Vesturland - 16.09.1939, Page 1
VESTURLA
BLAÐ VESTFIRZKRA SJÁLFSTÆÐISMANNA
RITSTJÓRI: ARNGR. F R. BJARNASON
XVI. árgangur.
ísafjörður, 16. september 1939.
37. tölublað.
Stríðsbragðið.
Sjálfsagt þykir mörgum les-
enda blaðsins fullmikið striðs-
bragð að þessu tölublaði. Það
er svo með marga okkar, að
við áttum okkur enn lítið á öllu
styrjaldarrótinu, sem sjálfsagt á
enn eftir að valda meiri og fleiri
truflunum í lifi okkar íslendinga,
þótt við séum tiitölulega afskektir.
Ríkisstjórnin íslenzka hefir jafn-
hliða reglugerðinni um skömtun
matvæla gefið út reglugerð um
sölu á kolurn til húsa.
Þá hefir kenslumálaráðaneytið
til sparnaðar á eldsneyti ákveð-
ið að stytta kenslutímabil fleslra
skóla, er ríkisstyrks njóta eða
ríkið rekur. Hcfst kensla menta-
skólans i Reykjavik 10. okt í
stað 20. þ. m. og í mentaskól-
anum á Akureyri 20. okt, í stað
1. okt., en i Kennaraskólanum 1.
nóv., í stað 1. okt. Ákveðið er
að kensla falli niður í janúar-
mánuði í öllum gagnfræðaskól-
um, sem rikisstyrks njóta. Kenslu-
timabil Háskólans verður og
ínikið stylt.
Kaupstaðirnir ættu og að taka
eflaust upp svipaðar sparnaðar-
ráðstafanir um rekstur barna-
skólanna.
Ýmsir hafa látið í ljósi, að
ófriðarráðstafanir rikisstjórnar-
koini of seint. En eins og rikis-
stjórnin tók fram í ávarpi til
almennings, er lesið var i út-
varpinu á fimtudagskvöld, þurftu
þessar ráðstafanir talsverðan
undiibúning og urðu að hefjast
samtlmis allstaðar á landinu.
Hefir ríkisstjórnin gengið að
styrjaldarráðstöfunum röggsam-
lega og einhuga.
Fisksala
til Ítalíu.
í gær barst tilkynning um að
gengið væri frá samningum um
sölu á 3500 smál. af smáfiski
(Labrador) til Ítalíu. Er þetta
aflamagn rúmlega helmingur af
þeim Labrador-fiski, sem fyrir-
liggjandi er hér á landi.
Afskipun til Ítalíu fer fram
strax og náðst hefir I flutninga-
skip, en á því eru vandræði eins
og nú stendur.
Hækkun
á síldarverðinu.
Hefir Síldarútvegsnefnd
unnið gégn hækkun síld-
arverðsins í sumar?
Frá og með 10. þ. m. hefir
Sildarútvegsnefnd hækkað síldar-
verðið um 5 kr. hverja uppsalt-
aða tunnu og jafnframt ákveðið,
að lágmarksverð til útflutnings
hækki um 4 krónur sænskar fyrir
hverja tunnu,
Áður en Sildarútvegsnefnd
ákvað þessa hækkun hafði síld-
arverðið hækkað talsvert, einkum
frá byrjun þ. m., og sumir sild-
arkaupendur munu hafa keypt
slld fyrir svipað verð og Sildar-
útvegsnefnd hefir nú ákveðið.
Samkvæmt fregnum frá Siglu-
firði er talið að norskir síldar-
kaupendur hafi ýtt undir verð-
hækkun á sildinni og verðið í
Noregi nú sagt 36 kr. pr. tunnu
af saltsíld og 45 kr. af matjes-
síld.
Sú skoðun virðist almenn, að
síldarverðið hefði átt að hækka
miklu fyr og að þvi hafi verið
haldið niðri með sterkum sam-
tökum síldarkaupenda — og bak-
stuðningi Síldarútvegsnefndar
bæta sumir við.
Hefði síldarverðið hækkað fyr
myndu margar þær útgerðir, sem
fara stórum fleiðraðar frá sildar-
vertíðinni, hafa sloppið með litl-
um halla, en þau skip sem mest
hafa veitt, grætt eitthvað.
Hækkun síldarverðsins hefði
líka að sjálfsögðu bætt mjög
upp hinn lága hlut flestra sjó-
mannanna, sem síldveiðar hafa
stundað.
Hér skal enginn dómur á það
lagður, hvort Sildarútvegsnefnd
hefir h ldið síldarverðinu óþarf-
lega niðri. En væri svo, er það
algerlega andstætt tilgangi henn-
ar, sem er einmitt sá, að skapa
sem fastast og hæðst verð fyrir
sildina.
Meiri fisksala
til Portugals.
Sölusamband íslenzkra fisk-
framleiðenda hefir selt að nýju
50 þúsund pakka af saltfiski til
Portugals.
Ifynlegt er það
með Kolbein unga.
Á siðasta bæjarstjórnarfundi
vék ritstjóri þessa blaðs að
óánægju bæjarbúa út af þvf, að
leggja ætti vélbátinn Kolbein
unga til hinstu hvildar í Bótinni
við blómagarðinn. Kvað bæjar-
sfjóri, sem jafnframt er hafnar-
sljóri, sér kunnugt um þessa
óánægju og tók því ágætlega
að flytja Kolbein á annan stað
í höfninni, og nefndi til sem
hentugan stað nálægt leyfum
Ásgeirs litla i Neðstakaupstaðn-
um.
Þrátt fyrir þessar yfirlýsingar
bæjarstjóra bregður svo kynlega
við, að Kolbeinn er ekki fluttur
heldur hefir i þessari viku verið
unnið að því, að koma honum
i hróf I Bótinni, þar sem hann
mun öllum til ama og ásteyt-
ingar.
Hvað veldur þessari ráðbreytni?
Sildveiðin
á öllu landinu var aö kvöldi
þess 9. þ. m., samkv. skýrslu
Fiskiíélagsins: Saltað og sérverk-
að nú 234.495 tn. Bræðslusíld
1.058.085 hektol. Tilsvarandi töl-
ur árin 1938 og 1937 voru:
304.334 og 201270 tn, og
1.758 266 og 2.162.770 hektol.
Forseti Fiskifélagsins telur að
um 130 norsk skip hafi stundað
sildveiðar hér við land í sumar.
Voru 48 skip komin heim til
Noregs 11. þ. m. og höfðu aflað
samtals um 52 þús. tn. Veruleg-
ur hluti aflans var maljes-saltað
og sérverkað.
Af síldveiðum
eru komin heim þessi skip:
Vestri, aflaverðmæti um 24 þús.
kr. Tapaði skipið 14 dögum frá
veiðum í ágúst vegna vélbilun-
ar. Glaður, aflaverðmæti utn 26
þús. kr. Auðbjörn, aflaverðmæti
uin 30 þús. kr. Huginn I, afla-
veiðmæti um 44 þús. kr. og
Huginn II., aflaverðmæti um 51
þús. kr.
Flest eða öll vestfirzku síld-
veiðiskipin eru nú á heimleið.
Hefir sáralítil sildveiði verið alla
þessa viku.
Aðalfundur Prestafél. Vestfjarða
hefst í dag að Núpi í Dýra-
firði, undir forsæti herra Sigur-
geirs Sigurðssonar biskups.
Bráðabirgðarlög
um útflutning íslenzkra afurða.
12. þ. m. voru staðfest af kon-
ungi bráðabirgðalög um útflutn-
ing íslenzkra afurða, og sama
dag setti rikisstjórnin reglugerð
um framkvæmd laga þessara og
sendi lögreglustjórum svolátandi
tilkynningu:
„Samkvæmt bráðabirgðalögum
og reglugerð útgefnum i dag er
óheimilt að bjóða til sölu, selja
til útlanda eða flytja úr landi
íslenskar afurðir nema að fengnu
leyfi útflutningsnefndar sem skip-
uð verður í dag. Ennfremur þarf
leyfi viðskiftamálaráðuneytisins
til útflutnings á ölium öðrum
vörum. Leyfi til útflutnings á ís-
lenzkum vörurn sem veitt hafa
verið af rikisstjórn eða einstök-
uin stofnunum, svo sem Síldar-
útvegsnefnd eða Fiskimálanefnd
eru úr gildi fallin. Útflytjendum
ber að greiða x/a af þúsundi af
útflutningsverðmæti í leyfisgjald,
þó eigi minn i en 2 kr. fyrir
hvert einstakt leyfi, er greiðist til
lögreglustjóra á útflutningsstað".
Útflutningsnefnd
samkvæmt hinum nýju bráða-
birgðalögum er skipuð: Frá
Sjálfstæðismönnum: Ól. Johnsen
stórkaupm. og Richard Thors
framkv.stj ; frá Framsókn: Jóni
Árnasyni f amkv.stj. og Skúla
Guðmundssyni fyrv. ráðherra og
frá sósíalistum: Finni Jónssyni
forstjóra. Má það vera mikill
plástur fyrir isfirzka verkamenn,
að Finnur skuli þarna fá vel-
launaða stöðu til viðbótar strið-
ið út. Þarf hann sýnilega ekki
að kvíða atvinnuleysi eða óvissu
þótt stríðshörmungarnar magnist.
Hámarksverð á kartöflum.
Verðlagsnefnd Grænmetisverzl-
unar rikisins (stórt er orðiðl) hefir
nú ákveðið söluverð á kartöflum
frá 15. þ. m. til loka október og
skal það vera 11 kr. fyrir 50 kgr.
af góðum og óskemdum kart-
öflum tii allra verzlana, nema
Grænmetisverzlunar rikisins, sem
má kaupa hver 50 kgr. fyrir alt
að 3 kr. lægra verð.
Álagning verzlana á kartöflur
er af verðlagsnefnd heimiluð alt
að 40°/0, svo ekki er almenn-
ingi ætlað að eta ódýrar kart-
öflur þetta haustið,