Vesturland - 09.11.1935, Blaðsíða 4
A
176
VESTURLAND
U ppboð
Þriöjudaginn 12. þ. m. verða seldir á uppboði ýmsir munir,
smiðaáhöld o. fl., tilheyrandi dánarbúi Þorbjarnar Ólafssonar úrsmiðs.
Uppboðið fer fram við húseign búsins á svonefndu „Wardstúni"
hér I bænum og hefst kl. 1 e. h.
Andvirði hins selda greiðist við bamarshögg.
Uppboösskilmálar verða lesnir á uppboðsstaönum.
ísafirði, 6. nóvember 1935.
Matth' Ásgeirsson.
U p p b o ð
Á opinberu uppboði, er hefst á Grænagarði kl. 4 siðdegis
laugardaginn 16. þ. m. og verður síðar flutt að Ásgarði og i Edin-
borgarhúsin hér i bænum verða seld ýms áhöld og veiðarfæri til-
heyrandi þrotabúi Kristjáns Kristjánssonar skipstjóra, þ. á. m. tvær
snurpinætur, snurpubátar, lóðir, belgir, útvarpstæki o. fl.
Skrifstofu ísafjarðar, 8. nóv. 1935.
Toi*fi Hjaptapson.
p /
Utgerðarmenn og
skipstjórar!
Fyrirliggjandi: MANILLA af öllum gildleika
Ennfremur okkar viðurkendu ágætu flskilínur.
Happdrættismiðar
Myndlistafélags íslands fást I
bókaverzlun Jónasar Tómassonar.
í happdrættinu eru margir ágætir
munir.
Skólaáhöld
allskonar ávalt til sölu hjá
Helga Guðbjartssyni.
Prentstoían tsrún.
X LTS 4C 3 -50
i.r.Vhll BROfHERS I.IMITED, PORT SIWLIGHT, KNGl.AND
Kol, salt, sement
ávalt fyrirliggjandi með sanngjörnu verði.
J. S. Edwald. Db. Simi 245.
„Konur! fegurðin er yðar“
soglr Jean
Haplow.
Á yfirborði og I svitaholum
hörundsins myndast alt af ó-
hreinindi. Lux Toilet sápan gerir
það auðvelt að hreinsa þau
burtu, og heldur hörundinu
fögru. Fylgiö ráðum Jean Har-
lows og þvoið yður reglulega
úr Lux Toilet sápu. Hið þykka
silkimjúka löður hreinsar hör-
tindið óþægindalaust, en samt
að fullu, svo að þaö verður
bjart, mjúkt og heillandi. At
857 aðalkvikmyndadisum nota
846 Lux Toilet sápuna til að
vernda slna lýtalausu fcgurð.
Fáið yður eitt stykki strax í dag.
ÞAÐ ER SVO AUÐ-
VELT AÐ HALDA
HÖRUNDINU FÖG-
RU. MITT EIN-
FALDA RÁÐ ER AÐ
NOTA LUX TOILET
SÁPU. HÚN HELD-
UR HÖRUNDINU
FÖGRU, MJÚKU OG
björtu. Eg nota hana
kvölds og morgna.
4
FEGURÐARSÁPA
KVIKMYNDADÍSANNA
Metro-Goldwyn-Mayer
Lux Toilet Soap
Fjórðungsþ. fiskideildanna.
Framh.
Telur fjórðungsþingið, að fengnum upp-
lýsingum, að útsöluverð á olíu þuríi ekki
og megi ekki vera hærra en 13 aurar pr.
kg. á hráolíu og smálestin af salti 25 kr. á
aðalhöfnum landsins, enda sé um góða og
gilda vöru að ræða. Álítur fjórðungsþingið
að eina tiltækilega ráðið þessu til umbóta,
sé að lögákveða hámarksverð á þessar vörur.
Genglsmál (frsm. M. Guðmundsson.)
Svohlj. tillaga samþ. með 4 atkv. gegn 1.
3 fulltrúar greiddu ekki atkv.
Fjórðungsþing Vestfjarða skorar á alþingi,
að láta fara fram ítarlega ransókn uin við-
horf aðalatvinnuveganna (landbúnaðar og
sjávarútvegs) til gengismálsins og ákveða
síðan verðgildi ísl. krónu í sem fylstu sam-
ræmi við niðurstööur þeirrar ransóknar.
Flskiransóknir (frsm. Jón Krist-
jánsson).
Svohlj. tillaga samþ. með samhlj. atkv.
Fjórðungsþing fiskideilda Vestfjarða skor-
ar á stjórn Fiskifélags íslands, að láta flski-
fræðing sinn, hr. Árna Friðriksson, fara
ransóknarferðir um síldveiðitímann á veiði-
svæðunum og ransaka sfldargöngur, átu-
magn og annað, er frætt getur um háttu og
eðli síldarinnar.
Lækkun vaxta (frsm. M. Guðm.s.)
Svohlj. till. frá 2. nefnd samþ. í e. hlj.:
Fjóröungsþingið skorar á Alþingi og ríkis
stjórn að gjöra ráðstafanir nú þegar til
lækkunar útlánsvaxta, sérstaklega Utvegs-
bankans, til þess bætt verði úr því misrétti,
að þeir sem við þennan banka skifta verði
eigi að greiða hærri vexti en lánþegar
Landsbankans.
Sé ekld unt að ná þessu inarki ú auð-
veldan hátt, telur ijórðungsþingið sjálfsagt
að lioríið verði að verulegri lækkun inn-
lánsvaxta í. öllum peniugastofnunum lands-
ins.
Verndun veiðimlða (frsm. Helgi
Einarsson).
Svohlj. tillaga samþ. í einu hljóði:
Fjórðungsþingið beinir því til allra for-
manna, að slæging tiskjar á veiðimiðum
spillir áþreifanlega veiði, og að þvf þurfi
samtök um að engin slæging fari fram á
venjulegum veiðimiðum.
Felur fjórðuiigsþingið fulltrúunum að
hreyfa máli þessu í deildunum að afloknu
fjórðungsþingi ogvinna að samtökum í þessu.
Námskeið (frsm. Helgi Einarsson.)
Svohlj. tillaga frá Eiríki Einarssyni samþ.
með samhlj. atkv.;
Fjórðungsþ. telur nauðsynlegt að breytt
vérði lögum um vélgæzlu á mótorskipum
þannig, að uámskeið þau sem fiskifélagið
lætur lialda veiti tvenskonar réttindi, þannig
að minna próiið veiti réttindi til vélgæzln
alt að 50 lik. enda séu þar minni prófkröl'-
ur gerðar.
Fjölþættari fiskveiöar.
Svohlj. tillaga frá fyrri nefnd samþykt f
einu hljóði:
Eftir því sem þrengist ineira um markaði
fyrir saltaðan tisk, sem til þessa og enn er
aðalframleiðsluvara . okkar, er það aðkall-
andi nauðsyu að veiðiskapur okkar sé sem
fjölþættastur og verðmestur. Lýsir tjórð-
ungsþingið ánægju sinni 1 yfir þeim fram-
kvæmdum sem þegar eru liafnar um fjöl-
þættari veiði og hagnýtingu hennar. Má þar
í fyrstu röð nefna veiðar á karfa og upsa,
sem líklegar eru til að geta gefið mikið
verðmæti. Þá má og nefna veiði á kampa-
lampa (Rejer), sem einnig mætti veiða með
góðum árangri, eftir því sem tilraunir sýna.
Þar sem veiði þessi er enn á tilraunastigi
telur nefndin ekki rétt að samþykkja til-
lögur um veiöi þessa, en treystir því að
þessum tilraunum og öðrum sem líklegar
eru til arðs verði haldið áfram.
Loks fór fram stjórnarkosning. Forseti
var kosinn Arngr. Fr. Bjarnason, ritari
Kristján Jónsson, báðir með 0 samhlj. atkv.
Yaraforseti Haraldur Guðmundsson og
vararitari Jón Kristjánsson, báðiríe. hlj.
Samþykt var að halda næsta fjórðungs-
þing á Isafirði.
Arngr. Fr. Bjarnason. Krietján Jónsson.
Jón Kristjánsson. Helgi Einarsson.
Sigurður Fr. Einarss. Magnús Guðmundsa.
Ölafur Guðmundsson. Eirikur Einarason,