Skutull

Árgangur

Skutull - 12.03.1948, Blaðsíða 3

Skutull - 12.03.1948, Blaðsíða 3
SKUTULL 3 V ? * VERKALÝÐSMÁL. „Dyngja", deild saumastúlkna í Verkalýðs- félaginu Baldri hélt aðalfund sinn þriðjudaginn 9. marz. Stjórn deildarinnar var öll end- urkjörin og skipa hana þessar stúlk- ur: Formaður Jónína Jónsdóttir, varaformaður Anna K. Björnsdótt- ir, ritari Emelía Jóhannesdóttir. Meðstjórnendur: Anna Helgadóttir, Hrefna Maríasdóttir og Margrét Jónsdóttir. Samþykkt var á fundinum að segja upp samningum deildarinnar við klæðskeraverkstœðin í bænum og við verksmiðjuna Hektor. Samningarnir falla því úr gildi þann 1. maí n. k. Nýir kaupgjaldssamningar á Flaleyri. Eins og frá var skýrt í Skutli fyr- ir nokkru, þá sagði Verkalýðsfélag- ið Skjöldur á Flateyri upp samn- ingum sínum við atvinnurekendur þar frá 6. þ. m. að telja. Viðræður um nýja samninga hafa þegar farið fram, og hefir náðst fullt samkomulag um nýja samn- inga, án þess að til stórra átaka kæmi. Samkv. hinum nýju samningum verður grunnkaup karla á Flateyri nú kr. 2,60 á klst. í alm. dagvinnu, kr. 2,85 í skipavinnu, kr. 3,18 í kolum, salti og cementi. Grunnkaup kvenna og unglinga verður kr. 1,86 i alm. dagvinnu og grunnkaup barna innan 14 ára kr. 1,17. Aukavinna greiðist með 50% álagi og nætur- og helgidagavinna með 100% álagi. í- Kaupdeila í SúgandafirSi. í Verkalýðsfélagið í Súgandafirði, sagði samningum sínum upp frá 6.' þ. m. að telja. Félagið hefir lagt samningsuppkast samhljóða samn- ingi Baldurs fyrir atvinnurekendur þar, en þeir hafa neitað að semja við félagið á þeim grundvelli. Allsherjaratkvæðagreiðsla hefir farið fram í félaginu um vinnu- stöðvun, og kom liún til fram- kvæmda um s. 1. helgi, þar eð þá höfðu ekki tekist samningar. Form. félagsins tilkynnti héraðssátta- semjara um næst síðustu helgi, hvernig málum væri komið, og má gera ráð fyrir, að liann láti deilu þessa til sín taka, náist samkomu- lag ekki liið bráðasta. Verkalýðsfélagið í Súgandafirði mun njóta fyllsta stuðnings Alþýðu- sambands Vestfjarða í kaupdeilu þessari, og er engin ástæða fyrir verkalýðsfélagsfólk í Súgapdafirði annað en ganga gunnreift til þeirr- ar réttindabaráttu, sem verkalýðs- samtökin eru þar nú að heyja. l>að er ekkert sem mælir með því, að verkamenn í Súgandafirði búi við lélegri kjör en stéttarbræð- ur þeirra í nágranna kauptúnunum. En það er allt, sem mælir því í gegn. Viðsemjendur í Súgandafirði eru: Sturla Jónsson, útgerðarm., Frið- bert Guðmundsson, útgerðann., og Skúli Pálsson f. h. Isver h.f. Aðeins 4 dagar eftir. Eftir fjóra daga lýkur söfnuninni hér á landi til Barnahj álpar Sameinuðuþj óðanna. Fjöldi Isfirðinga hafa þegar lagt fram skerf sinn, en þó eiga margir það ógert enn. Athygli þeirra, sem enn ekki hafa komið gjöfum sínum á framfæri, skal vakin á því, að daglega er gjöfum til barnahjálparinnar veitt móttaka hjá um- boðsmanni söfnunarinnar að Urðarvegi 6. Þá veitir ritstjóri Vesturlands, Sigurður Hall- dórsson, Uppsölum, einnig viðtöku gjöfum til söfn- unarinnar. höndum sainan um atliugun og lausn þessa máls sem fyrst“. Það er engum efa undirorpið, að allmikið þeirra lyfja, er fólk hellir í sig, eru gagnslaus með öllu. Úr slíkri gagnslausri lyfjanotkun ber að draga mjög, og stefna að því að útrýma henni með öllu. Skutull hefir fengið þær upplýs- ingar lijá sjúkrasamlaginu hér, að greiðsla samlagsins fyrir lyf, hefir aukist síðan 1945 um 40 þúsund krónur. önnur sjúkrasamlög hafa efalaust svipaða sögu að segja. Mál lietta virðist því fullkomlega þarfnast athugunar, og það hið fyrsta. Það segir sig sjálft, að með því að dregið væri úr notkun ó- þarfa lyfja, gætu samlögin stórum bætt hag sinn og jafnframt væri hægt að lækka iðgjöld almennings til samlaganna að verulegum mun. Hér er áreiðanlega hægt að spara stórfé, án þess það sé á nokkurn hátt gert á kostnað heilsufarsins. Að því ber að stefna. Hér er merkilegt mál fyrir ísl. læknastétt, og mundi hverjum þeim lækni, sem hefði forgöngu um að ráða bót á því ófremdarástandi, sem nú ríkir í þessum málum, að því virðingarauki. Trillubátur til sölu. Báturinn er ný-viðgerður með nýrri 6—9 ha. Albin vél. Semja ber við undirrit- aðan. Kolbeinn Guðmundsson Flateyri. </ •*» V eiðarfæratjón. Síðastliðið laugardagskvöld reru 13 línubátar frá Isafirði, Hnífsdal og Súðavík. Veðurspáin kl. 24 á laugardagskvöld sagði NA golu og snjókomu fram eftir nóttu, síðan SA átt. Kl. 2 á aðfaranótt sunnudags, eft- ir 2—3 tíma ferð NV af Deild höfðu flestir bátanna lagt lóðir sín- ar. Nokkrir bátanna voru þó nær landi. Milli kl. 2 og 3 uiu nóttina gerði aftakaveður af austri með hríðarbyljum. Flestir bátanna, er lögðu á djúpmiðum urðu að fara frá línunni án þess að ná inn nema sárafáum lóðum. Isfirzku bátarnir sjö töpuðu alls um 600 lóðum, Hnífsdælingarnir um 200 lóðum og Súðvíkingar 70 lóðum. Hefir tjónið því orðið um 870 lóðir með til- lieyrandi uppihöldum. Gera má ráð fyrir að þarna hafi orðið tjón er nemi a. m. k. 50—60 þúsund krón- uin. Tveir ísfirzku bátanna, Vébjörn og Auðbjörn fengu á sig brotsjóa, og brotnuðu nokkuð ofan þilja. Sjómenn telja veður þetta eitt liið versta, er þeir hafi lengi lent í. Fjölskák. Bergur Lárusson, stýrimaður á mb. Hannesi Hafstein frá Dalvík, tefldi fjölskák við meðlimi Taflfé- lags Isafjarðar sl. mánudagskvöld. Teflt var á 11 borðum. Vann Berg- ur 6 skákir en tapaði 5 skákum. Keppnin fór fram í Gagnfræða- skólanum og stóð rúmar 5 klukku- stundir. Stjórn Taflfélags Isafjarð- ar skipa nú Guðbjarni Þorvaldsson, fo’i'm., Jón Jónsson frá Hvanná og Sigurgeir Sigurðsson. Þórir Bjarnason, bifreiðastjóri, fékk með Lyngaa síðast,nýja Ford-bifreið. Bifreið þessi er yfirbyggð til fólksflutninga og tekur 29 farþega í sæti. Afmæli. Ástríður Ebenezersdóttir, Sólgötu 5, varð 75 ára í gær. Óskar Skutull henni til hamingju með afmælið. Félag opinberra starfsmanna, ísafiröi, hélt aðalfund sinn sunnudaginn 7. þ. m. Stjórn félagsins skipa nú þessir menn: Formaður Jón A. Jóhann- esson og meðstjórnendur Baldvin Þórðarson og Kristján H. Jónsson. Varastjórn: Guðmundur G. Krist- jánsson, Jón Kr. Finnsson og Gutt- ormur Sigurbjörnsson. Peningagjafir til barnahjálparinnar. Til viðbótar peningagjöfum þeim, sem áður hafa verið birtar, hafa um- • boðsmanni barnalijálparinnar hér í bæ borist eða verið tilkynntar gjaf- ir frá þessum: Gestur Sigurðsson og Sig Gestsson 100,00, Dagbjört Kolbeinsdóttir 20,00, Guðmundur Þorvaldsson og fjölskylda 100,00, Stefán Pétursson, Brautar- holti, 300,00, Guðrúu Guðmundsdóttir 10,00, Hálfdán Bjarnason, 200,00, N. N. 200,00, Ólafur Andrésson og frú, Rafst. 200,00, Sigurvin Hansson, 50,00, Hólinfríður Jónsdóttir 30,00, Stanley Axelsson 100,00, Haraldur Stígsson 60,00, 12. og 13. deild Barnaskólans, innkomið á sameiginlegri skemmtun deildanna 231,96, 1 bréfi frá ónefndri konu 20,00, Móttekið í bréfi frá Ólafi Jónssyni, skólastjóra, Sæbóli, Aðalvík, safnað af skóla- börnum þar 725,00. Aflient af Kristínu Jóliannesdóttur, skólastjóra í Skutulsfirði, safnað af skólabörnum þar, samkv. söfnunarlista: Ásta Jósepsdóltir 50,00, Maggý Ásgeirsdóttir, 20,00, Hildur Þorsteins- dóttir 10,00, Hjörtur Sturlaugsson, Fagrahvammi, 100,00, Róslaug Agnars- dóttir og Guðm. Agnarsson 50,00, Guðmann Rósmundsson 10,00, Sigurjón Gunnarsson 20,00, Sigmundur Guðnason 100,00, Bjargey Pétursdóttir 100,00, Pétur Sigmundsson 100,00, Þórkell Sigmundsson 100,00, Trausti Sigmundsson 20,00, Ingibjörg Sigmundsdóttir 100,00, N. N. 20,00, Halldór Jónsson 400,00, Sigurjón Halldórsson, 200,00, Bjarni Halldórsson 200,00, Soffía Magnúsdóttir 100,00, Ebeneser Þórarinsson 100,0T), Mattliildur Guð- mundsdóttir 50,00, Bjarni Dósóþeusson 20,00, Guðm. Bjarnason 100,00, Pálina Friðriksdóttir 100,00, Ingibjörg Pálmadóttir 20,00, Kristín Jó- hannesdótlir 300,00, Erna Þ. Guðmundsdóttir 20,00, Frá sjóði eldri deild- ar barnaskólans í Skutulsfirði 450,00, Ólafur Andrésson 20,00, Pétur Páls- son Kirkjubóli 100,00, Gísli Björnsson Kirkjubóli 100,00, Sigríður Péturs- dóttir, Kirkjubóli, 20,00, Pétur Sigurðsson, Kirkjubóli, 10,00, Þuríður Jónsdóttir 100,00, Halldór Guðmundsson 50,00, Fjölskyldan Kirkjubæ 100,00, Guðbjörn Jónsson, Hafrafelli, 100,00. (Alls safnað af skólabörnum í Skutulsfirði kr. 3460,00). Kaupfélag Isfirðinga 5000,00, starfsfólk Kaupfélags Isfirðinga 2035,00, Kristján B. Guðmundsson 50,00, Sölvi Guðnason 10,00. Frá Skátafélaginu Einherjar, ágóði ■ af veitingasölu sunnudaginn 7. marz, 1950,00, Mótteknar gjafir: Halldór Ágústsson 50,00, N. N. Silfurgölu 100,00, B. G. 25,00, Elín Magnúsdóttir 100,00, Gísli Gíslason, Brunngötu 12, 100,00, Kristján Söebeck 50,00, Gísli Gíslason yngri 40,00, Óskar Brynj- ólfsson 100,00, Sölvi Andrésson 100,00, Fríða Samúelsdóttir, Bjargi, 50,00, X. X. 20,00, J. Jónsson 35,00, Hallfríður 20,00, N. N. 10,00, Jóhann Guð- mundsson, Rafstöð, 100,00, N. N. 10,00, Jónas Magnússon 100,00, A. b. c. 50,00, Gömul kona 100,00. (Alls frá Einherjum kr. 3110,00.) Móttekið af ritstjóra Vesturlands: Matthías Bjarnason 300,00, Heimilið Árbær, Skutulsfirði, 100,00, Guðrún Haraldsdóttir 30,00, Þórdís Egils- dóttir 100,00, Sigurgeir Jónsson 150? Kvenfélagið ósk 2500,00.

x

Skutull

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skutull
https://timarit.is/publication/626

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.