Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - apr. 1988, Síða 1

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - apr. 1988, Síða 1
SIGLFIRÐINGAFÉLAGIÐ í REYKJAVÍK OG NÁGRENNI FRÉTTA Apríl 1988 BRÉF Avarp formanns: Maður er manns gaman Kæri Siglfirðingur. / Osjaldan hef ég verið spurður um tilgang þess að hafa átthagafélög hér í Reykjavík og ná- grenni. Frá mínum bæjardyrum séð er ekki nokkur vafi á að átthagafélög eins og Siglfirðingafé- lagið í Reykjavík og nágrenni hafa mik- inn tilgang. Maður er manns gaman er góður og gildur málsháttur, þrátt fyrir sjónvarp og margar útvarps- stöðvar. Ef ég athuga dæmið frá mínu sjónarhorni, þá finnst mér sér- lega skemmtilegt að koma á allar skemmtanir Sigl- firðingafélagsins og hitta þar fólk sem ég hef ekki séð lengi svo ég tali nú ekki um allan þann fjölda Siglfirðinga sem ég hef kynnst í gegnum starfsemi félagsins. Starfsemin er öflug. Sumum finnst sjálf- sagt einum of mikið um að vera hjá okkur; aðrir vildu meira. En hver er tilgangur Siglfirðingafélags- ins? Ósköp einfald- ur. Að gefa brott- fluttum Siglfirð- ingum hér á suð- vestur horninu tækifæri til að hittast og reyna að veita Siglufirði stuðning. í þessum tilgangi höldum við árshátíð og síldarball. Þangað reynum við að fá sem flesta og tekst oftar en ekki nokkuð vel. Við erum með jólaball, sem er ætlað börnunum. Þar viljum við gjarnan að börnin fái að læra um upp- runa foreldra sinna. Hann sé nokkuð sem þau geti verið hreykin af og eigi ekki að gleymast. Fjölskyldudagurinn er í kringum 20. maí. Þangað fáum við elstu Siglfirðingana til að mæta svo við hin yngri fáum tæki- færi til að ræða við þá og fræðast. Um jólin sendir svo félagið smájólagjöf til allra þeirra Sigl- firðinga sem við vitum um á sjúkra- húsum hér. Þetta er það helsta af föstum liðum í starfi félags- ins. Síðan koma sér- verkefni. í ár ætlum við t.d. að safna fé í minnisvarða um drukknaða sjómenn sem reisa á á Siglu- firði. Það er verðugt verkefni sem við vonum að þú sjáir þér fært að styðja. Við biðjum ekki um mikið, eða 500 kr. á mann, en safnast þegar saman kemur. / Eg hef starfað fyrir Siglfirðingafélagið í Reykjavík og ná- grenni frá upphafi, og nú síðustu árin sem formaður þess. Alla tíð hef ég fundið góðan vilja Siglfirð- inga til að styðja félagið og ég veit að þú vilt það líka. Gaman væri að fá Heiðar R. Ástvaldsson. þig á næstu skemmtun okkar sem er „Síldarballið" sem haldið verður 30. apríl í Félags- heimilinu á Seltjarn- arnesi. Að endingu þetta: Taktu virkan þátt í félaginu okkar láttu sjá þig á skemmt- unum og fundum og komdu svo endilega norður í ágúst. Það verður örugglega skemmtilegt á Siglu- firði á afmælishátíð- inni 13.-20. ágúst. Við sem myndum stjórn og nefndir Siglfirðingafélags- ins erum milli 40 og 50 manns. Láttu þér ekki detta í hug að þér sé ofaukið í þann hóp. Við viljum fá þig. Komdu, og komdu sem oftast. Bestu kveðjur, Heiðar R. Ástvaldsson

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.