Skutull

Volume

Skutull - 23.03.1946, Page 4

Skutull - 23.03.1946, Page 4
4 SKUTULL Staðfesting fundarskapanna. Félag Alþýðuflokksins 1 seinustu blöðum meirihlutans, sem út komu (Baldri og Vestur- landi) var alveg gefist upp við að verja það, að meirihlutinn í Bæjar- stjórn Isafjarðar liefði ekki brotið fundarsköp bæjarstjórnarinnar. -— ]>að var sem sé öllum augljóst mál eflir að hinar skýlausu, en þver- brotnu og margbrotnu greinar fundarskapanna höfðu verið birt- ar almenningi. En þá var tekin ný vígstaða: Það gerði ekkert til, þótt þessi fundar- sköp væru þrotin og krossbrotin, því að það væri ekkert að marka þau. Þau hefðu aldrei verið stað- fest af stjórnarráðinu, þótt krat- arnir hefðu stjórnað eftir þeim í 20 ár. Baldur gengur meira að segja það lengra, að hann fullyrð- ir, að alþýðuflokksmenn liafi við- urkennt, að fundarsköpin væru ó- staðfest plagg. Nú skyidu menn ætla, að ekki hefði verið leitað í þetta skjólið, fyr en ]>að hefði verið alveg vist, að ekki væri verið að vaða reyk. Og það vantaði ekki, að þeir þótt- ust vissir. Sigurður Halldórsson hafði leitað — og ekki fundið, þrátt fyrir fyrirlieit lielgra rita. Vigur- vitið hafði lagt sig fram með alla sína lögspeki. Haraldur Guðmunds- son hafði slafað sig í gegn um öll stjórnartíðindi og til frekara ör- yggis hafði hirðlögfræðingur Hrist- ings sálaða og kommúnistanna, Kristján nokkur nefndur skrifari, leitað líka daglangt eða meir í öðru eintaki af stjórnartíðindum, en allt kom fyrir ekki. Staðfesting fundar- skapanna fýrirfannst livergi. Því dæmdist rétt vera. Fundarsköpin voru ómerkt plagg, sem ekkert gerði til að væru brotin. En viti menn, þrátt fyrir alla leitina. Og þrátt fyrir öll gífuryrði tveggja blaða meirihlutans liggur símskeyli frá ríkisstjórn Islands í fórum þessara sömu manna sjálfra. Þeir höfðu því, eins og hent hefir aðra fábjána á undan þeim — álp- ast yfir ána til «8 sækja vatn. En ef þeir hefðu nú liafl hugvit til að fletta upp fundargerðabók bæjarstjórnar Isafjarðar, t. d. hinn 29. janúar 1930, og svo staðnæmst með fingurinn við IV. lið, ])á hefðu ritningarnar ræzt meiri- hlutinn hefði verið búinn að leita oy finna. Þar er sem sé tekin fyrir staSfesting á samþykkt um stjórn bæjarmálefna á Isafirði. Og er í því sambandi lagt fram svohljóð- andi símskeyti frá atvinnumála- ráðuneytinu dagsett 25. janúar 1930. —• Þar segir svo: „Ráðuneytið hefir í dag stað- fest samþykkt um stjórn bæj- armálefna ísaf jarðarkaupstað- ar OG FUNDARSKÖP BÆJ- ARSTJÓRNARINNAR TIL AÐ GILDA ÞEGAR 1 STAÐ . . .“ Þarna getur þá meirihlutinn séð sína sæng út breidda í þessu atriði. Er ekki nema gott, að hann skuli þegar hafa viðurkennt brot sín á fundarsköpunum, en svo mikið er víst, að óþarft er að fótum troða þau af þeirri ástæðu að þau liafi aldrei verið staðfest. — Verður nú fróðlegt að sjá, hvaða músarholu meirihlutinn leitar í næst til að fela smán sína og fáfræði viðvíkj- andi fundarsköpum bæjarstjórnar Isafjarðar. -------0-------- Vildu ekki auglýsa. Morgunblaðið hefir verið að fræða Reykvíkinga á þeirri vizku, að allt gengi nú fyrir sig í bæjar- stjórn Isafjaröar með svo ómenni- leguin ribbaldabrag af hendi minni- hlutans, að allt fylgi væri hrunið af krötunum. Nú hefir fengizt prófsteinn á þennan fréttaburð Morgunblaðsins. — Aðalfundir stærstu stéttarfélag- anna í bænum, Sjómannafélagsins og Baldurs, sem til samans liafa upp undir 1000 félagsmenn, voru haldnir s. 1. fimmtudag. Og hvað kom þar í ljós um fylgi meirihlutans svonefnda í bæjar- stjórn? — Fjögnr atkvæöi í Sjó- mannafélaginu var uppskeran. Sljórn Baldurs ,,krítiseruö“ í klukkutima, en j>egar Ijóst var orð- íð, Iwersu sárafáar hræ&ur væru í jxUtskipu'öurn samkomusal Aljpjöu- hússins, — sem tilhegröu sauöahúsi S.-S.-liösins, löbbuöu örfáar íhalds- sálir út annarsvcgar og kommasál- irnar hinumegin, mættust í úti- dyrum, skiptust á skætingi og voru úr sögunni. Síöan var stjórn Baldurs sjálf- kjörin og fagnaö meö almennu lófa- taki. Þarna hraus bæjarstjórnarmeiri- hlutanum hugur við AÐ AUGLÝSA EYMD SlNA. En hér er bara að byrja að koina í ljós „hrifning“ í- haldskjósendanna yfir sambúðinni við kommúnista — og „lukku“ sósi- alistanna, sem villlust á Hauk Helga- syni og Haraldi Guðmundssyni sein fúlltrúum jafnaðarstefnunnar.' STARFSSTULKUR. Tvær gangastúlkur vantar okkur strax eða. um mánaðamót. Sjúkrahús Isafjarðar. TILKYNNING. Vér viljum vekja athygli almennings á því, að börnum er BANNAÐ að heimsækja sjúklinga á sjúkrahúsinu. Sjúkrahús Isafjarðar. AÐALFUNDUR Bökunarfélags Isfirðinga h. f. verður hahlinn laugardaginn 0. apríl 1946 í húsi félagsins ld. 9 e. h. Dagskrá samkvæmt félagslögum. Isafirði, 14. marz 1946. Sigurður Guðmundsson. heldur fund mánudaginn 25. þ. m. kl. 8/2 e. h. í veitingasal Al- þýðuhússins. Dagskrá: 1. Inntaka nýrra félaga. 2. Yenjuleg aðalfundarstörf. 3. önnur mál. Félagar fjölinennið stundvíslega og takið með nýja íélaga. STJÖRNIN. HVERGI er betra að verzla en í KAUPFÉLASINU. Soyabrauð Heilhveitibrauð Rúgsigtibrauð og allar venjulegar brauð og kökutegundir. Bökunarfélag Isfirðinga h. f. NOKKRIR BALLAR, búnir til úr trolli, eru til sölu. Til sýnis í Ishúsinu Norður- tanginn. Finnbogi Jónsson. Raun við Hlíðarveg. HLlFAR KONUR! Hinn væntanlegi bazar fé- lagsins hefir verið ákveðinn 31. marz n. k. Eru því félagskonur vinsam- lega beðnar að koma munum á bazarinn til neðangreindra kvenna eigi síðar en fimmtu- daginn 28. s. m. Isafirði, 22. marz 1946. I Bazarnefnd: María Hálfdánardóttir Guðrún Kristjánsdóttir Herdís Alberts Soffia Löve VEGGFÖÐUR er nýkomið til Guðmundar E. Sæmundssonar. Prentstofan Isrún h.f. Bíó Alþýðuhússins sýnir: Laugardag og sunnudag kl. 9: ÓÐUR RÚSSLANDS (Song of Russía) Metro Goldwyn Mayer kvikmynd, gerð undir stjórn Gregory Ratol'fs. Músik eftir: Peter Ilich Tschaikowsky. Aðalhlutverk: Robert Taylor Susan Peters Sunnudag kl. 5 og mánudag kl. 9: ÆSKUTÖFRAR Skemmtimynd. Aðalhlutverk: Gloria Jean‘ Donald O’Connor Engin sérstök barnasýn- ing sunnudag. Þriðjudag kl. 9 verður eina og síðasta tækifærið að sjá hina eftir- sóttu mynd: HOLLYWOOD C A N T E E N . K ARLM AN N S-REIÐH J ÓL til sölu. Upplýsingar á póstafgreiðsl- unni. \

x

Skutull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skutull
https://timarit.is/publication/626

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.