Brautin - 01.05.1936, Blaðsíða 4

Brautin - 01.05.1936, Blaðsíða 4
4 BRAUTIN BRAUTIN kemur tít vikulega hvern föstu- dag. Kostar til áramóta kr. 3.00 i lausasölu 10 aura. Áskrift- um veitt móttaka hjá Aðal- birni Pe'turssyni, Gunnari Jó- hannssyni og Þóroddi Guð- mundssyni. ÁVA R P. Siglfirsk stéttasystkyni! í dag er 1. maí. dagur verka- lýðsins. Við höfum að þessu sinni sérstaka ástæðu til að gera þennan dag hátíðlegan, gera hann að virki- legum degi verkalýðsins. Við búum flest okkar við skort og neyð. Við búum við meira atvinnuleysi en áð- ur hefir þekkst hér í þessum bæ. Sameign okkar flestra er baráttan fyrir brauðinu, baráttan fyrir betri lífskjörum. Stéttnsamtök okkar eru klofin. Við viljum vinna að því að þau verði sameinuð á grundvelli fulls lýðræðis. Við skorum á ykkur félagar að fjölmenna í kröfugöngu verklýðs- félaganna á morgun. Sýnið mátt samtakanna. Sýnið þeim mönnum sem eru á móti samfylKÍngu verka* lýðsins, vilja ykkar til samfylkingar, með því að koma á útifundinn og taka þátt í kröfugöngunni! Fram til sigurs stéttasystkini fyrir fullkominni sameiningu og sam- fylkingu alls vinnandi fólks áísland! Með bestu stéttakveðju. 1. maí verður minnst hér, eins og að undanförnu, með útifundi. kröfu- göngu og kvöldskemmtun. Dagskrá: Kl. 1 e. h. verður komið saman bjá Alþýðuhúsinu: 1. Ræða: Ástandið meðal verkalýðsins. Gunnar Jóhannsson. Gengið í kröfugöngu um bæinn, staðnæmst á torginu hjá „Brúarfoss”. 2. Ræða: 1. maí og samfylkingin. Póroddur Guðmundsson. Kröfu- göngunni haldið áfram og staðnæmst við Alþýðuhúsið. 3. Ræða: Verkalýðsæskan og fasisminn. Ásgr. Albertsson. Kröfugöng- unni slitið. Kl. 8 e. h. Kvöldskemmtun í Alþýðuhúsinu, 1. Skemmtunin sett. Páll Ásgrímsson. 2. Kvennakór undir stjórn Camillu Kristjánsd., syngur Alþjóðasönginn. 3. Ræða: Samfylkingin og verkalýðsæskan. Jón Porvaldsson. 4. Upplestur. Kristín Guðmundsdóttir. 5. Ræða: Konan og auðvaldsþjóðfélagið. Rikey Eiríksdóttir. 6. Kvennakórinn syngur. Smáleikur: Vinnudómstóllinn. Ræða: Hvað er framundan. Aðalbjörn Pétursson. Sunginn Alþjóðasöngurinn. DANS. Hljómsveit spilar. AÐGÖNGUMIÐAR að kvöldskemmtuninni kr. 1,00, að dansinum sérstaklega kr. 0 80 Merki dagsins seld á götunum. 7. 8. 9. 10. Si£lfirzkur verkalýður! 1. mai i ar er um víða veröld helgaður samfylkingu verkalýðsins og allra kúgaðra gegn árásum auðvaldsþjóðfélagsins. árásum fasismans og hinu jffirvofandi stríði. Verkamenn og verkakonur! út á götuna kl. 1. Fyllið Alþýðuhúsið um kvöldið kl. 8. Verkamannafelag Siglufjarðar. Verkukvnnafélagið „Ósk“. A. S. V. K F. í p. U. K. f. h. Verkamannafélags Siglufjarðar og Verkakvennafélagsins „Ósk“: Gunnar Jóhannsson, Póroddur Guðmundsson, Guðl. Sigurðsson, Guðjón Pórarinsson, Guðmundur Davíðsson. Ríkey Eiríksdóttir, Sigríður Sigurð- ardóttir, Puríður Emilsdóttir, Sigur- jóna Einarsdóttir, Ragna Guðjónsd. 18. mar/ sl. segir Jón erindreki, um atvinnukúgunartilraunina, í AI- þýðublaðinu: „Meðal verkalýðsins ríkir fullkomin eining um ákvörðun Verkamannafélagsins Próttur", SAMFYLKINGIN 1. MAÍ. í Vestmannaeyjum, Eskifirði, Sauðárkrók og víðar, halda komm- únistar og jafnaðarmenn sameigin- lega hátíðlegan 1. maí. í Reykjavík boðar meirihluti I. maí-nefnda verklýðsfélaganna til sameiginlegrar kröfugöngu en aftur- haldsbroddar Alþýðusambandsins hafa neitað að taka þátt í henni og boða til eigin prívat kröfugöngu. Fullvíst er að samfylkingarkröfu- gangan verður fjölmenn en hin vesæl. Ábyrgðarmaður: GUNNAR JÓHANNSSON. Siglufjarðarprentsmiðja 1936.

x

Brautin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Brautin
https://timarit.is/publication/628

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.