Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - apr. 1988, Side 7

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - apr. 1988, Side 7
SIGLFIRÐINGAFÉLAGIÐ í REYKJAVÍK OG NÁGRENNI Fréttir frá félagatalsnefnd Afjölmennum fundi hjá Siglfirð- ingafélaginu í maí 1987 var ákveðið að endurvinna félagatal Siglfirð- ingafélagsins. Fund- armenn voru sam- mála um að félaga- talið þyrfti endur- skoðunar við og var ákveðið að kjósa 4ra manna nefnd til að vinna verkið. í nefndina voru kosin Ásta Einarsdóttir, Anna Laufey Þór- hallsdóttir, Ólafur Baldursson og Guð- mundur Stefán Jónsson. Nefndin hóf störf síðastliðið haust, og hafa verið haldnir mjög margir fundir. Þegar gamla skráin var skoðuð, kom í ljós að mikið var um það, að enn væru á skránni Siglfirð- ingar sem annað hvort voru látnir eða fluttir út á lands- byggðina. Það var Anna Laufey Þórhalls- dóttir sem vann gömlu skrána, og var það frumvinnsla á félagatalinu. Ljóst er að Anna Laufey hefur unnið krafta- verkvið að koma þessari skrá saman, án þess að neinn yrði úti í kuldanum. Sú aðferð sem hún beitti var að skrá niður alla einstakl- inga sem búsettir voru á Stór-Reykja- víkursvæðinu, og jafnframt höfðu Siglufjörð sem fæð- ingarstað. Þegar núverandi nefnd hóf störf kom fljótt í ljós að inni í þessari skrá var mjög mikið af nöfnum sem enginn nefndarmanna kannaðist neitt við, og varð því fljótlega tekin sú afstaða að strika þá aðila út sem algjörlega vonlaust reyndist að bera kennsl á. F élagatalsnefndin hefur nú skilað nýju félagatali til stjórnar Siglfirðingafélags- ins, en af óviðráðan- legum orsökum er ekki hægt að birta það í þessu frétta- bréfi, heldur verður það að bíða næsta fréttabréfs. / Eg vil að lokum þakka samstarfs- mönnum mínum í nefndinni gott samstarf, en þau hafa unnið mjög gott starf. Sem dæmi um þá miklu vinnu sem leggja þurfti í þetta félagatal, er að fletta þurfti upp kennitölu fyrir alla meðlimi félagsins. Þegar þessi félagaskrá birtist ykkur félagar góðir vona ég að þið metið viljann fyrir verkið. f.h. Félagatalsnefndar Siglfirðingafélagsins Guðmundur Stefán Jónsson Ferðin hefsthjá okkur

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.