt, að liann hafði lagt mikla al-
úð við æfingu verkefnanna, enda
mun flestum hafa verið hlýtt um
hjartarætur, er þeir fóru heim úr
kaldri kirkju í þetta sinn.
Jónas Tómasson hefir nú með
kirkjutónverkum sínum, í öllu sínu
yfirlætisleysi, helgað sér sæti á hin-
um æðra bekk meðal íslenzkra tón-
skálda.
Skíðadagur barna er í ár hinn
1. apríl um land allt. Þá fer fram
merkjasala til söfnunar fjár til
skíðakaupa handa fátækum börn-
um.
Þessa dagana hefir verið úthlut-
að 20 pörum af sldðum ásamt bind-
ingum og stöfum til fátækra barna
hér í bænum, og voru skíðin keypt
fyrir merkjasöluágóða seinasta árs.
Elzti bekkur barnaskólans sér
uin merkjasöluna, og er þess vænst,
að bæjarbúar snúist vel við heim-
sókn barnanna á skíðadaginn.
Gunnlaugur Þorstéinsson fyrrum
héraðslæknir í Þingeyrarhéraði lézt
i fyrrinótt, sextíu og tveggja ára
að aldri. Banamein hans mun liafa
verið heilablóðfall.
Grunnvíkingafélag var stofnað
liér í bænum í vikunni. Félagsmenn
eru um 30. Formaður er Guðmund-
ur G. Hrafnfjörð.
Á bæjarráðsfundi í gær vora
opnuð tilboð í byggingu flugvéla-
brautar í Neðstakaupstað.
Tilboðin höfðu borizt frá Ragn-
ari Bárðarsyni og frá Skipasmíða-
stöð Marzelíusar Bernharðssonar.
Fyrnefnda tilboðið var að upp-
hæð kr. 115 000 en hið síðarnefnda
kr. 149 200.
Tilboðin bæði verða nú látin
ganga til flugmálastjóra til úr-
skurðar.
Ingolf Abrahamson rafvirkja-
meistari var á seinasta bæjarstjórn-
arfundi ráðinn sem eftirlitsmaður
raflagna hjá Rafveitunni.
Landsbankans, og gefur rekkju-
nautum sínum, kommúnistum, þar
oddaaðstöðuna.
Fyrstu Svíþjóðarbátarnir eru nú
sagðir nálega tilbúnir. Fóru þeir
Birgir Finnsson, forstjóri Sam-
vinnufélagsins, Ólafur Júlíusson
skipstjóri og Guðmundur Guð-
mundsson skipstjóri áleiðis til
Reykjavíkur fyrir tveimur dög-
um. — Þaðan halda þeir til
Danmerkur og síðan yfir til Sví-
þjóðar. — Ólafur Júlíusson verður
skipstjóri á fyrri bát Samvinnufé-
lagsins — Isbirni — en Guðmund-
ur á fyrri bát H.f. Njarðar •— Haf-
dísi.
Ætti að mega vænta þess, að
fyrstu bátarnir kæmu liingað í lok
næsta mánaðar.
Jarðarför Matthíasar Ásgeirsson-
ar fór fram síðastliðinn fimmtudag
að viðstöddu miklu fjölmenni.
Nýr bústjóri. Skeggi Samúelsson
bústjóri á Seljalandi hefir sagt upp
stöðu sinni, og var nýr bústjóri
ráðinn á bæjarstjórnarfundi 20.
þessa mánaðar. Heitir sá Agnar
Jónsson og mun vera verkstjóri í
hraðfrystihúsi á Sauðárkróki. Hann
er búfræðingur frá Hólum og hafði
meðmæli búnaðarmálastjóra, sem
góður sauðahirðir.
Aðrir umsækjendur voru Guð-
mundur Helgason frá Unaðsdal,
Ingólfur Magnússon Seljalandi,
Magnús Hákonarson Seljalandi,
Gísli Sæmundsson Garðstöðum.
Hermann A. Hansen Sigmundar-
stöðum í Borgarfirði og Karl Þór-
arinsson Hofsstöðum Borgarfirði.
Vel má að vísu vera, að liæfur
og nýtur maður hafi valizt til
hins vandasama bústjórastarfs með
þessari ráðningu bæjarstjórnar-
meirihlutans.
En svo virðist þó, sem eðlilegra
hefði verið að velja einhvern þeirra
Vestfirðinga, sem um starfið sóttu,
voru þaulkunnugir rekstri kúabúa
og öllum vestfirzkum búnaðarskil-
yrðum. Er það álit þess, sem þetta
ritar, að Guðmundur Ilelgason hafi
verið prýðilega liæfur til starfsins,
en einnig sýnist svo sem erfitt
hefði verið að ganga fram hjá jafn
ágætlega búmenntuðum atorku-
manni, eins og Ingólfi Magnússyni
eða Magnúsi Hákonarsyni. Er og
talið, að sá síðastnefndi hafi haft
góð og gild loforð kommúnistafor-
sprakkanna hér fyrir starfinu, en
efndirnar þeirra urðu reyndar svik,
þvi Haraldur hafði ekki nema yfir
einu atkvæði að ráða, og auðvitað
varð það að falla á þann sem
íhaldið hafði fengið velþóknun á.
Þannig enda nú allar sögur og æv-
intýri spyröubandsins.
Góðtemplarastúkurnar í bænum
hafa starfað vel í vetur og hafa tek-
ið inn fjölda nýrra félaga.
Templaraheimsókn. Fyrir nokkru
síðan fóru ísfirzkir templarar í
heimsókn til templara í Bolunga-
vík í tilefni af afmæli stúkunnar
Hörpu. Sátu þeir þar fjölmennan
og ánægjulegan fund og ríkulegt af-
mælishóf. — Róma Isfirðingarnir
mjög myndarskap og áhuga templ-
ara í Bolungavík í bindindismálum.
1 sambandi við fundinn tólui 7
reglufélagar trúnaðarstig.
Kvenfélag Alþýðuflokksins hélt
sinn þriðja fund í gærkveldi, og var
það skemmtifundur. Sjö konur
gengu i félagið. Er það nú orðið
eitt fjölmennasta félag bæjarins.