Skutull

Árgangur

Skutull - 11.03.1949, Blaðsíða 4

Skutull - 11.03.1949, Blaðsíða 4
4 SKUTULL FVá útlöndum* Tœplega þrjú ár eru nú liðin frá stríðslokum, en samt hefur ekki verið saminn friður enn milli önd- vegis styrjaldarþjóðanna. Enn er ekki einu sinni byrjað að ræða friðarsamninga við Þýzkaland, og Japan, samningar við Austurríki hafa enn ekki tekizt þrátt fyrir marga fundi, en þýzku leppríkin ein hafa fengið sitt uppgjör frá bandamönnum og er þá Italía tal- in í þeim hóp. Lagalega séð eru því bandamenn ennþá í yfirlýstu stríði við Þjóðverja, Austurríkis- menn og Japani, en stríðinu lýkur ekki etidanlega fyrr en friðarsamn- ingar hafa verið úndirritaðir. Samningaumleitanir standa nú yfir í London út af friðarsamning- um við Austurríkismenn. Þetta er ekki fyrsti fundurinn um þetta efni, og bendir allt til þess að það verði lieldur ekki sá síðasti. Standa miklar deilur milli vesturs og aust- urs um framtíð Austurríkismanna og skilmálá samninganna. Helztu deiluatriðin eru tvö : Landakröfur Júgóslava á hendur Austurríki, sem Rússar styðja enn, þrátt fyrir deilu þeirra sjálfra við Tito. Vestui-veldunum finnst Júgó- slavar alltof kröfuharðir í þessu efni, enda er búið að ganga nógu •langt í því að fá ríkjum Austur- Evrópu ýfirráð ýfir stórum land- flæmum, sern þau eiga mjög vafa- sámt tilkall til. Eignir Þjóðverja í Austurríki. 1 samningum stórveldanna var þess getið, að Rússar skyldu fá „þýzkar eignir“ í Austurríki sem stríðs- skaðabætur. Nú hefur komið í ljós, að Þjóðverjar sölsuðu undir sig gíf- urlegar eignir á stríðsárunum, sem Austurríkismenn áttu áður, þar á meðal stórfyrirtæki, skip á Dóná og verksmiðjur. Vesturveldin halda fram, að slíkar ránseignir beri ekki að telja „þýzkar eignir,“ held- ur eigi að skila þeim til réttra eig- enda, Austurríkismanna. Rússar kalla þetta allt löglegar eignir og vilja sölsa það undir sig sem stríðs- skaðabætur. TIL SÖLU: Ný klæðskerasaumuð kápa. Upplýsingar gefur : Sigríður Sigurgeirsdóttir, Túngötu 11, Isafirði. R úgur er meðal hollustu na'ringarefna. — Gefið börn- uin yðar, og etið sjálf, meira af rúgbrauði. Ueynið rúgbrauð frá Bök- unarfélagi Isfirðinga. Ekkert brauðgerðarliús á Vesturlandi framleiðir nú meira af þessari brauðteg- und en Bökunarfélagið. Bæði seydd og óseydd. Nýtízku tæki til brauðgerðar I Tilkynning Þar sem nokkur brögð eru að því, að útvarpsloftnet eru óleyfilega lögð, verður þeim sem slík loftnet hafa, tilkynnt um, hvað ábótavant er við legu og gerð loftnetsins, og farið fram á, Við hlutaðeigendui', að þeir láti endurbæta það sem ábótavant telst. Hafi viðgerð ekki farið fx-axn innan mánaðar frá tilkynningu verða viðkomandi loftnet tekin niður. RAFVEITA ISAFJARÐAR. / Viðskiptanefndin hcfur ákveðið eftirfarandi hámarksverð á gúmmískóm framleiddum innanlands : Heildsöluverð Smásöluverð No. 26—30 ...................... kr. 16.00 kr. 20,40 No. 31—34 ........................ — 17,50 — 22,30 No. 35—39 ....................... — 20,00 — 25,50 No. 40-46 ........................ — 22,50 — 28,70 Söluskattur er innifalinn í verðinu. Hámarksverð þetta gildir í Reykjavík og Hafnarfirði, en ann- ars staðar á landinu má bæta við vérðið sannanlegum flutnings- kostnaði. Með tilkynningu þessari fellur úr gildi auglýsing verðlags- stjóra Nr. 16 1948. Reykjavík, 1. marz 1949. VERÐL AGSST J ÖRINN. ISFIRÐINGUR H.F. Aðalfundur togarafélagsins ISFIRÐINGUR h.f., Isafirði, verður haldinn að Uppsölum föstudaginn 25. marz kl. 9 síð- degis, nema samkomubann hamli. Fundarefni : Venjuleg aðalfundarstörf. S T J Ö R N I N. fi 8 ■ ■m ■ ■ s 5 I S HVERGI er betra að verzla en í 8CAUPFÉLA i SBKl Orðsending frá b ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ H ■ Samvinnutryggingum Á s. 1. ári fengu um 1000 bifreiðar, sem tryggðar eru hjá oss, lækkuð iðgjöld, þar sem þær höfðu ekki orsakað neina skaða- bótaskyldu í eitt ár. Lækkunin nam um 40 000 krónum. Þessi upphæð er ekki aðeins verðlaun til þeirra bifreiðastjóra, sem ekki hafa valdið neinu tjóni, heldur einnig ávöxtur af sam- tökum, sem stuðla að bættum hag fólksins. Samvinnutryggingar eru tryggingar- stofnun, sem tryggendurnir eiga sjálfir og hafa stofnað með sér til þess að efla hag sinn og öryggi. n M fl S fl ■ ■ ■ ■ 10 ■ ■ ■ fl ■ H ■ ■ ■ H H fl ■ ■ ■ ■ ■ Samvinnutryggingarf ■ H

x

Skutull

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skutull
https://timarit.is/publication/626

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.