Vesturland

Ukioqatigiit

Vesturland - 27.05.1939, Qupperneq 1

Vesturland - 27.05.1939, Qupperneq 1
VESTURLAND BLAÐ VESTFIRZKRA SJÁLFSTÆÐISMANNA RITSTJÓRI: ARNGR. F R. BJARNASON XVI. árgangur. ísafjörður, 27. maí 1939. 22. tölublað. Hið nýja Akranes. Stórkostleg aukning garðræktar í bænum. Bæjarstjórn lét I fyrra haust hefja undirbúningsvinnu að því að breyta Torfnesinu hér innan- vert við bæinn í garðræktarlönd. Var þá unnið að framræzlu landsins og grjótnámi, en hvort- tveggja var seinlegt verk og dýrt. Var landið að heita mátti stórgrýtisurð, og hafa verið teknir um 50—60 tenm. af grjóti úr þeim 3600 ferm. lands, sem nú eru að heita má fullunnir. f vor hafa unnið við grjótnám og aðra vinnu i hinum nýju garðræktarlöndum 8—10 manns undanfarnar 4 vikur. Er nú byrjað að girða landið, og bæjarstjórn skiiar þvi að öðru leyti undir- búnu til sáningar, sem hefst strax og girðingu er lokið. Bætast þarna 3600 ferm. við garðlönd bæjarins, eins og áður er sagt. Verður þeim úthlutað til 28 manna, 19 þeirra með 100 ferm. hvor, hinir nokkru meira, og sá hæzti með 400 ferm. Hafði hann áður unnið þarna á eigin kostnað um 200 fermetra. Leiga á þessum garðlöndum er 4 aurar fyrir fermeter. Haldið verður áfram að breyta Torfnesinu í garðræktarlönd, og munu þar fást alls um 12 þús. ferm. Var eftirspurn eftir garð- löndum bæjarins í vor miklu meiri en hægt var að fullnægja. Öll vinna bæjarins við garð- ræktarlöndin er framkvæmd sem atvinnubótavinna. Þótt það sé mikið átak sem bæjarstjórn hefir látið gera, að breyta urð og fúamýrum á Torf- nesinu I akra eru framkvæmd- ir einstaklinga hér um aukna garðrækt f vor ekki minna frá- sagnarefnf, en þar sem þær eru dreifðar og ekki liggur fyrir nein heildarskýrsla verða þær að bíða að þessu sinni. En sómi er það bæjarbúum hve vel þeir hafa brugðist við um aukna garðrækt. Víðsvegar má sjá kvenfólk og karlmenn við garðvinnu öllum kvöldum. Er það mikið verk, sem þannig hefir verið unnið, því viða er landið erfitt og tilföng lftil. Haldi svo fram áhuganum um garðræktina, sem nú horfir, fer ekki hjá því að hér verði rétt- nefnt Akranes, og að ísafjörður, þótt mörgum þyki ólfklegt, sæki mikilsvert bjargræði I moldina við bæjardyrnar. En til þess að tryggja framtfð þessara mikilsverðu framkvæmda er nauðsynlegt að hafa fyrir- hyggju og félagsskap. Garðlönd- in í nágrenni kaupstaðarins eru þegar orðin svo mikil, að ekki veitíi af að garðyrkjumaður starf- aði hér alt vorið til eftirlits og leiðbeiningar. Félagsskapar er þörf um vinslu á nýju landi, sem jafnan verður meira eða minna, útvegun útsæðis, garðáburðar og skipulagning markaðar. Eftir þvf sem garðlöndin stækka aukast einnig þau verkefni, sem snúa að verndun garðræktar, ekki eingöngu sem skemtilegri tómstundavinnu, heldur nokkurs atvinnuvegar ásamt öðru. Og því marki þarf að ná, þvf ella er hætt við að sá mikji og Iofsverði áhugi er nú rfkir hér, kulni út fyr en varir. Það er eins með garðræktina og annað gott, að ekki er minni vandi að gæta fengins fjár en afla. Jafn sjálfsagt og það er að veita stuðning til fyrstu fram- kvæmdanna er nauðsynlegt að hún fái þann stuðning áfram sem nauðsynlegur er til þróunar og vaxtar. Og hann fæst tryggastur með félagsskap garðeigenda og annara áhugamanna. Það er engin fjarstæða, að áætla að hver 100 m2 matjurtagarður gefi upp og ofan 50 krónur fram yfir tilkostnað. Nú þegar eru með vissu alfs um eða yfir 200 garðlönd f bænum og nágrenni hans, og næmu þá árstekjur bæjarbúa af garðrækt nú um eða yfir 10 þúsund krónur, en Ilklega gætu þær með hægu móti tlfaldast á tiltölulega skömmum tlma. Svo má heldur ekki gleyma þeirri hollustu sem garðræktinni fylgir. Fyrst og fremst hinni uppeldislegu þýðingu um fegrun og ræktun, og hve hún er vel fallin til vinnu fyrir unglinga og eldra fólk, sem illa þolir strit- vinnu, og þar næst hollustuáhrif- um garðræktarinnar á matarræði manna. Erlent eða aðflutt græn- meti er rándýrt og því lítið á borðutn almennings, en með því að rækta það alt eða flest sjálfur þarf enginn að vera háður verð- laginu, og getur þvf vel Ieyft sér að neyta hins holla grænmetis á hverjum degi, það er ávöxtur hans eigin erfiðis eða hans nán- ustu, og á engan hátt betur varið eða ávaxtað en sem heilsugjafa í hollara matarræði. Útlit bæjarins. Flestum bæjarbúum mun liggja í augum uppi, að bærinn okkar lítur hvergi nærri svo vel út, sem verða mætti og ákjósanlegt er. Úr mörgu af þvf er ekki hægt að bæta, nema með ærnum kostnaði og á löngum tima, en mikið mætti fegra útlit bæjarins með þvf að málning og viðhaidi húsanna væri svo háttað, að aðlaðandi væri fyrir vegfarand- ann. Og vitanlega þarf svo að verða með ísafjörð, að mannshöndin heldur prýði en níði hið gull- fallega bæjarstæði frá náttúrunn- ar hendi. í fljótu bragði má mikið laga útlit bæjarins með auknu hrein- læti og þrifnaði, og bættu við- haldi húsanna. Það yrðu t. d. ekki lítil stakkaskifti fyrir bæinn, ef öll hús yrðu máluð. Það myndi einnig hafa sfnar gleðilegu verk- anir fyrir gestsaugað, að öll hús, sem standa við sömu götu væru máluð eins. Það væri tákn um meiri samheldni og þroska en títt er að sjá í íslenzkum bæjum. Nú er það svo, að meira og meira líður að þeim tfma sem gestakomum f bæinn fjölgar, og nú í sumar eru líkindi til að gestatalan, þeirra sem staðnæm- ast hér og skoða sig um, verði með mesta móti, þar sem Iðri- þing íslands verður haldið hér á ísafirði 22. næsta tnánaðar. Og væntanlega sækir þá hingað margt slfkra gesta, sem gefa glögt auga aö útliti bæjarins. Um sama leyti verður og Vest- fjarðaför Ferðafélags íslands. Það er vitanlegt að margir bæjarbúar hafa meiri vilja en getu til viðhalds húseigna sinna, en jafnan er sigursæll góður vilji. Ættu þeir bæjarbúar sem geta, að hlynna að húsum sín- um nú sem fyrst, svo því verði lokið tímanlega. Með því vinna þeir sjálfum sér þarft verk og gera sitt til þess, að ísafjörður geti orðið bjartari og meira að- faðandi I augum þeirra góðu gesta, sem að garði bera. Barn bíður bana af bilslysi. 23. þ. m. um kl. 17 vildi það siys til á horni Silfurtorgs og Hafnarstr., að 2ja ára gamali drengur, Ólafur, sonur hjónanna Kristfnar Guðfinnsdóttur og Hall- dórs Jónssonar, Hrannargötu 10, varð fyrir bíl. Hlaut barnið voða högg á höfuðið. Var barnið strax ffutt í Sjúkrahúsið, en andaðist þar kl. 21 um kvöldið. Sfysið vildi til á þannhátt, að bifreiðin í. S. 26 var að draga nýja bilgrind, sem komið hafði með Drotningunni. Safnaðistfjöldi barna að þessu nývirki, sem títt er hér f bæ. Slys þetta er áminning til barna og unglinga um að gera sér engan leik að þvf, að hanga utan i bllum; slfkt getur valdið slysi, er minst varir; áminning tii bíl- stjóra um ítrustu varkárni við aksturinn, og áminning til lög- regluþjónanna um sem allra bezt eftirlit með umferðinni í bænum. Síldveiðin. Fregnir hafa borist um að sfld hafi sézt vaða á nokkrum stöðum norðanlands um sfðustu helgi, einkum kringum Melrakkasléttu. Frézt hefir að vélskipið Dagný, eign Sig. Kristjánssonar kaupm. á Siglufirði hafifariðtil slldveiða í gærdag. 1 reknet öfluðust um 35 tn. frá Siglufirði f gær. Mikill sjávarhiti og gott tíðar- far veldur þvi, að sildin gengur nú óvenjulega snemma að land- inu. Má því búast við að síld- veiðin hefjist nú strax i byrjun næsta mánaðar. Hér í bænum er kappsamlega unnið að útbúnaði slldveiðiflot- ans. Eru nokkur skipin þegar að verða tilbúin á veiðar. Vertíðarafli Huganna. Huginn I., skipstjóri Ragnar Jóhannsson, aflaði á nýlokinni vetrar- og vor-vertfð 266.032 kgr. saltfiskjar, upp úr bát, og hafði til hlutar kr. 1235.63. Huginn III., skipstjóri Indriði Jónsson, aflaði 202.674 kgr. salt- fiskjar og hafði í hlut kr. 851.66.

x

Vesturland

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturland
https://timarit.is/publication/633

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.