Skutull

Árgangur

Skutull - 01.05.1971, Blaðsíða 6

Skutull - 01.05.1971, Blaðsíða 6
KITULL Er þelta áliyrililiirleysi? Hvaða umbðtamál hafa verið felld ? Jón Á. Jóhannsson, bæjar- íulltrúi cg ritstjóri Ísíirðings, varpaði fyrir skömmu fram í blaði sínu þeirri spurningu, hvaða umbótamál það væru, sem bæjarfulltrúar Alþýðu- flokksins hefðu flutt á þessu kjörtímabili, sem hefðu verið íelld í bæjarstjórn ísafjarðar. Þeir bæjarbúar, sem voru á bæjarstjórnarfundinum 31. marz sl. þegar fjárhagsáætl- un bæjarsjóðs fyrir yfirstand andi ár var afgreidd, fengu glöggt svar við þeirri spurn- ingu. Spyrjandinn var mættur á þeirn fundi sem bæjarfull- trúi. Hann veit því einnig svarið. Ég geri ráð fyrir því, að ritstj. ísfirðings telji eitthvað annað gagna flokki sínum betur til framdráttar, en það að segja ísfirzkum kjósendumafdráttar laust frá þeirri minnisstæðu afgreiðslu, sem umbótamál A1 þýðuflokksins fengu á þeim fundi hjá þeim aðilum, sem stóðu að afgreiðslu fjárhags- áætlunarinnar — Framsókn- arflokknum og Sjálfstæðis- flokknum. Af þeim sökum ætla ég að rifja þá málsmeðferð nokkuð upp. Hún var þessi: (|| í frumv. því að f jár- hagsáætlun, sem fyrir fundin um lá, var lagt til að lækka framlag bæjarsjóðs til bygg- ingar elliheimilisins um kr. 500.000,00 frá fjárveitingu fyrra árs. Bæjarfulltrúar Al- þýðuflokksins lögðu aftur á móti til að framlagið yrði hækkað frá till. frv. um kr. 1.000.000,00 og yrði krónur 1.500.000,00. Þessi tillaga okkar fékk aðeins 2 atkvæði — þ.e. at- kvæði bæjarfulltrúa Alþýðufl. — Hinir bæjarfulltrúarnir sátu allir hjá við atkvæða- greiðsluna, cg felldu þannig þessa tillögu á óvenjulegan hátt. Við lögðum einnig til, að endurgreiðsla á skuld bæjarsjóðs við byggingar- sjóð elliheimilisins hækkaði um kr. 1.000.000,00. Þá fjár- hæð vildum við láta taka af kr. 1.561.000,00, sem frum- varpið gerði ráð fyrir að bæjarráðið hefði til ráðstöf- unar til ótilgreindra útgjalda, auk þeirra 7 milljóna, er það hafði til ótiltekinna fram- kvæmda. Björgvin Sighvatsson Þessi tillaga okkar var felld á sama hátt og sú fyrri. # Ennfremur lögðum við til, að varið yrði úr bæjar- sjóði kr. 250.000,00 til heimil- ishjálpar fyrir aldrað fólk í bænum. Við teljum það afar aðkallandi og nauðsynlegt að reynt sé að tryggja gamla fólkinu, sem dvelur á heimil- um sínum, nauðsynlega hús- hjálp og aðra aðstoð. Það skiptir gamla fólkið miklu, að fá að dvelja í sínu eðlilega umhverfi eins lengi og heilsa þess leyfir, en heimilisaðstoð gæti lengt þann tíma til muna, samfara þeirri öryggis kennd að vita af hjálp og að stoð tiltækri, ef eitthvað ber út af. Þessi tillaga okkar hlaut 3 atk. Hinir sex sátu enn hjá og sálguðu þannig þessu um- bótamáli. Þannig var nú meðferðin og undirtektirnar, sem hags- munamál gamla fólksins fékk á þessum bæjarstjórnarfundi. Nú kann einhver að spyrja: Hver var þá afstaðan gagn- vart vandamálum ungling- anna? Það reyndi einnig á það á téðum fundi. Við vildum að framlag til æskulýðsstarfsemi í bænum yrði hækkað um kr. 100.000,00 yrði kr. 300.000,00. Þessi hækkunartillaga okkar átti m.a. að stuðla að því að unnt yrði að koma á fast- mótaðri stefnu í þeim málum og opna möguleikann að ráðn- ingu æskulýðsíulltrúa, er hefði á hendi yfirstjórn þeirra mála. En jafnvel bæjar fulltrúinn, sem fyrr í vetur talaði fjálglega um nauðsyn þess, að ,,gera eitthvað raun- hæft“ í málinu, taldi aðgerð- ir til úrbóta ekki tímabærar. Þessi tillaga okkar fékk 4 atk., en fimm bæjarfulltrúar sátu hjá tveir Framsóknar- menn og þrír Sjálfstæðismenn Auk fyrrnefndra tillagna fiuttum við nokkrar aðrar cg vcru flestar þeirra felldar af „setuliðinu", — þó var þeim gert það hærra undir höfði en umbótamálum gamla fólksins, að nú greiddi setu- liðið atkvæði gegn þeim, og er öllu meiri reisn yfir þeirri málsmeðferð. Það skal sérstaklega fram tekið og sterklega undirstrik- að, að af samþykkt tillagna okkar Alþýðuflokksmanna leiddi ekki hækkun á útsvars- upphæðinni. Ástæðan var sú, að við fluttum jafnframt rök- studdar tillögur um auknar tekjur bæjarsjóðs og raunhæf ar lækkunartillögur varðandi útgjaldaliði, sem við töldum ekki eins aðkallandi. Þær breytingar á tekju- og gjalda- liðum áætlunarinnar, sem í til lögum okkar fólust, báru al- gjörlega uppi þann kostnaðar- auka, sem af því hefði leitt að sinna málefnum gamla fólksins og unglinganna á í Vesturlandi, sem út kom 14. apríl s. 1. tekur Högni Þórðarson, bæjarfulltrúi það sem dæmi um ábyrgðarleysi bæjarfulltrúa Alþýðuflokks- ins í sambandi við tillögu- flutning þeirra varðandi fjár- hagsáætlun bæjarsjóðs, að þeir hafi lagt til að fella niður framlag vegna halla- reksturs á sjúkrahúsinu. Að sjálfsögðu sagði hann ekki frá þeim rökum, sem stóðu að baki þeirri tillögu: Þau voru m.a. þessi: 1. Samkv. reikningsyfirliti sjúkrahússins fyrir árið 1970 var tekjuafgangur stofnunarinnar kr. 889.760,00. Framlag bæjarsjóðs til sjúkra hússins umrætt ár var kr. 825.000,00, þannig að enda þótt það hefði ekki komið til hefði stofnunin staðið undir sér. Nú ber að hafa það í huga, að einmitt þetta ár varð sjúkrahúsið fyrir veru- legum aukaútgjöldum vegna veikinda yfirlæknis. 2. Fyrir lá úrskurður dag- gjaldanefndar ríkisins um hækkun á daggjaldagreiðslum til sjúkrahúsa vegna halla- reksturs ársins 1969. 1 þeim úrskurði er sjúkrahúsum landsins ákveðin viss uppbót á daggjöldin fyrir hvern legudag vegna halla á rekstri þeirra umrætt ár. Þessi skrá er eftirtektarvert plagg. Hún sýnir, að daggjaldahækkunin pr. legudag er mjög mismun- andi til hinna ýmsu sjúkra- húsa. 3. Hækkunin til þeirra á legu dag er sem hér segir: ísafjörður kr. 50,00 Akureyri — 110,00 Akranes — 140,00 Patreksfjörður —■ 300,00 Blöndós — 100,00 Sauðárkrókur —- 120,00 Siglufjörður — 90,00 Húsavík — 150,00 Seyðisfjörður — 100,00 Neskaupstaður ■— 120,00 Vestmannaeyjar — 100,00 Selfoss — 170,00 Keflavík -— 105,00 Sólvangur -—- 75,00 Bolungarvík — 100,00 Það vekur strax athygli, hversu hlutur sjúkrahússins á ísafirði er miklu minni en annarra sjúkrahúsa. Hvað \eldur? Er ódýrara að starf- rækja sjúkrahús hér en ann- nrs staðar, eða greiða bæjar- búar meira með rekstrinum en íbúar annara byggðarlaga c g spara þannig ríkissjóði veruleg útgjöld? Eða er ríkisvaldið á þennan hátt að þakka ísfirðingum, sem ár eftir ár hafa, tekið á sig í útsvörum sínum veru- leg útgjöld til að tryggja norðanverðum Vestfjörðum nauðsynlega sjúkrahússþjón- ustu, þjónustu sem ríkisvald- inu ber siðferðisleg skylda til að sjá um og tryggja? Þá vaknar sú spurning, hvort ástæða sé til þess fyr- Framhald á 5. síðu. þann veg, sem við lögðum til að gert yrði. I þau 20 ár, sem ég hefi fylgst náið með bæjarmálum ísafjarðar man ég ekki til, að brýn velferðarmál bæjar- búa hafi hlotið jafn óvirðu- leg örlög eða meira tómlæti í bæjarstjórn en „setuliðið" sýndi þessum máiaflokkum á umræddum fundi. En sú einstæða afgreiðsla er líka svar, sem lengi verð- ur munað. Björgvin Sighvatsson. m ERU HÚSIN TVÖ ! 100 bílah OG ÓTAL HÚSBÚNAÐAR- VINNINGAR SALA HAFIN ÐKTÓBERHÚSID

x

Skutull

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skutull
https://timarit.is/publication/626

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.