Vesturland

Årgang
Eksemplar

Vesturland - 03.03.1934, Side 1

Vesturland - 03.03.1934, Side 1
VESTU RLAND XI. árgangur. Háttsemi boisa. Það þykir hvarvetna hin mesta ósvinna, að taka upp illa háttu, en ósvinnan margfaldast þegar menn vilja eigi af þeim iáta, þegar þeir og aðrir reka sig svo eftir- minnilega á aflejðingar háttsemi sinnar, að úti í ófæru sé stefnt verði þeim áframhaldið. Það mun nú öllum ljóst, krata-. broddunum sjálfum eigi síður en öðrum, hverjar afleiðingarnar verða og eru þegar orðnar af ráðs- mensku þeirra á bæjarmálum ísa- fjarðar. Að 'vísu höfðu þeir á takteinum fyrir fólkið fyrir kosningarnar, að bærinn ætti skuldlaust um l1/^ milj. króna. Útávið hafa þeir og látið ganga hinar fáránlegustu fjarstæður um þessa stjórn sína, svo henni hefir af mörgum flokks- bræðrum þeirra verið hampað sem fyrirmynd. Á bæjarbúa sjálfa, sem verða svo að segja daglega að þreifa á því hvernig hagur bæjarsjóðs raunverulega er, hafa slíkar frá- sagnir engin áhrif. Þeir vita að um lengri tíma hefir verið greiðslu- tregða hjá bænum, svo hann hefir ekki getað int af hendi lögmætar og réttmætar greiðslur. Þetta er nú orðið svo ljóst mál, að kratarnir eru hættir að þræta fyrir hvernig ástandið er. T. d. játaði Guðm. Hagalín þetta á slð- asta bæjarstjórnarfundi. Og þrátt fyrir allar eignirnar, sem kratarnir hafa gumað svo mikið af, er nú svo komið, að bærinn getur ekki fengið nauð- synleg bráðabirgðarlán. Lýsti kratabroddinn Finnur Jónsson því á siðasta bæjarstjórnarfundi, að bærinn hefði átt allmörg lán í vanskilum um síðustu áramót og því fengjust ekki nauðsynleg bráðabirgðarlán fyrir bæinn. Er og sizt ofsögum af þessu sagt, ísafjörður, 3. marz 1934. því enn eru ógreidd brunabóta- gjöld af öllum húseignum bæjar- ins, sem greiðast áttu 15. október síðastl. Nemur þaö samtals 2418 krónum. Fyrir árarnót átti bærinn í vanskilum lán að upphæð nær þvi 90 þús. kr. og féllu sum þeirra i gjalddaga 15. okt. s.l., en önnur litlu síðar. Nú um áramótin féll enn 22 þús. krf lán á bæinn, sem enn er í vanskilum. Þá var og annað reikningsián bæjarins yfir- dregið um 8 þús. kr. um siðastl. áramót. Auk þessa hafa og verið gefnar út fjöldi ávísana af fyrv. bæjar- stjóra, sem ekki er hægt að greiða, en hvað þær nema samtals mikilli upphæð er enn eigi fullrannsakað. Öll þessi atriði komu fram á siðasta bæjarstjórnarfundi og eru því opinbert mál. Þrátt fyrir þetta sérstaklega ömurlega fjármálaástand bæjar- sjóðs, sem hér hefir verið bent á, og er fátt eitt talið, halda krat- arnir auðvitað uppteknum hætti um að flytja og samþykkja með atkvæðum sínum og fóstbróður síns, kommúnistans, sífelt ný út- gjöld á bæjarsjóð, sem honum er ekki skylt að bera að lögum. Á siðasta bæjarstjórnarfundi voru slíkar útgjaldahækkanir sam- þyktar, sem nema um 6 þús. kr. yfirstandandi ár fyrir bæjarsjóð. Fengust kratarnir ekki til að leyfa, að fjárhagsnefnd fjallaði um þess- ar hækkanir. Það væri gott og ánægjulegt, ef bæjarkassinn væri svo á vegi staddur, að hann gæti bætt kjör allra bæjarbúa, sem þess þyrftu með, og greitt starfsmönnum sín- um sem hæzt laun. En þegar ástandið er orðið slíki sem það er nú orðið hér í bænum getur það ekki endað nema á einn veg, ef ekki er horfið frá slíkri fjár- málastefnu. Kratabroddarnir eru sífelt að tala um burgeisa og hátekjumenn, 11. tölublað. sem eigi að bera byrðar bæjarfé- lagsins. En því miður fækkar þess- um burgeisum og hátekjumönnum hér með ári hverju. Og nú mun þeirra helzt að leita í eigin flokki kratanna, en þeir hafa undanfarið kveinkað sér meira yfir háum út- svörum en aðrir. Eins og öllum er kunnugt, hafa kratarnir verið einráðir í bæjar- málunum síðastl. 11 ár. Enn eru þeir í hreinum meirihluta þegar um einhverjar útgjaldahækkanir er að ræða, hvort heldur á eldri liðum eða nýjum útgjöldum, þvl þar er kommúnistinn þeirra svar- inn bandamaður, þótt lítið sé um kærleika milli þeirra ofan á. Kratarnir hafa því borið og bera enn þá óskifta ábyrgð á fjárstjórn bæjarins. Það er þeirra verk hvernig komið er hag bæjar- sjóðs og þeir verða að bera á- byrgð á afleiðingum gjörða sinna. Grein jpessi hefir beðið frá slð- asta blaði. Nýtt útgerðarfélag. 25. f. m. var stofnað hér i bæn- • um fiskveiðahlutafélagið „Huginn“ (var i 4. bl. Vesturl. þ. á. sagt frá undirbúningi þessarar félags- stofnunar). Ætlun félagsins er að kaupa 5 nýtízku-vélskip, 50—60 smál. að stærð, til fiskveiða, og ýms annar atvinnurekstur í sambandi við starfsemi félagsins. í stjórn félagsins voru kosnir: Björgvin Bjarnason, Jón S. Edwald, Gísli Júliusson, Jóh. J. Eyfirðingur og Arngr. Fr. Bjarnason. Björgvin Bjarnason fór áleiðis til útlanda með Dr. Alexandrine 28. f. m. til samninga um bygg- ingu á væntanlegum skipum og Jón S. Edwald fór áleiðis til út- landa með Dettifoss 2. þ. m. f sömu erindagerðum. Félaginu hefir þegar safnast í

x

Vesturland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturland
https://timarit.is/publication/633

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.