Vesturland

Årgang

Vesturland - 11.09.1930, Side 1

Vesturland - 11.09.1930, Side 1
Ritstjóri: Sigurður Kristjánsson. VII. árgangur. fsafjörður, 11. september 1930. 28. tölublað. ■ ■5 VETRARKÁPUR, nýtískusnið, fyrir dömur og telpur. Fjölbreytt úrval nýkomið í V0RUHÚS ÍSAFJÁRÐAR. Illkvitni Dana. Vilhjálmur Stefánsson hóf land- könnunarferðir um norðurhöf með öðrum hætti, en áður var títt. Hann kynti sér fyrst siðu og háttu þeirra, sem á Norðurvegum búa. hann lærði tungu þeirra, tók upp sama klæðnað og mataræði, og ferðaðist eins og þeir. Hann sló ekki tjöldum í hörkugrimdum á vetrum, heldur gerði sér snjó- þús (gróf sig í fönn). Þar bjó hann sem í beztu baðstofu, þótt hann yrði veðurteptur mörg dæg- ur. Stakk það mjög í stúf við þær hörmungar, sem tjaldbúar höfðu átt við að striða í tjöldum sínum, þótt þau væru af „nýjustu gerð“ Þessi nýbreytni Vilhjálms gjör- breytti, á skömmum titna, útbúnaði ölluni í heimskautsferðum, eink- um þeim, sem farnar eru á sleð- um. Vilhjálmur kvaðst þó ekki hafa fundið neinn týndan sann- leika í þessum efnum. Hann hefði farið eftir gömlum málshætti, sem hann lærði i skóla: „Dveljir þú f Rómaborg, þá sem þig að sið- um Rómverja". Engum manni vegnar vel meðal erlendra þjóða, neina hann semji sig að siðum þeirra og háttum. Margar vitlausar ferðabækur og fréttapislar hafa verið skrifaðar um ísland. Hafa ferðalangar oft ritað fjálglegar iýsingar um svað- ilfarir sínar hér á landi, auk þess sem þeir hafa misskilið og rang- fært menníngu og sögu þjóðar- innar. En hvers er áð vænta þegar jafnvel „íslandsvinum" skjöplast um ferðaíýsingar sínar. Skömm eftir síðustu áldamót ferðaðist dr. Karl Kiichler frá *Reykjavík til Geysis og Heklu, það var í júlí- mánuði. Ritaði hann bók um ferð sina og nefndi hana „Wustenritte und Wulkanbesteigungen1 (Eyði- markareið og eldfjallagöngur). Mun íslendingum hafa blöskrað hve erfítt er að fara hér bæjarleið, eftir sumum lýsingum þeirrar bók- ;ar, og fleiri samskonar rita. Væri íí raun réttri vert að gefa út á íslenzku safn af lýsingum sumra manna á ferðalögum um ísland. Mætti þá vera að drengir yrðu fúsari til hjásetu, er þeir kyntust ■þeim svaðilförum og þvi æfin- týralífi. Danir höfðu um langt skeið tmikil mök við íslendinga. Dvöldu margir þeirra hér langdvölum. Mun þó fágætt hve fáir þeirra komu auga á sannindi málshátt- arins forna: „Dveljir þú í Róma- borg, þá sem þig að siðum Róm- verja“. Það kom varla fyrir að Danir hér bæru við að nema íslenzku. þeir sátu hér árum saman og áttu alla afkomu sína undir skift- um við íslendinga. Um kýnni af sögu og menningu þjóðaiinnar var ekki að tala. Fram á þessa öld voru hér danskir menn og konur, sem aldrei mæltu íslenzkt orð, og höfðu sumir þó ekki séð föðurland sitt svo áratugum skifti. Fyrirlitning og lítilsvirðing Dana á öllu íslenzku er og alkunna. Það var tnikill nauður að ferð- ast meðal Dana á þeim árum, sein íslendingar börðust harðast fyrir sjáltæði sínu. Jafnvel Georg Brandes heimskaði sjálfan sig á að hæðast að íslendingum fyrir þessa viðleitni. Líkti hann oss við Amakursbúa, taldi það jafn fjar- stætt að vér yrðum sjálfstæð þjóð sem þeir. Fór um það mörgum háðulegum orðum. Fimtán árum síðar var ísland þó orðið full- valda riki. Eftir að Sambandslögin voru sett, lækkaði rostinn í Dönum, og óvild íslendinga til þeirra hvarf. Sátt og samlyndi var milli þjóð- anna. Lögin reyndust grannasættir. Danir tóku nú og að kynna sér meir en áður sögu og menningu islendinga. Menta menn þeirra tóku t. d. að þýða á sitt mál sögur vorar. Enn var það að Danir, sem Ieitað hafa sér atvinnu hér hin síðari ár, hafa jafnskjótt tekið að leggja stund á að nema fslenzkt mál. Er nú sá ósiður því nær með öllu aflagður að þeir ávarpi fslenzka viðskiptamenn sfna á danska tungu. Hin sfðustu missiri hefir samt að nokktu kveðið við hinn gamla tón um ísland f dönskum blöðum, einkum þó hjá hitium ótrterkari mönnum Dana. Ástæðan mun vera sú, að allir stjórnmálaflokkar á íslandi hata lýst yfir þvf, að þeir tnundu stefna að því að segja upp ákvæðum Sambands- laganna, er þau leyfa það. Var Dönum sagt frá þessari fyrirætlun fölskvalaust og án allrar óvildar til dönsku þjóðarinnar. Illkvitnisgreinum og fréttuin utn ísland hefir fjölgað nú urn Alþing- ishátfðina. Danskir blaðamenn, sem sóttu hátíðina, simuðu út græningjalegar fregnir utn svaðii- farir og hörmungalíf gestanna til og frá Þingvöllum og á hátíðar- svæðinu. Smásmugulegar útásetningar og hótfyndni Dana geta menn látið sér f léttu rúmi liggja. Hitt er vérra, þegar forsselisráðh. þeirra lætur hafa eftir sér beinlinis rangar fregnir um hug vorn til Dana. Er hér int að þvf, að hann sagði. er heim kom, að æsingatilraunum Sjálfstæðisblaðanna gegn Dönum væri nú hætt. Hvernig mundi þvf hætt, sem aldrei hefir verið? Það er öllum hér kunnugt að blöð sjálfstæðismanna hafa engar æs- ingar vakið gegn dönsku þjóðinrti. Hitt er annað mál, að sjálfstæðis- menn vilja vera við því búnir að taka öll sfn mál í eigin hendur. Margar fáránlegar blaðagreinar háfa verið skrifaðar utn ísland í dönsk blöð. Hefir Morgunblaðið látið þýða eina slíka og birt 2. þ. m. Höfundurinn þeitir Kurt Koch. Er erfitt að gera út um það, hvað mest má sfn í þessari grein: Illkvitni í garð íslendinga, Stórdanaháttur eða vanþekking á ísl. sögu og menningu, og jafn- vel sögu hans eigin þjóðar. En undir logar öfundin yfir þvl, að ísleridingar rnuni þó hafa eitthvað til brunns að bera. Koch er sárgramur yfir því, að íslendingar skuli nokkurntfma nefna kúgun og einokun Dana á oss á einveldistímanum, því „danskir bændur, dönsk alþýða og borgarar voru þrælbundnir ein- veldinu“ segir hann. Ekki kemur hann auga á þann mikla tnun, að afraksturinn af kúgun Dana heima- fyrir varð eftir í landirtu sjálfu, en reifin af íslendingum voru flutt til Danmerkur, og- ekkert eftir skilið. Höf. öfundar sjáanlega ísl. af að eiga þúsund ára gamalt þing. En stórdananum skýtur fljótt upp. Þeir áttu tnarga þingstaði í tfð Gorms gatnla segir Koch. Engan eðlismun finnur hann löggjafar- þings Ísl. óg kjörþinga og húsa- þinga danskra konunga. Fánamistökin á Lögbergi segir Koch að hafi verið dulbúin óvirð- ing á Dönum, þrátt fyrir opin- berar afsakanir. Þarf ekki að svara þeirri firru. Fána Færeyittga telur hanti ís- lendinga hafa haldið undir skírn á Þingvöllum. Vanþekking er það. Fáni þeirra var vígður i Færeyj- um og notaður, sem þjóðernis- tákn þeirra, i Noregi og Orkn- eyjum, áður en á Þiugvöl! kom. Menningu Dana heldur Koch tnörg þúsundurri árum eldri ett mennirtgu íslendinga. Veit ekki flónið að mettning allra Norður- landaþjóðanna á eina og sömu rót. Hann man það ekki heldur að Danir hafa gleymt tungu sinni og að íslendingar skráðu sögu þeirra. Koch telur að Danir hafi varið sjálfstæði íslandS tneð vopnum f nokkur hundruð ár. Og „á hafinu og við suðurlandamæri sín börð- ust Danir fyrir fullu frelsi Norð- urlanda, það var barist til að vernda landamæri norrænnar tungu.“ Varð mönnum ekki ljóst í styrj- öldinni miklu, að lítt mundi ísl. þýða að treysta voptium Dana? Hafa þeir verndað norræna tungu? Mennirnir sem hafa gieymt henni. Ýmsar afturgöngur eru t grein- inni, svo sem að íslendingar hafi sótt háskóla Dana ókeypis, o. fl. o. fl. Loks segir Koch að ísl. hafi gott af að muna, að herafli Dana sé enn svo mikill, að þeir geti sýnt þeim í tvo heimana, ef þeir kæri sig um. Meðan Danir skildu tungu sína var konungur þeirra eitt sinn móðgaður freklega af islenzkutn mönnum. Hann ætlaði. þá að herja hingað, en hætti við það, þegar hann hafði fengið njósnir af landinu. — Eitt er enn spaugilegt í grein Kochs. Hann spyr hvort það sé fyndni, aö íslendingar hafi nefnt konunginn Kristján Friðriksson. Það er ekki kunnugt að kon- ungur vor hafi verið nefndur svo' í íslenzkum blöðum öðrum en þeim, sem gefin eru út tneð styrk úr dönskum sjóðum. En þótt svo væri, þá er það í fullu 'samræmi við málfar íslend- inga. Fyrsti konungur íslands hét Hákon Hákonarson og sá næsti Magnús Hákonarson. Virðist engu ósæmilegra að kenna konunga til feðra sinna, heldur en auðkenna þá, með tölum.

x

Vesturland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturland
https://timarit.is/publication/633

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.