Skutull - 11.03.1949, Qupperneq 3
S K U T U L L
3
Harry S. Truman tók við forsetaembættinu í Bandaríkjunum
20. janúar s. 1. og voru mikil hátíðahöld í Washington.
Hundruð þúsunda manna hylltu Truman, er hann ók til
Hvíta hússins/eftir að hann hafði á ný tekið við forseta embætt-
inu. Harry S. Truman hefur verið forseti Bandaríkja Norður-
Ameríku síðan 12. apríl 1945, er hann tók við störfum fáum
klukkustundum eftir andlát Franklin D. Roosevelt.
Svo segja liin blöðiia.
Toffaradeilan.
Blaðið Vísir birti s.l. mánudag
eftirfarandi frásögn uin togaradeil-
una :
Samningar hafa nú tekizt milli
skipstjóra, 1. stýrimanna og vél-
stjóra á togurunum og útgerðar-
nianna.
Áliættujióknunin i samningnum
milli jiessara aðila er felld niður,
en hins vegar fá stýrimennirnir og
vélstjórar smávegis kjarabætur, en
um ekkert slíkt er að ræða hjá skip
stjóranum. Fá þeir nú lægri
„premíu,“ en fyrir styrjöldina, en
jtess ber að gæta, að þá sigldu þeir
með allt að því helmingi afkasta
minni skip, svo eigi er unnt að
miða við það.
Ósamið er enn við háseta, loft-
skeytamenn og 2. stýrimenn, en
eftir liádegi í dag munu samninga-
fundir liefjast við þá aðila.
Verkfallið á togurunum hefur nú
staðið í 25 daga, eða frá 10. febrú-
ar og er nú svo komið, að enginn
íslenzl ur togari er að veiðum á
iniðunum umhverfis landið, en
flestir 'ngaranna eru bundnir við
bryggjur í höfnum, en nokkrir eru
enn ókomnir tii landsins.
Því ber eindregið að fagna, að
samningar skuli hafa náðst milli
þessara aðila og má telja þá fyrsta
raunhæfa sporið í þá ált, að leysa
jiessa deilu milli sjómanna og út-
gerðarmanna. Sýnir þetta, að báðir
aðilar hafa fullan hug á, að deilan
leysist á sem farsælastan hátt.
Verður þess vonandi ekki langt að
bíða, að gengið verði frá samning-
um milli allra deiluaðila svo togar-
ar okkar geti á ný flutt björg í bú.
-------O------
Loftleiðir
fimm ára.
Flugfélagið Loftleiðir h.f., er
5 ára í dag. Félagið er stofnað
fyrst og fremst með Vestfjarða
flug fyrir augum og fékk til
þess nokkur hlutafjárframlög
frá þorpum á Vestfjörðum.
Þegar félagið hóf starfsemi
sína átti það eina þriggja far-
þega flugvél. Nú er flugvéla-
eign félagsins 10 vélar, er flutt
geta 150 farþega samtímis.
Loftleiðir hafa nú nýverið
fest kaup á einni Katalína-
flugvél og er henni sérstaklega
ætlað að halda uppi samgöng-
um milli Vestfjarða og Reykja
víkur. Flugvél þessi er vænt-
anleg til landsins á næstunni.
VEGGFÖÐUR
nýkomið.
Guðmundur Sæmundsson,
Tangaíjötu 17, Sími 47.
íþróttanámskcit) viS Núpsskóla.
Axel Andrésson sendikennari 1.
S. 1. liefir nýlokið knattspyrnu- og
handknattleiksnámskeiði á Núps-
skóla í Dýrafirði.
Þátttakendur voru allir nemend-
ur skólans. Ennfremur barnaskóla-
börn. Neinendatala var 48 piltar, 38
stúlkur, alls 86. Kennslan fór fram
bæði úti og inni. Nýr íþróttasalur
hefur verið reistur á Núpi, sem var
tilbúinn til notkun^r um miðjan
janúar. Salurinn er 8x16. Stórt
leiksvið, 10x10, er við enda hans.
Með annari hlið hans eru svalir.
Geta með góðu móti verið 350 á-
horfendur, er sýningar fara frain
í salnum.
Námskeiðið stóð frá 26. jan. til
1. marz, og lauk ineð kaffisamsæti,
sem Axel var lialdið kvöldið áður
en hann fór. Ræður fluttu 4 nem-
endur skólans, kennarar og skóla-
stjóri. Voru Axel færðar vinargjafir
frá nemendum. Námskeiðið tókst
með ágætum, og vardieilsufar í skól
anum ágætt.
Gunnvör.
Sjóvátryggingafélag lslands hef-
ur nú selt flakið af m. s. Gunnvör
þar sem það liggur nú í fjörunni í
Fljótavík. Söluverð mun hafa verið
rúmar 6 þús. kr. Kaupendur voru
þrír Isfirðingar. Undanfarna daga
hefur verið unnið við að hjarga
ýmsum verðmætum úr skipinu.
Hressingarskáli.
1 nýkomnu Lögbirtingarblaði er
frá því skýrt, að verzlun Böðvars
Sveinbjarnarssonar reki á Isafirði
veitingar undir nafninu Hressing-
arskálinn.
Verzlun Jóns Ö. BárZarsonar.
Tilkynnt liefur verið að Guðm.
Pétursson, kaupmaður hafi frá 1.
jan. s. 1. selt eignahlut sinn í :
Verzl. Guðm. Péturssonar. Verzl.
París og Verzl. Bræðraborg og verð
ur verzlun Guðmundar Pétursson-
ar framvegis starfrækt undir nafni
Jóns ö. Bárðarsonar, en hinar
verzlanirnar verða reknar undir
sömu nöfnum og áður. Kaupand-
iiin, Jón ö. Bárðarson er einka-
eigandi allra jiriggja verzlananna.
Sextugur.
Sigurður Sigurðsson, kennari
varð 60 ára 7. j). m.
Hjónaefni.
Nýlega hafa opinberað tnilofun
sína ungfrú Guðrún Guðmundsdótt-
ir verzlunarmær og Guðmundur
Ingólfsson, verzlunarmaður Reykja
vik.
Togarinn fsborg.
kom heim úr Englandsferð í
gær. Skipið stöðvast nú vegna
kaupdeilunnar á togaraflolanum.
Boögöngukeppni.
Á Sunnudaginn kemur fer frarn
i Tungudal boðgöngukeppni á
skíðum. Þessi keppni er alveg ný-
lunda hér og verður í fyrsta skipti
keppt í henni á landsmóti þvi er
hér fer fram um páskana. Þessi
keppni er sveitakeppni og eru 4
menn í hverri sveit. 1 keppninni á
sunnudaginn keppa 4 sveitir frá
þremur íþróttafélögum. Keppendur
eru 17 ára og eldri. Keppnin hefsl
ki 2 e.li. Aðgangur er seldur að
keppninni.
-------O-------
Undirbúningur að
sioicnmi sementverk-
smiðju. i
i v i V i
Atvinnumálaráðherra hefur upp-
lýst, að undirbúningur hinnar fyr-
irhuguðu sementsverksmiðju væri
nú vel á veg kominn, en lög um
sementsverksmiðju voru afgreidd á
alþingi i fyrra. Hefur verið skipuð
sérfræðinganefnd til að ljúka rann-
sóknum varðandi verksmiðjuna og
verið er að afla tilboða um teikn-
ingar, byggingarlýsingar, stofn-
kostnaðaráætlun og reksturskostn-
aðaráætlun. Ákvörðun um staðsetn-
ingu verksmiðjunnar hefur þó enn
ekki verið tekin.
Þegar Alþingi hafði afgreitt lögin
um sementsverksmiðju, var hingað
ráðinn, fyrir milligöngu sendiráðs-
ins í Lundúnum, einn af kunnustu
sementsfræðingum Breta, Elmquist
að nafni, til að athuga þann undir-
búning, sem gerður hafði verið, og
kynnast aðstæðuin liér fyrir þessa
starfrækslu. Skilaði hann ýtarlegri
greinargerð á liðnu hausti og taldi,
að hér myndi um að ræða fjár-
hagslega arðbært fyrirtæki, en
benti á ýmis atriöi, sem þyrftu at-
hugunar og rannsóknar við áður en
hafizt yrði handa um framkvæmd
inálsins. Var þá hin starfandi sér-
fræðinganefnd skipuð, en í henni
eiga sæti Jón Vestdal, efnafræðing-
ur, sem er formaður nefndarinnar,
Haraldur Ásgeirsson, verkfræðing-
ur og Jóhannes Bjarnason, verk-
fræðingur.
Sérfræðinganefndin og atvinnu-
inálaráðuneytið liafa síðan samið
við fyrirtækið F. L. Smith í Kaup-
inannahöfn um að gera þær loka-
rannsóknir, sem ekki verða fram-
kvæmdar hér á landi. Hefur fyrir-
tæki þetta sent sérfræðing liingað
til lands, og er hann nýlega farinn
utan eftir að hafa kynnt sér ræki-
lega, ásamt íslenzku sérfræðinga-
nefndinni, allar þær atliuganir sem
gerðar hafa verið í þessu sambandi
hér heima. Hefur verið samið við
þetta fyrirtæki um, að það láti ,í té
teikningar, byggingarlýsingar, stofn
kostnaðaráætlun og reksturskostn-
aðaráætlun og geri tilboð um fram-
kvæmd verksins. Verður tilboð
þetta siðan borið saman við önnur
samskonar tilboð, sem aflað verður
frá Italíu, Sviss, Frakklandi, Vest-
ur-Þýzkalandi, Bretlandi og Banda-
ríkjunum.
--------0-------