Skutull - 17.12.1952, Qupperneq 1
XXX. árgangur.
ísafjörður, 17. desember 1952.
21. tölublað.
Blaðið kemur út aftur
eftir lielgina.
Afhendið auglýsingar í
prentsmiðjuna.
Víðtækasta verkíall á Islandi.
Dýrtíðin og atvinnuleysið hafa
leitt til þess, að um 60 verkalýðs-
félög hafa sagt upp samningum
um kaup og kjör, og hófu flest
þeirra verkfall 1. des., en síðan
hafa stöðugt fleiri bæzt í hópinn.
Félögin kusu sameiginlega samn
inganefnd, og eiga þessir sæti í
henni: Hannibal Valdimarsson,
sem er formaður nefndarinnar,
Jón Sigurðsson, framkvæmdastjóri
Alþýðusambandsins, Eðvard Sig-
urðsson, Reykjavík, Jóhanna Eg-
ilsdóttir, Rvík, Óskar Hallgríms-
son, Rvík, ólafur Jónsson, Hafnar-
firði, Björn Jónsson, Akureyri og
Ragnar Guðleifsson, Keflavík.
Kröfur félaganna voru í stuttu
máli þessar:
Hækkun grunnkaups um 15%,
mánaðarleg verðlagsuppbót sam-
kvæmt framfærsluvísitölu (ekki
kauplagsvísitölu), greiðsla 4% á-
lags á greidd vinnulaun í atvinnu-
leysistryggingarsjóði, er verka-
lýðsfélögin stofni, lenging orlofs
upp í þrjár vikur, athugun mögu-
leika á 40 stunda vinnuviku og
hækkun á kaupi iðnnema.
Þessar kröfur voru rökstuddar
í ítarlegri greinargerð um rýrnandi
kaupmátt launanna, og í niður-
lagi þeirrar greinargerðar segir
svo:
„Að lokum viljum við taka það
fram, að þótt verkalýðshreyfingin
sé nú, eins og oft áður, til þess
neydd að bera fram kröfur sínar
um kaupliækkanir, er okkur það
ljóst, að æskilegra væri að koma
því til leiðar, að auka kaupmátt
launanna með öðrum ráðstöfunum,
og bæta afkomuskilyrði hins vinn-
andi fólks með aukinni atvinnu.
En hvorugt þetta er á valdi
verkalýðssamtakanna. Það er á
valdi Alþingis og ríkisstjómar
einnar að gera þær ráðstafanir
vinnandi fólki til hagsbóta, sem
jafngilt gæti þeim kjarabótum sem
í framangreindum kröfum felast“.
Þarna kemur greinilega fram,
að verkalýðssamtökin kjósa fullt
eins vel að fá aukinn kaupmátt
launanna, og aukið atvinnuöryggi,
eins og að fá kaupið hækkað í
krónutalu. Hafa fulltrúar samtak-
anna komið með ýmsar bendingar
í þessa átt, t.d. um lækkaöa álagn-
ingu á vörum og verðlagseftirlit,
niðurfellingu tolla á ákveðnum
nauðsynjavörum, lækkun farm-
gjalda, lækkun útgjalda ríkisins o.
fl.
Ríkisstjórnin óskaði eftir fresti
á verkfallinu meðan athugun á
þessum atriðum færi fram, en því
var neitað af hálfu verkalýðssam-
takanna, og nú hefir ríkisstjórnin
séð sig tilneydda til að koma til
móts við þessar óskir.
1 gærkvöld birti útvarpið sátta-
tilboð ríkisstjómarinnar, og virð-
ist það í fljótu bragði vera aðgengi
legt.
Samkvæmt því lækkar t.d. mjólk
um 54 aura líterinn, kartöflur um
70 au. kg., kaffi úr 45,20 kg. í 40,
80, sykur úr 4,14 í 3,70. Ennfrem-
ur lækki olía um 4 au. líter og
einnig lækki kol og saltfiskur.
Kaupgjaldsvísitalan haldist í 153
stigum, þrátt fyrir þessar lækkan-
ir, sem samsvara 5,18 vísitölustig-
um, og kaup lækki ekki nema vísi-
tölulækkun nemi 10 stigum eða
meira, og þá aðeins um það, sem
umfram er 10 stig. Farmgjöld
lækki um 5%. Fjölskyldubætur
verði auknar verulega og greiddar
þegar komin eru 2 börn.
Samkomulag verði gert við S.I.S.,
Verzlunarráð Islands og Samband
smásöluverzlana um eftirfarandi á-
lagningu, samanlagt í heildsölu og
smásölu:
Vörut. Ál. verði Ál. var
Hveiti 26% ' 30,7%
Rúgmjöl 26% 36,9%
Haframjöl 26% 38,2%
Sykur 23% 32,1%
Kaffi 28% 20,4%
Tvisttau, Sirs 37% 46 %
Léreft sama.
Nærf. úr bóm. 37%karla 54,1%
Nærf úr bóm. 37%kvenna 51 %
Ullartau 35% 36,6%
Prjónföt (útl.)35% 57,3%
Nylonsokkar 38% 45,9%
Búsáh. alum. 42% 60,1%
Búsáh., leir 56% 64,1%
Búsáh., gler 56% 63,9%
Þessi atriði úr tilboði ríkis-
stjórnarinnar eru skrifuð niður
eftir útvarpinu, og því birt án á-
byrgðar um nákvæmni. En af
framansögðu er ljóst, í hvaða átt
tillögur þessar ganga, og verður
það að teljast farsæl lausn þessa
mikla verkfalls, ef gerðar verða
slikar ráðstafanir. En því ekki
stiga sporið út og lögbinda álagn-
23. þing Alþýðuflokksins stóð
dagana 29. nóv. til 2. des. s.l. í
Reykjavík og voru þar margar
ályktanir samþykktar.
Eins og fyrr getur hófst þingið
fyrra laugardag með setningar-
ræðu formanns, Stefáns Jóhanns
Stefánssonar, en að því loknu á-
varpaði gestur þingsins, Carl P.
Jensen, fulltrúi danska Alþýðu-
flokksins, þingfulltrúa. Forseti AI-
þýðusambandsins, Helgi Hannes-
son, og formaður S.U.J., Jón
Hjálmarsson, fluttu einnig ávörp.
Á sunnudaginn fluttu formaður,
ritari og gjaldkeri skýrslur, en um
kvöldið hélt Alþýðuflokksfélag
Reykjavíkur mjög fjölsótta kvöld-
skemmtun í Þjóðleikhúskjallaran-
um, og voru þingfulltrúar utan af
landi gestir félagsins.
Á mánudag og þriðjudag fóru
fram nefndastörf og umræður um
skýrslur framkvæmdarstjórnar,
svo og nefndarálit.
Voru umræður mjög f jörugar og
tóku fjölmargir fulltrúar þátt í
þeim. Gætti þess mjög greinilega
í ræðum allra, að þeir töldu jarð-
veginn fyrir vöxt Alþýðuflokksins
mjög góðan, ef flokksmenn lægju
hvergi á liði sínu.
Á miðvikudagsnóttina var svo
gengið til kosninga um stjórn,
miðstjórn og flokksstjórn og urðu
úrslit þau, að Hannibal Valdi-
marsson var kosinn formaður
með 47 atkv., Stefán Jóh. Stefáns-
son hlaut 38 atkv. Benedikt
Gröndal, ritstjóri, var einróma
kjörinn varaformaður, eftir að
Haraldur Guðmundsson hafði neit-
að endurkjöri. Gylfi Þ. Gíslason
var einróma kjörinn ritari flokks-
ins. Miðstjórn flokksins, er 19
menn úr Reykjavík og Hafnarfirði
og er skipuð þessum mönnum, auk
formanns, varaformanns og rit-
ara: Aðalsteini Halldórssyni,
tollverði, Albert Imsland, vm.,
Arngrími Kristjánssyni, skóla-
ingu og koma á verðlagseftirliti?
Sennilegt er að sáttatilboðið
verði borið undir félög deiluaðila
nú í vikunni.
stjóra, Baldvin Jónssyni, lögfr.,
Birni Jóhannessyni, framkv.stj.,
Guðmundi Gissurarsyni, bæjarfull-
trúa, Helga Sæmundssyni, blaðam.,
Ingimar Jónssyni, skólastjóra,
Jóni A. Péturssyni, bæjarfulltrúa,
Jóni P. Emils, lögfræðingi, Jóni
Sigurðssyni, framkvæmdastjóra
A.S.I., Kjartani Ólafssyni, fyrrv.
bæjarfulltrúa, Kristni Gunnars-
syni, fulltrúa, Magnúsi Ástmars-
syni, prentara, Magnúsi H. Jóns-
syni, prentara, Ólafi Þ. Kristjáns-
syni kennara, Óskari Hallgríms-
syni rafvirkja, Pétri Péturssyni,
framkvæmdarstjóra, og frú Svöfu
Jónsdóttur. Af hálfu S.U.J. eiga
ennfremur þessir menn sæti í mið-
stjórn: Albert Magnússon, Eggert
G. Þorsteinsson, Jón Hjálmarsson,
Sigurður Guðmundsson og Stefán
Gunnlaugsson.
Þess skal getið, að allmargir
flokksmenn úr Reykjavík og
Hafnarfirði lýstu því yfir, áður en
kosning miðstjórnar fór fram, að
þeir óskuðu ekki að vera í kjöri,
og var það að sjálfsögðu tekið til
greina.
Þinginu sleit um kl. 6 á mið-
vikudagsmorgun. Kvaddi þá hinn
nýkjörni formaður fulltrúa með
stuttri ræðu, hvatti alla til ötulla
flokksstarfa og óskaði mönnum
góðrar heimfarar, en Haraldur
Guðmundsson bað þingheim rísa úr
sætum og hrópa ferfalt húrra fyr-
ir vexti og viðgangi Alþýðuflokks-
ins.
—.......o--------
Lántökur vegna íshúskaupanna.
Gengið hefir nú verið frá lántök-
um vegna kaupa bæjarins á Ishús-
fél. ísfirðinga h.f. Hefir ríkissjóð-
ur lánað kr. 500 þús. og veitt á-
byrgð á skuldabréfalánum fyrir
1,5 milj. kr. Ef tekst að selja öll
skuldabréfin, þá mun veruleg upp-
hæð fást þarna til endurbóta á
hinum keyptu eignum.
Flokksþing Alþýðuflokksins