Vesturland

Árgangur

Vesturland - 27.07.1935, Síða 2

Vesturland - 27.07.1935, Síða 2
118 VESTURLAND Þorskveiðarnar. Aldrei hafa afkomuhorfur þess- arar greinar fiskveiðanna verið eins ískyggilegar og nú. Mestu veldur þar um þær óhemju miklu takmarkanir, sem orðnar eru á innflutningi fiskjarins til aðalmark- aðslanda okkar, Spánar og italiu, svo og haftastefna annara þjóða sem að öðrum kosti væri fært að selja eitthvað af fiskinum. Meðfram til þess að reyna að koma í veg fyrir enn frekari inn- flutningstakmarkanir á Spáni hafa fiskframleiðendur orðið að greiða mjög tilfinnanlegan skatt af fram- leiðslu sinni auk hins háa útflutn- ingsgjalds til rikissjóðs. Samkepnin við þær þjóðir sem selja fisk á sömu markaði og við er einnig að torvelda afkomu út- gerðarinnar vegna þess að fram- leiðslukostnaður okkar og skattar og tollar á þessum atvinnuvegi er svo stórum meiri en keppinaut- anna, t. d. Norðmanna og Fær- eyinga. Set eg hérsamanburð á kostn- aði hér hjá okkur og í Noregi. Er kostnaðurinn miðaður við 1 skpd. af þurkuðum fiski frá því er fiskurinn er kominn á land, siægður og afhausaður. Verðið er reiknað í báðum til- fellum í fsl. krónum og tekið að því er Noreg snertir eftir áreiðan- legum heimildum. í báðum tilfell- um er farið eftir meðalverði, en frávikningar geta átt sér stað í einstökum tilfellum. T. d. er verk- un ódýrari á sumum stöðum en þá er salt nálega alt af dýrara en hér er reiknað. Hér er miðað við fullþurkaðan fisk, en verkun Portúgalsfiskjar er mun dýrari og Labradorf. ódýrari. Einnig er miðað við venjulega veðráttu. \ óþurkatíð. Salt (verðmismunur vegna ódýrari flutnings- gjalds og lægri innflutningstolls) Vinna við verkun í salt og umstöflun o. fl. Þvottur,þurkun,pökkun,mat,umbúðir og útskipun Útflutnings- og verðjöfnunargjald, miðað við nr. 1 fisk á 75 kr. skippundið (Hafnargjöldum siept, þau eru mismunandi á hinum ýmsu stöðum í báðum löndunum). Vextir hér 6%, í Noregi 4"/0, i sex mánuði <un er mun dýrari í ísland Noregur 8.50 7.25 5.50 2.65 20.00 9.75 5.72 0.50 2.25 1.50 41.97 21.65 Kostnaðurinn er þá fullum 20 krónum hærri hér en í Noregi. Auk þessa eru tollar á nauð- synjavörum útgerðarinnar f flestum tflfellum helmingi hærri hér en í Noregi. Útsvar til bæja og sveita og tekjuskattur tíl rikissjóðs, þá sjaldan gróði er á útgerðinni, miklum mun hærri hér en þar. Þess utan eru öll veiðarfæri mun ódýrari i Noregi sem meðal ann- ars stafar af þvf, að mikill hluti þeirra er tilbúinn i landinu sjálfu með fullkomnum tækjum og ódýrri raforku. Á sama tima sem við íslend- ingar fáum tæplega 8 aura fyrir kflóið af fiski með hrygg með 75 kr. verði á skippundi fullverkaðs fiskjar (425 kiló hryggfiskjar á 0.08 == kr. 34.00, + kostnaður, eins og að framan segir, þar með ekkert gert fyrir áhættu, útsvari af starfseminni, bókhaldi o. fl., kr. 41.97 gerir alls kr. 75.97) fá norskir útgerðarmenn og sjómenn nálega 13 aura fyrir kíló af samskonar fiski, eða fullum þriðjungi hærra verð, og þá auðvitað sömu hlut- föll ef um saltfisk er að ræða. Með öðrum orðum Norðmenn geta greitt kr. 53.35 en við kr. 33.03 fyrir fiskinn í 1 skippund fullverkaðs fiskjar. Ekki mun þessi samanburður vera okkur hagstæðari ef Fær- eyíngar eru teknir til samburðar. Af þessu, sem má mönnum vera ljós afstaða okkar í samkepninni við þessar frændþjóðir okkar og hin afar lélega afkoma útgerðar- manna og hlutamanna á þorsk- fiskveiðunum hjá okkur. Getur nokkur furðað sig á j>vi, þó útgerð okkar liggi undir I sam- kepninni og að hlutamenn á þorsk- veiðaskipunum hafi svo lélega afkomu, ef ekki er uppgripa afli, að hlutir þeirra að frádregnu fæði verði í mörgum tilfellum 30—40 krónur á mánuð og mun minna þegar aflatregða er mikil. Það getur ekki gengið svo ár- um saman að útgerðin og sjó- mennirnir, þeir sem vinna fyrir hlut, hafi slfka afkomu. Af vinn- andi fólki eru það sjómennirnir sem mest leggja að sér við vinn- una. Það er alment að þeir vinni 16—18 klst. f sólarhring. Aukþess er slysahætta þeirra meiri en ann- ara vinnandi stétta. Ennfremur eru sjómennirnir úrval vinnandi stétta við sjávarsiðuna. Þetta verður að breytast ef út- gerð og sjómenska á að vera undirstaða þjóðarbúskaparins í framtiðinni, eins og verið hefir um mörg undanfarín ár. Eitthvað má spara í tilkostnaði við að afla fiskjarins, en ekki mun það þó vera neitt að ráði, annað en það sem vinnast má með hag- feldari kaupum á útgerðarvörum. Aðalbreytingin verður að verða á þeitn tilkostnaði sem nú er við fiskinn eftir að hans er aflað, eða í verkun, tollum og sköttum til ríkis og bæjarfélaga. ísafirði, 24. júlí 1935. Jón Auðunn Jónsson. Um heyverkun. Hin breytilega og oft stórvot- viðrasama veðrátta um heyöflun- artímann f mörgum héruðum landsins hlýtur að vekja hugleið- ingar og spurníngar um það, hvort ekki er hægt að haga heyöfluninni á annan veg en nú er gert, til þess að verða óháðari dutiungum tfðarfarsins. Er nauðsynlegt að þurka heyið? Er fyrsta spurningin sem skýtur upp I hugsuninni, en svör við henni er ekki hægt að gefa, nema að undangengnum vísindaiegutn ransóknum. En langt er frá því, að það þurfi að teljast ómögulegt, að finna aðferðir aðrar og betri en þær sem þektar eru, svo sem vot- heysverkun, til þess að verka heyið sem grænfóður. Auk þess mikla tíma, sem til heyþurkunar gengur þegar ilia viðrar, er ekki minna vert um það stórkostlega efnatap, sem leiðir af þurkuninni, jafnvel þegar bezt gengur. En er illa viðrar er mest af hinum dýrmætu næringarefnum heyjanna gersamlega horfið. Votheysverkunin eins og hún er nú, er ekki einhlít. Sumir búmenn okkar sem lærðir kallast hafa haldið mjög fram votheysverkun og þvf að hún ætti að verða aðalfóðuröfiun bænda. En jafn vel þar sem hún hefir bezt tekist er iangt frá því, að nota megi votheyið sem eingæft fóður. Og mörg eru þau dæmin, að votheysgjöfin hefir orðið bænd- um að tjóni, þótt þau dæmi séu ekki hér rakin. Við þessu er og að búast sök- um þess, að votheysgerðin, þótt vandalítil sé, þarf að fara fram á fræðilegan (vfsindalegan) hátt, svo hin rétta gerjun eða efnabreytingar eigi sér stað í heyinu. Má í þessu sambandi minnast á, að hin fræga finska votheysgerð er rekin á vís- indalegum grundvelli og efna- blöndun sú sem látin er f heyið bygð á súrefnisransóknum á hverri einustu jörð, sem verkunin er framkvæmd á. Eigi votheysverkunin að koma að því liði, sem formælendur hennar ætlast til, er það nauðsyn- legt að hún sé framkvæmd með vfsindalegu sniði og að undan- gengnum ransóknum. En þrátt fyrir það mun svo lengi verða, að þurheysverkun verði almenn. Kemur þá til at- | hugunar þriðja leiðin: Endurbætur á þurkunar- aðferðum. Þær endurbætur geta orðið með ýmsu sniði. En víst er að miklu varðar um tíma og kostnað við þurkunina, að þar sé gætt hagsýni og góðrar verkstjórnar. Við það vex heyaflinn, þótt sami mann- fjöldi sé. Og hinn misjafni afrakst- ur sama mannsfjölda á jörðum, sem liggja svo að segja hlið við hlið er mest fólgin I því, hvernig þurkuninni er hagað. Til þess að flýta fyrir afköstum við þurkunina hafa margir keypt sér útlendar rakstrarvélar og hey- snúningsvélar, og reynast þær yfirleitt vel við verk sitt. Væri það verkefni fyrir fslenzkt hugvit, að finna nýjar eða endurbættar gerðir á vélum þessum og gera þær fslenzkt smfði, og eins sláttu- vélar og margvísleg önnur áhöld til búreksturs. Er þar mikill inn- lendur markaður fyrir hendi og um framtíðarfyrirtæki að ræða. Þar sem lönd eða jarðir eru vélfær er það sjálfsagt ódýrast að nota vélar til sem mestrar vinnu. En á öllum hinum fjölda jarða má og margt gera til þess að búa í haginn um heyþurkunina sem annað. Bezta ráðið til skjótrar þurkun- ar og að verja heyið hrakningum hefir mér reynst að fá heyið sem fyrst í sæti; jafn vel þótt það sé linþurt eða hálfblautt sem sumir kalla. Hefi eg sett það I tvísett sæti, 1—2 hesta í hvert og látið þau standa 2—3 daga eða eftir ástæðum, og breitt þau siðan góða þerristund, ef kostur er. Virðist mér þessi aðferð spara áreiðanl. 1 dags þurk við það sem venju- legast er. Heyið mætti sæta eða stakka enn blautara, ef svo væri umbúið að loftstraumur gæti leikið undir sætið og heyið þyrfti ekki að liggja við blauta jöröina. Væru hentugastir til þess mátulegir tré- pallar fyrir sætisbotninn með stutt- um fótum sem festa mætti f jarð- veginn. Vitanlega myndi slíkur umbúnaður kosta nokkuð, en ef- laust myndi hann marg borga sig, þvf pallana mætti nota ár eftir ár. Sé þurt hey sætað er það mik- ilsvert, að það sé setl f sem stærst sæti, ef ekki er hægt að koma þvf strax inn. Ella vill oft svo til, að það fær þá úrkomu sem bleytir upp alt sætið, og er ekkert hey vandþurkaðra en þurt hey, sem verður vott aftur, auk þess sem það er lélegt fóður. í stórum vel- settum sætum skemmist heyið mjög lítið, jafn vel þótt um stórrigningar sé að ræða. Til að verja hálfþurt hey úr- komu og foki er nauðsynlegt að nota heyábreiður (hærur). Eru þær tiltækilegastar úr ,hessian“ og mætti fá þær tiltölulega ódýrar, ef margir bændur slægju sér sam- an um innkaup á efninu. Heyþurkunarvélar. Ýmsir festa vonir á þvf, að handhægar og ódýrar heyþurkun- arvélar muni leysa úr þessu vanda- máli bændanna og létta þeim stritið. Er nokkuð að slíkum til- raunum unnið víðsvegar um lönd, og einn vestfirzkur uppfindinga- maður, Sigurlinni Pétursson, hefir smíðað fyrirmynd að heyþurkun- arvél, sem þó enn er ekki kominn til fullkominna tilrauna. Er. erlendar tilraunir hafa sann- að, að vélþurkun á heyi er fram- kvæmanleg. En við öðru er hætt. Fyrst þvf, að kostnaðurinn við vélþurkunina verði meiri en hey- verðið þolir, nema þar sem sér- stök skilyrði eru fyrir hendi um ódýrt rafurmagn. Annað, að bráð- lega munu ekki þær vélar koma fram i þessari grein, sem verði

x

Vesturland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturland
https://timarit.is/publication/633

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.