Vesturland

Ukioqatigiit

Vesturland - 27.07.1935, Qupperneq 3

Vesturland - 27.07.1935, Qupperneq 3
VESTURLAND 119 smjöi*líki er ljilffengasta l * d :0 'P m 09 O I u 3 (0 Vitamín! Vitamín! í alla fæðu hrópa nútímavísindin. í samræmi við það er nú bæði Sólar smj örlíki og Stj örnusm j örlíki blandað vitamíni eftir nýjustu og fullkomnustu aðferðum. H.f. Smjörlíkisgerð ísafjarðar. m 3 U. 0: * M H> Q* fi’ff'ffACERO 'fíRNf\ fifTffKSS ON fll? C.J 5UND5TR/BTI.39. JSAFlffÐJ STQFNHTT. Þeir sem hugsa sér að ieggja skolpleiðslur i sumaroghaust.ættu sem fyrstað semja um kaup á rörum við Höskuld Árnason, Sundslr. 3ÍJ. svo ódýrar að hver bóndi gæti eignast þær til notkunar. En það er hér eitt aðalskilyrðið, þar sem allir þurfa að þurka á sama tíma. Af þessum ástæðum er því valt að byggja miklar vonir á hey- þurkunarvélum. En á hinu eigum við að festa tryggar vonir, að vísindin komi okkur til hjálpar við búreksturinn, jafnt við þurkun á heyjunum, sem öðrum vand- kvæðum, er ráða verður bót á. Innlend búvísindastöð. Til þess að svo megi verða þurfurn við að eignast fullkomna innlenda búvlsindastöð, þar sem ransakað sé alt um háttu og hagi búnaðar og búpennings, og þær ransóknir gerðar að almennings eign svo sem verða má. Það er kunnugt, að aðrar menta- þjóðir hafa fyrir löngu komið bú- rekstri sínum á nákvæman vis- indalegan grundvöll. Við islend- ingar verðum þar óhjákvæmilega að fara sömu götuna, ef vel á að fara. Gerum við það ekki bitna þær afleiðingar á allri þjóð- inni í vaxandi hrörnun búskapar- ins. Væri það þjóðarógæfa, því frjáls, mentuð og atorkusöm bændastétt er hinn bezti kjarni sérhvers þjóðfélags. En eins og nú horfir er ekki annað sýnna, en að fleiri og fleiri bændur leggi árar i búskaparbát- inn og sæki í þéttbýli kaupstað- anna og sjóþorpanna, sem eiga engin skilyrði þess, sem vænta má, að standa óstuddur eða bak- hjarlslaus i baráttu sinni. Búnaðarástandið eins og það er nú hvetur þvi alla hugsandi menn til nýrra átaka um sæmilega afkomu bændastéttarinnar. En af- koman verður ekki bætt að varan- legu gagni nema að búvisindin komi til hjálpar. Þvi um gildi visindanna standa enn í fylsta gildi orð góðskáldsins Jónasar Hallgrímssonar: „Vísindin efla alla dáð, orkuna styrkja, viljann hvctja". Norðmenn flytja árlega út landbúnaðaraf- urðir fyrir 10—12 milj. kr. þar af hey fyrir um 5 milj,, af því er frá Þrændalögum einum fyrir 3,2 miljónir. Landbúnaður Dana. Á fundi sem landbúnaðarmenn Norðurlanda (Nordisk Jordbrugs- forskeres Kongres) héldu nýlega í Danmörku, hélt einn af landbún- aðarfrömuðum Dana, Madsen- Mygdal, fyrv. forsætisráðherra, ræðu sem veitt hefir verið sérstök athygli. Ýmsir hafa haldið þvi fram að Danmörk væri öðrum löndum fremur vel failin til landbúnaðar- framleiðslu. Hann fullyrðir að dugnaður og framtak, en ekki náttúrugæði, hafi komið landbúnaði Dana á það háa stig sem hann er á. Vöru- vöndun sem stuðst hafi við vís- indalegar ransóknir hafi unnið aðalframleiðsluvörum þeirra álit á erlendutn mörkuðum. Haftastefnan hafi krept mjög að landbúnaði þeirra. Þeir hafi mist um 35°/0 af útfiutningi landbúnaðarafurða vegna innflutningshafta viðskifta- þjóða þeirra. 1930 voru 4,9 miljón svína í Danmörku (miklu fleiri en íbúar landsins) nú aðeins 3,05 miljónir. Þeir urðu að minka svona stórlega framleiðsluna, vegna inn- flutningshafta viðskiftaþjóðanna. Hann segir að Dönum hafi verið það mikið lán að þeir hættu við kornframleiðslu til manneldis um 1880, þegar Ameríka fór að senda sitt ódýra korn til Evrópu, og tóku upp griparækt en hafa jafn- fram kornrækt tii skepnufóðurs. Um áratugi hafa landbúnaðar- afurðir verið um 85% af útflutn- ingi dönsku þjóðarinnar. Aðeins % af landbúnaðarframl. er notað í landinu sjálfu og verðlag á land- búnaðarvörum innanlands segir hann miklu lægra en 1 nágranna löndunum. T. d. smjör kr. 1.50— 1.75 pr. kíló, gott naútakjöt 60—80 aura o. s. frv. Meðalverð á mjólk til vinslu muni vera 9—9Va eyrir Hterinn, til framleiðenda. Telur hann þetta viðunandi ef ekki þyrfti jafnframt að skera framleiðsluna niður um Vs, vegna hafta þeirra sem nú eru í milliríkjaverzluninni. Danir flytja út um 150 miljón kíló af smjöri og 390 miljón kiló af fleski. M. M. segir: Þetta er ekki því að þakka að Danmörk sé stórt eða af náttúrunnar hendi sérlega gott land. „Danmörk er í raun og veru lítið, fátækt land‘‘. Skýr- ingin liggur í einstæðri, sjálfstæðri þróun hins danska landbúnaðar á siðustu 50 árum. Hann endaði ræðu sína á þessa leið: Heimurinn er nú í því verziunar póiitiska ósamræmi, að allir vilja selja en enginn kaupa. Heilbrigð framleiðsla er hlekkjuð af höftum til ágóða fyrir framleiðslu sem ekki ber sig, en er haldið uppi með ríkisstyrkjum. Þetta leiðir til óheilbrigðar verðlækkunar og þar með almennrar fátæktar. Menn tala um skipulögð fjármál og framleiðslu — Planokonomi — en eftir þvi sem bezt verður séð er hvorki skipulag eða fjármálalegt vit í því óljósa fyrirkomulagi. Stríð og innflutningur. Sumir eru þeirrar skoðunar að ef einhver þjóð fer I stríð, þá muni sú þjóð kaupa meira af vör- um en venjulega. Þetta hefir ekki reynst svo nema að þvl er bandamenn snerti I heimsstyrjöldinni. — Miðveldin. Þýzkaland, Austurríki o. fl. keyptu nálega ekkert af öðrum þjóðum meðan heimsstyrjöldin stóð yfir, en allir bjuggust við að þau lönd mundu kaupa mikið af feitivörum, strax og styrjöldinni lyki, þvi einkum var mikill skortur á þeim vörum í þessum löndum öll styrj- aldar árin. Af þeim sökum bjugg- ust allir við óhemju háu sildar- verði 1919. En vegna þess að þessar þjóðir höfðu ininkað stórlega feitmetis- neyzlu sína, og meðfram vegna skorts á erlendum gjaldeyri, keyptu þær nálega engar feitivörur og þá heldur ekki stld. Þess vegna varð síldarframleiðsla Hollendinga, ís- lendinga og Norðmanna nálega verðlaus. Nú eru flestar þjóðir I gjald- eyrisvandræðum, er þvi liklegast að striðsþjóðir minki stórlega all- an inntlutning. Pólland. Það hefir verið talið að I Dan- mörku væru sveitirnar (landbún- aðarhéruðin) þéttbygðari en í öðr- um löndum. Þar lifa 35—40manns á hverjum ferkilómeter. Pólland á nú met I þessu, þvi f mörgum landbúnaðarsveitum þar lifa 70—80 manns á hverjum fer- kílómeter lands. f Ásgeir Kristjánsson, sonur Kristjáns Ásgeirssonar fyrv. kaupm. á Flateyri i Önund- arfirði og Þorbjargar Guðmunds- dóttur, lézt I Landsspitalanum þann 18. þ. m. eftir stutta legu. Ásgeir var aðeins 27 ára að aldri. Hann var jarðsungin 1 Reykjavlk þann 26. þ. m. i* Sigríður Eggertsdóttir, tengdamóðir Baldvins Jónsson- ar, ökumanns, hér I bæ, andaðist að heimili hans þann 23. þ. m. Hún var 95 ára að aldri. III. flokkur K. S. F. „Valur“. Með e.s. „Gullfoss" þann 24. þ. m. kom hingað III. fl. frá K. S. F. Val í Reykjavik í heimboð til K. S. F. Harðar hér. Keptu þeir við III. fl. Harðar s. I. fimtudags- kvöld kl. 8V2,og er það fyrsti kapp- leikurinn er fram fer hér eftir að gert hefir veiið við völlinn, urðu leikslok þau að Hörður vann leik- inn með 3 gegn 2 mörkum. Veður var ágæt og áhorfendur voru um tvö hundruð. Leikur Valsunga var mjög góður sérstaklega í fyrri hálfleik, og var hægt að sjá, að drengirnir hafa æft mjög vel undanfarið, því svo mikið vald höfðu þeir á knettinum, og áhorfendur dáðust mjög að þvi, að svo ungir drengir (14—16 ára) skildu geta sýnt slikt samspil. En mjög voru þeir óhepnir að geta ekki haft markvörð sinn með i förinni hingað, þvi sá er þeir höfðu var alt of stuttur og litið æfður, hefði ieikurinn farið öðruvísi fyrir þá, ef þeir hefðu haft sinn mark- vörð. Leikurinn var hinn prúðmann- legasti, hjá báðum félögunum, en var þó stundum mjög snarpur, eiga báðir flokkar þakkir skilið fyrir þá framkomu er leikmenn sýndu i þessum leik. Nú i kvöld keppa þessi félög aftur, og mega Harðverjar nú ábyggilega skerpa sig enn meir en áður, ef þeir ætla að ganga með sigur af hólmi, þvi Valsungar munu herða sina sókn mjög frá því sem þeir gerðu í fyrri kapp- leik. — ísfirðingar! Fjölmennið á völlinn i kvöld, og sjáið drengi- legan og skemtilegan leik hjá hin- um ungu knattspyrnumönnum. T y rol-kvartettinn hefir haldið hér tvær skemtanir á miðvikudags- og föstudagskvöld við góða aðsókn i bæði skiftin. Er látið vel yfir skemtun þeirra, enda nýung fyrir ísfirðinga.

x

Vesturland

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturland
https://timarit.is/publication/633

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.