Vesturland

Volume

Vesturland - 09.11.1935, Page 1

Vesturland - 09.11.1935, Page 1
VESTURLAND * r XII. árgangur. Frá Alþingi. Enn gerist fátt sögulegt í þing- sölunum. Þó hafa kotnið fram allmörg ný frumvörp og enn fleiri styrkbeiðnir til fiestra mögulegra og ómögulegra hluta; rétt eins og beiðenöur hafi búist við, að eitt- hvað væri eftir hjá rauðu ríkis- stjórninni. Má og vera að eitt- hvað innansóp sé enn til fyrir for- hertustu fylgismenn og atkvæða- smala, en flestir munu fara alger- lega bónleiðir og ygla brún, að þeim rauðu, sem þeir hafa treyst um forsjá sína. Hagur útgerðarinnar réttist nokkuð. 6% gjaldið til markaðs- og verð- jöfnunar-sjóðs verður afnumið. Frá þingbyrjun hafa staðið yfir samningar milli Sjálfstæðisflokks- ins og stjórnarflokkanna, að létta af útgerðinni hinu Iðgákveðna 6% gjaldi til markaðs- og verðjöfn- unarsjóðs. Sökum endurtekinna áskorana frá útvegsmönnum víðsvegar um land, hafa rauðu flokkarnir látið undan síga, og gaf atvinnumála- ráðherra þá yfirlýsingu á Alþingi I. þ. m., að þeir væru því með- mæltir, að þessu gjaldi yröi létt af útgerðinni að mestu cða öllu leyti. Fullar vonir eru þvl um, að þessi rangláti skattur verði afnum- inn nú á þinginu. Þá flytja Sjálfstæðismenn á AI- þingi frumvarp um afnám útflutn- ingsgjalds af sjávarafurðum. Er enn óséð um framgang þess. Kom strax við fyrstu umræðu málsins hljóð úr horni frá Eysteini fjármálaráðherra um að rikissjóð- ur mætti ekki missa þessar tekjur. — Þó gera menn sér vonir um, að rauðliðar svigni fyrir kröfum útvegsmanna einnig þar, ef þeir láta ekki letjast. f sambandi við niðurfall 6% gjaldsins til markaðs- og verð- jöfnunarsjóðs bar Sig. Kristjánss. fram á fyrsta fundi sjávarútvegs- nefndar n. d. frumv. um markaðs- sjóð saitfisks. Skal tekjum sjóðsins variö til þess að efla, tryggja og auka saltfiskmarkað, meðan inn- flutningur á saltfiski er takmark- aður til eins eða fleiri markaðs- landa. Sjóði þessum skal aflað fjár eftir útgjaldaþörf hans, alt að 1 milj. kr. á ári. Tekjur sjóðsins eru: 1. Hálfur nettoágóði Áfengis- verzlunar rlkisins. 2, Framlag rlkissjóðs eins og það er ákveðið l fjárlögum hvers árs. Ríkisstjórnin skipar sjöðnum 5 manna stjórn til eins árs I senn; 4 samkvæmt tilnefningu þeirra þíngflokka sem nú eru; einn eftir Hln. hvor? þeirra, en atv.málaráðh. skipar 5. manninn, sem er for- inaður sjóðsstjórnar. ísafjörður, 9. nóvember 1935. 44. tölublað. Fylgi útvegsmenn vel og vitur- lega fram sínutn málum munu eflaust fleiri vandkvæði þeirra skipast til betri vegar. Munar af- nám þessara skatta strax nokkuð fyrir útgerðina. Breyting á kjötsölulögunura. Sig. Kristjánsson flytur merki- legt frumvarp til breytingar á kjötsölulögunum, Er þar haldið því úr gömlu lögunum, sem telja má lífvænt, svo sem ákvæðunum um kjötverðlagsvernd og því sem trygt getur sem jafnast verð inn- anlands. En einokuninni er hrund- ið. Bændur mega seija sláturfjár afurðir hverjum sem kaupa vill, gegn því að greiða lögákveðið verðjöfnunargjald, sem ákveðið er að eigi megi fara yfir 5 aur. pr. kgr., nema sunnanlands, þar alt að 10 aur. pr. kgr. Heimaslátr- un er og leyfð með tilteknum skilyrðum. Þessar breytingar og aðrar sem frumv. Sig. greinir eru einmitt þær breytingar, sem fjöldi bænda hefir óskað eftir, og munu þeir kunna honum þökk fyrir flutning frumv. Hinsvegar má telja vlst að niær bregði ekki vana sínum, og þeir rauðu reyni að verja einokunina I Hf og blóð, og það því fremur sem frumv. Sig. Kr. leggur rétt- mæta áherzlu á það, að kjötverð- lagsnefnd verði skipuð fulltrúuin bænda að mestu leyti. í stað þess að Alþýðusamband íslands hefir skipað 1 mann 1 kjötverðlagsnefnd og Landssamband iðnaðarmanna 1, mæiir frumv. Sig. Kr. svo fyrir, að Búnaðarfélag íslands tílnefni 1 manninn, Sláturfél. Suðurlands 1, Kaupfél. Borgfirðinga 1, fjöl- mennasta bæjarfélag á hverju verðlagssvæði 1 og landbúnaðar- ráðh. skipi 5. manninn án tilnefn- ingar, og séhann formaður nefnd- arinnar. Húsaskattsdraugur Finns er á ferðinni enn I efri deild, en orðinn svo limlestur að enginn kannastviðupphaflegaásýnd hans; hefur það hleypt heift mikilli I bolsablóðið. Hefir nú verið felt úr frumv. einokunin á upp- og út- skipun á vörum hér, og öli hin margþætta „sortering" húseign- anna feld burtu, en skattgjaldið miðað við fasteignamat. Þingdeila hefir orðið út af greinum Jónasar Jónssonar um saltfisksölu síðustu ára og þá millirfkjasamninga sem staðið hafa í sambandi við salt- fisksöluna. Ræðst Jónas Igreinum af mikilli heift að Richard Thors framkv.stjóra, rétt eins og hann hafi ráðið öllu og staðið einn að þessum samningum. Ásgeiri Ás- geirssyni alþm. réttir hann einnig stjúpmóður sneiðar I sambandi við þessi mál, en getur litt annara. Sjálfstæðisflokkurinn heiir skor- að á atvinnumálaráðherra, að gera annaó tveggja: að gefa yfirlýs- ingU uin óréttmæti slíkra árása að einstökum samningamönnum; eða fyrirskipa ransókn og málshöfðun gegn öllum þeim, sem staðið hafa að þessum samningum. Þegar þessum sjálfsögðu kröf- um var ekki fullnægt neitaði flokk- urinn samstarfi um utanrikismál við rauðu flokkana, sem bera á- byrgð á þessum skrifurn. í utanrfkismálum okkar hefir hingað til ekki gætt flokkaskift- ingar eða sundrungar. Þar hafa allir verið eitt. Og það er höfuð- nauðsyn. Gagnvart erlenduin rikj- um erum við svo smáir og veikir, að engin sundrung má komast að, til þess að gera okkur enn veikari. En hinum rauðu er sjáanlega ekki nóg, að láta deilurnar loga sem hæzt og brenna flest nýtilegt innan lands, heldur vilja þeir einn- ig færa þær á erlendan vettvang. Má segja að ísiands óhamingju verði alt að vopni, ef þeim rauðu tekst það tilræði óhengt. Aldarafmæli Matthíasar Jochumssonar þjóðskáldsins alkunna er 11. þ. m. Er þegar hafinn nokkur und- irbúningur að minningu afmælis- ins, einkum á Akureyri og I Rvik. Á Akureyri verður vígð ný bók- hlaða cr ber nafn skáldins og haldið sérstakt minningarkvöld. Minningarkvöld verður og I Rvik og útvarpinu. Á þessum stöðum og eflaust vfðar verður hinn vin- sæli sjónleikur skáldsins, Skugga- Sveinn, sýndur i þessu tilefni. Er þegar fyrir nokkru þyrjað að leika Skugga-Svein í Reykjavik, en 11. nóv. verður sérstök hátíðasýning. Biskup landsins hefir skipað svo fyrir, að Matthíasar verði minst i kirkjum landsins alment næstk. sunnudag. Engar rafveitufram- kvæmdir bráðlega? 5. þ. m. bárust hingað skeyti um það, að ekki fengist lán 1 Sví- þjóð til fyrirhugaðra rafveitufram- kvæmda hér. Má þvi búast við, að f bráð sé loku skotið fyrir framkvæmdir um vatnsaflsvirkjun fyrir bæinn og nágrennið. Munu flestum bæjarbúum þykja þetta mikii tiðindi og#ill;þvl alið hafði verið mjög á þeim vonum, að úr framkvæmdum yrði að þessu sinni. Hefðu þær bæði fært fólki ódýrara rafmagn og aukna at- vinnu, meðan framkvæmd rafveit- unnar hefði staðið yfir. Er nú ekki annað fyrir hendi en að snúa sér að kappi að því, að fá hér hagfeldari og ódýrari raforku með vélaafli. Er enginn efi á þvi, að það má takast. í minni bæjum en ísafirði kostar raforka til Ijósa Iramleidd með vélaafli ekki meira eu 60—70 aura kwst. Vélbáturinn „PercyK sekkur. 5. þ. m. var vélbáturinn Percy að flytja kol úr e/s Bisp frá Ön- undarfirði til Súgandafjarðar. Þeg- ar báturinn kom norðanvert út af Sauðanesi sökk hann með öllum íarmi, um 60 smál. af kolum. Skipverjar, 5 að tölu, björguðust allir I skipsbátinn og komust á honum að landi, en gengu síðan að Stað i Súgandafirði. Percy var vátrygð I Vélbátaábyrgðarfélagi ísfirðinga fyrir 27 500 krónur, en farmurinn hjá Sjóvátryggingarfél. íslands h/f. Eigendur bátsihs voru: Högni Gunnarsson útg.m., Bjarni Þor- steinsson skipstjóri bátsins og Gisli Hannesson vélstjóri á bátn- um. Percy var um 44 sm£l. brutto. Sjóréttarpróf út af slysinu hóf- ust i gær. 3 menn urðu úti frá Úlfsdölum við Siglufjörð 4. þ. m. Fóru þeir í fjárleitir alt að Hraunum I Fljótum, en héidu það- an um miðjan dag aftur og fóru yfir Almenningsskriður að Máná; er það torleiði mikið og tæpt i þegar svellrunnið er. Þegar menn- irnir komu ekki heim á mánudags- kvöldið var strax á þriðjud. farið að leita þeirra og fanst Hk eins þeirra um Vs kllómetra frá Máná, cn lík hinna tveggja fundust fyrst 7. þ. m. Voru þetta ungir efnis- menn, er þarna fórust. Krapahrlð með ofsaroki hafði verið sfðari hluta mánudags um þessar slóðir. íslenzkar bæjarrústir í Grænlandí. Útvarpsfregn 7. þ. m. skýrirfrá því, að tekist hafi að grafa upp fornar bæjarrúsir i Grænlandi. Sýna þær að 11 sambygð hús hafa verið á bænum, og meðal þeirra stór skáli með rauf í miðju gólfi, þar sem langeldar hafa brunnið. Eru rústir þessar frá ein- hverju höfuðbóli hinna Islenzku landnámsmanna I Grænlandi. Síldveiði hefir verið nokkur þessa viku milli Vestmanneyja og lands. Hafa nokkrir bátar fengið þar góðan afla. Sild sú er veiðst hefir i Faxa- flóa mun nú öll seld. Hefir verðið yfirleitt verið hátt, en lækkað nokkuð og sala verið tregari sfð- asta hálfan mánuð. Nýr verksmiðjustjóri við sildarverksmiðju ríkisins á Siglufirði. Meirihluti stjórnar slld- arverksm. rikisins hefir sagt upp núv. verksmiðjustjóra Jóni Gunn- arssyni verkfr. frá 1. marz n. k. Jafnframt hefir Gísli Halldórssoh veikfræðingur i Reykjavfk verið ráðinn verksmiðjustjóri frá sama tíma, en tekur lull laun frá næstk. áramótum. Messað verður hér i kirkjunni kl. 2 á rnorgun og i Hnifsda! kl. 5. — Matthiasar minníng.

x

Vesturland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vesturland
https://timarit.is/publication/633

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.